Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 38
Öryggisblaðið
KRÓKUR:
Sérhæfing í flutningi og
björgun ökutækja
Krókur er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í flutningi og björgun ökutækja. Gísli
Jónsson framkvæmdastjóri
segir frá því að félagið reki einnig
þjónustumiðstöð þar sem veitt
er alhliða þjónusta í meðhöndlun
tjónabifreiða fyrir þá sem þess óska.
„Starfsfólk Króks hefur mikla
reynslu og félagið hefur yfir að ráða
öflugum bíla- og tækjabúnaði til að
sinna þörfum viðskiptavina.“
Helstu þjónustuþættir Króks eru:
• Flutningur, björgun og vistun
tjónaökutækja.
• Uppboðsmeðferð bifreiða.
• Tjónaskoðun bifreiða.
• Ástandsskoðun og verðmat
bifreiða.
• Úttekt á viðgerðum ökutækja
eftir stórtjón.
• Björgun, flutningur,
vistun, varðveisla og sala
lausafjármuna.
• Vegaaðstoð á staðnum,
rafmagn, dekk og fleira.
• Þjónusta Króks er aðgengileg
allan sólarhringinn alla daga
ársins í gegnum síma 522-
4600.
Afgreiðslutími bifreiðageymslu og
bílauppboðs er frá kl. 8.30–17.00
alla virka daga.
Bílauppboð á vegum Króks
Að sögn Gísla Jónssonar eru
bílauppboð örugg, hagkvæm og
fljótleg leið til að selja bifreiðar. „Í
flestum tilvikum seljast bifreiðar
á 3–5 dögum gegn staðgreiðslu.
Krókur bílauppboð er viðurkenndur
söluaðili sem sér m.a. um sölu á
bifreiðum fyrir tryggingafélög og
fjármálastofnanir.“
Kostir bilauppbod.is eru:
„Við seljum bæði bíla sem eru
í góðu ásigkomulagi, en einnig
bifreiðar sem þarfnast lagfæringa
eða viðgerða. (Ástand bifreiða er
tekið fram í sölulýsingu miðað við
fyrirliggjandi upplýsingar). Seljendur
þurfa ekki að hafa áhyggjur af því
að taka aðrar bifreiðar upp í.“
Uppboðsvöktun er boði fyrir
alla þá sem eru skráðir notendur
hjá okkur og bjóða í ökutæki og
aðra hluti á www.bilauppbod.is.
Uppboðsvöktunin virkar þannig að
þitt tilboð verður alltaf sjálfkrafa
5.000 krónum hærra en síðasta
tilboð frá öðrum – upp að þeirri
fjárhæð sem þú hefur skilgreint sem
þitt hámarksverð,“ segir Gísli.
Krókur ehf., Vesturhrauni 5, 210
Garðabæ. Sími: 552-4610 Fax:
522-4649.
KYNNINGARBLAÐ 25. október 2019