Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 40
Öryggisblaðið UNICONTA – bókhaldskerfið sem allir eru að tala um Uniconta er nýjasta og öflugasta bókhaldskerfið úr smiðju Eriks Damgaard. Erik er ókrýndur konungur bókhaldskerfanna, byrjaði ungur að árum að þróa bókhaldskerfi sem þúsundir fyrirtækja um allan heim hafa notað, t.a.m. Concorde XAL og Axapta. Microsoft keypti fyrirtæki hans fyrir um 200 milljarða króna árið 2001 og hafa lausnir hans verið flaggskipið í lausnaframboði hugbúnaðarrisans síðan þá. Uniconta kom á markað í Danmörku og á Íslandi árið 2016 og hefur fengið frábærar viðtökur. Önnur kerfi komast ekki með tærnar þar sem Uniconta er með hælana þegar kemur að virkni og hraða. Kerfið er skýjalausn þar sem að öll gögn eru vistuð í ISO vottuðu skýjaumhverfi en notandinn vinnur með gögnin í gegnum forrit eða app á tölvu eða snjalltæki. Hraði og virkni „Okkar reynsla er sú að Uniconta sem skýjalausn er að skila gögnum mun hraðar en bókhaldskerfi sem eru á gagnaþjónum niðri í kjallara hjá fyrirtækjum, gögnunum er þjappað á snilldarlegan hátt þegar þau er sótt eða send upp í skýið,“ segir framkvæmdastjóri Uniconta á Íslandi, Ingvaldur Thor Einarsson. Fjárhagskerfið er hjartað í Uniconta og tengist að fullu við allar kerfiseiningar eins og viðskiptavina- og lánardrottnakerfi, birgða-, framleiðslu-, verkbókhalds-, kröfu- og CRM-kerfi. Uniconta byggir á nýjustu tækni frá Microsoft og forritaskilum (API) þannig að einfalt er að láta gögn flæða á milli Uniconta annars vegar og launakerfa, vefverslana, bókunarkerfa o.s.frv. hins vegar. Þá er mjög fljótlegt að setja upp gagnvirka teninga í Excel eða PowerBI sem keyra á raungögnum úr Uniconta. Í dag eru á annað hundrað lausnir sem bjóða upp á tilbúnar tengingar við Uniconta. Uniconta má nota á öllum tækjum: Windows- og Mac-tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Frábærar viðtökur Uniconta er viðskiptalausn á heimsmælikvarða og styður nú þegar 30 tungumál. Kerfið er komið inn á nokkra markaði í Evrópu, Asíu og Mið- Austurlöndum. Fjöldi notenda hér á landi er kominn yfir eitt þúsund og vel á þriðja hundrað íslenskra fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum nota nú Uniconta til að halda utan um fjármál og rekstur, birgðir, framleiðslu og verk. Í dag eru flest íslensk fyrirtæki að nota gömul eða úrelt bókhaldskerfi með tilheyrandi kostnaði og takmörkun á framleiðni. „Hér eru þessi gömlu íslensku bókhaldskerfi eins og DK enn víða í notkun. Þessi kerfi voru smíðuð á síðustu öld og voru mjög fín á sínum tíma. Þarna var tækniumhverfið allt annað, nettengingar voru hægar og dýrar. Þessi kerfi byggja því á gamalli tækni sem verður flöskuháls víða. Notendur þurfa oft að vinna í gegnum fjarvinnsluviðmót sem var ásættanlegt fyrir einhverjum tíu árum en er ekki boðlegt í nútímaumhverfi.“ segir Ingvaldur. „Á hinum enda markaðarins eru stóru kerfin eins og Dynamics NAV sem eru einnig komin til ára sinna. Þessi kerfi eru dýr í innleiðingu og uppfærslur eru dýrar og flóknar. Uniconta er skýjalausn sem uppfærist sjálfkrafa þannig að fyrirtæki sem er í Uniconta þarf aldrei að ráðast í kostnaðarsama uppfærslu.“ Uniconta er því skynsamlegasta lausnin fyrir íslensk fyrirtæki. Bókhaldskerfi hafa aldrei verið ódýrari Uniconta er seld sem hugbúnaðarlausn í áskrift þar sem lægsta mánaðargjald er kr. 2.499 án VSK en sú áskrift hentar einyrkjum í einföldum rekstri. „Menn bæta svo við notendum, kerfiseiningum, færslum og viðbótarlausnum eftir þörfum. Viðskiptavinir sem skipta yfir í Uniconta eru að jafnaði að ná fram 50% sparnaði í rekstrarkostnaði bókhaldskerfis,“ segir Ingvaldur. „Þá er mun einfaldara að innleiða Uniconta en önnur kerfi og hægt að færa öll gögn úr gamla kerfinu yfir í Uniconta. Við aðstoðuðum t.d. lítið fyrirtæki um daginn við innleiðingu Uniconta og það tók klukkustund að koma öllum gögnum og færslum síðustu 10 ára úr gamla kerfinu yfir í Uniconta. Hjá stærri fyrirtækjum hleypur innleiðing á einhverjum dögum en ekki mánuðum eins og hjá mörgum af okkar keppinautum.“ Aldrei minni vinna við bókhaldið „Við ætlum okkur ekki aðeins að lækka kostnað fyrirtækja við áskrift og innleiðingu viðskiptalausna, heldur viljum við einnig hjálpa þeim að spara dýrmætan tíma starfsmanna,“ segir Ingvaldur. Hjá meðalstóru fyrirtæki fara hundruð klukkustunda í innslátt og meðhöndlun fylgiskjala í hverjum mánuði. Í byrjun árs mun Uniconta kynna nýja lausn sem les upplýsingar af fylgiskjölum á stafrænu formi og færir inn í rétta reiti í kerfinu. Þetta mun spara alla innsláttarvinnu og nær útrýma mistökum. Þetta er í takt við þriðju iðnbyltinguna þar sem að tæknin leysir af hólmi einföld, tímafrek verkefni sem eru endurtekin í gríð og erg. „Margir hafa spáð því að starf bókara muni leggjast af en okkar sýn er sú að þessi störf muni ekki leggjast niður – heldur breytast. Bókarar munu hafa tíma til að sinna greiningum og veita stjórnendum fyrirtækja endurgjöf um reksturinn. Þetta skapar mun meiri verðmæti fyrir alla en núverandi fyrirkomulag þar sem heilu stöðugildin eru að slá inn gögn af pappír og raða fylgiskjölum í möppur. Uniconta er í stöðugri þróun og við leggjum okkur fram um að hlusta á óskir viðskiptavina okkar. Bestu hugmyndirnar koma frá fólkinu sem notar kerfið daglega til að leysa ýmis vandamál í rekstrinum og kallar eftir nýjum og snjöllum leiðum til að gera hlutina.“ Um Uniconta Uniconta A/S er starfrækt í Danmörku og hefur um 30 starfsmenn á sínum snærum. Fyrirtækið er að mestu í eigu Eriks Damgaard en danskir lífeyrissjóðir lögðu til milljarða fjárfestingu á síðasta ári. Uniconta Ísland ehf. hefur dreifingarrétt á Uniconta hér á landi. Uniconta bókhaldskerfið er selt í gegnum fjölda sjálfstæðra sölu- og þjónustuaðila. „Við teljum að þetta sé besta leiðin inn á markaðinn. Viðskiptavinurinn getur valið þann þjónustuaðila sem hann treystir best en við höfum lagt mikla vinnu í að velja og þjálfa öfluga þjónustuaðila sem viðskiptavinir treysta.“ Sjá nánar á uniconta.is. KYNNINGARBLAÐ 25. október 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.