Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 30
VÖRN ÖRYGGISKERFI –
Leiðandi í öryggismálum
Vörn öryggiskerfi var stofnað árið 2008 af Jóni Á. Hermannssyni og hefur síðan vaxið og dafnað
og er í dag í viðskiptum við 1200
fyrirtæki auk fjölda heimila. Átta manna
teymi sér um sölu og uppsetningu á
myndavélum um allt land.
„Vörn hefur frá upphafi lagt mikla
áherslu á alls kyns tækninýjungar
og erum við ávallt með nýjasta og
besta búnaðinn frá heimsþekktum
framleiðendum. Við vorum með
þeim fyrstu sem buðu uppá þann
möguleika að skoða myndavélar í
gegnum síma,“ segir Jón Ágúst. „Við
erum með vörumerkið Dahua og
bjóðum upp á 4k myndavélar sem
eru 8 megapixla með nýrri gerð af
nætursjón sem heitir Starvis. Hún
virkar þannig að myndin verður
ekki svarthvít að nóttu til, hún
heldur lit og þannig er auðveldara
að greina einstaklinga í miklu
myrkri. Og 4k myndavélar eru það
besta sem hægt er að fá í dag í
almennum vélum, en þær eru samt
á viðráðanlegu verði. Vélarnar henta
vel bæði fyrir fyrirtæki og heimili.“
Fyrirtæki geta leitað tilboða, „við
setjum upp og þjónustum stærri
sem smærri fyrirtæki.“
Snjalltæknin vinsælust í dag
Snjalltæknin er í boði hjá Vörn og
langflestir eru að snjallvæðast.
„Það er gríðarlega vinsælt, það vilja
allir geta haft stjórn á hlutunum í
gegnum símann,“ segir Jón Ágúst.
„Þú getur skoðað myndavélarnar
í gegnum símann, getur kveikt og
slökkt á þjófavörninni, kaffivélinni,
heita pottinum í sumarbústaðnum
svo dæmi sé tekið, það er hægt
að gera allt með þessu kerfi í
dag. Ef þú ert með þjófavörn og
myndavélakerfi þá ertu fljótur að sjá
í símanum hvað er að gerast, þú ert
fljótari en öryggisfyrirtækið er að
hringja í þig. Þannig getur þú sparað
þér stórar upphæðir í vöktun.
Við erum leiðandi í tækninýjungum
í öryggismálum og verslum við bestu
fyrirtæki í heimi. Þjónustustöðin okkar
er í Reykjavík, en við setjum upp
öryggiskerfi um allt land.“
Gæðaeftirlitskerfi fyrir
útgerðarfyrirtæki
Fyrir útgerðarfyrirtæki býður Vörn
upp á gæðaeftirlitskerfi og er það
komið upp hjá mörgum fyrirtækjum
og er framarlega þar, sem dæmi
má nefna Þorbjörn í Grindavík, GPG
Seafood og Fiskmarkað Íslands. „Þessi
fyrirtæki og fleiri nota myndavélakerfi
sem gæðaeftirlitskerfi fyrir fiskvinnsluna
og fleira, enda geta öryggismyndavélar
hjálpað til við margt.“
Myndavélakerfi – vörn gegn einelti
og skemmdarverkum í skólum
„Vörn hefur sett upp
myndavélakerfi í fjölmarga skóla á
höfuðborgarsvæðinu og hefur það
reynst gott vopn í baráttunni gegn
einelti. Skemmdarverk á skólalóðum
geta kostað mikla fjármuni og eru
nánast úr sögunni þegar myndavélar
eru til staðar,“ segir Jón Ágúst.
Allar upplýsingar um Vörn
öryggiskerfi má fá í síma 561-
5600, netfanginu vorn@vorn.is og
á heimasíðunni www.vorn.is.
25. október 2019KYNNINGARBLAÐÖryggisblaðið