Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 49
FÓKUS 4925. október 2019 H laðvörp njóta sífellt meiri vinsælda en eitt slíkra, Mistería, hefur slegið rækilega í gegn. Þar fara vinkonurnar Tinna Björk Kristinsdóttir og Árnný Guðjóns- dóttir yfir óleyst sakamál. Í þáttunum er farið vand- lega ofan í kjölinn á dularfullri atburðarás og ljóst er að baki hverri umfjöllun liggur mik- il heimildavinna. Tildrög þátt- anna segja stelpurnar tilkom- in vegna sameiginlegs áhuga þeirra á dularfullum atburðum. „Við elskum að grúska í málefn- um sem vekja áhuga okkar og hér höfum við hinn fullkomna vett- vang fyrir það,“ segir Árnný og heldur áfram. „Það er eitthvað við óleyst sakamál sem og ráðgát- ur sem heillar okkur. Dulúðin er svo heillandi því það veit enginn hvað hefur átt sér stað í raun og veru nema kannski mögulegur gerandi ef málið er af slíkum meiði. Hann hefur í þessum til- fellum hvorki stigið fram né fund- ist. Þetta gefur tækifæri til að fara yfir hina ýmsu vinkla á málinu og gefur hlustendum og okkur sjálf- um færi á að mynda eigin kenn- ingar út frá þeim gögnum og upp- lýsingum sem þegar liggja fyrir.“ Spurð hvort eitthvert frá- sagnarmynstur veki meiri áhuga en annað segir Árnný það fyrst og fremst vera mál þar sem margar skýringar komi til greina. „Við erum ekkert að takmarka okkur við neitt eitt ákveðið umfjöllun- arefni þó svo að mannshvörf séu kannski eðli málsins samkvæmt svolítið nærtækur málaflokkur til umfjöllunar. Það er í sjálfu sér mjög misjafnt hvar við finn- um þessar sögur, sumar höfum við báðar heyrt af og farið yfir en annað eru mál sem kannski önn- ur okkar hefur heyrt og kynnt sér að einhverju leyti og hin hellir sér svo í. Eftir að við byrjuðum með hlaðvarpið eru svo hlustendur farnir að senda okkur ábendingar sem er mjög gaman. Það er af nægu að taka í þessum efnum en við takmörkum okkur ekki bara við sakamál því við ætlum að skoða ýmsar aðrar ráðgátur svo sem flugslys, dularfulla staði og atburði.“ Öll málin eru óleyst Samhliða því að sanka að sér sakamálasögum starfar Árnný sem lögmaður en hún hefur sinnt margvíslegum störfum frá útskrift ásamt því að sinna sjálfboðastörf- um bæði hér heima sem og á al- þjóðavettvangi fyrir einstaklinga með MND-sjúkdóminn. Hún býr með Tryggva Frey Torfasyni leik- ara en Tinnu kynntist hún einmitt í gegnum hann. „Tryggvi og Tinna eru bæði úr Hveragerði en Hauk- ur, bróðir Tinnu, er besti vin- ur Tryggva. Það kannast margir við Tinnu en hún starfar sem skemmtikraftur og við verkefni tengd samfélagsmiðlum í gegn- um notandanafn sitt Tinnabkr. Tinna hefur talsvert meiri reynslu en ég þegar kemur að svona hlað- varpsgerð en hún stjórnar Þarf alltaf að vera grín ásamt Tryggva og Ingólfi Grétarssyni, sambýlis- manni sínum. Eftir að Ingó kom inn í lífið hjá Tinnu urðum við öll bestu vinir og erum búin að ferðast heilmikið saman og hlæja endalaust mikið og skapa ótrú- lega góðar minningar á stuttum tíma. Tinna hafði gengið með þennan draum í mörg ár og áður en þau fóru í að gera, Þarf alltaf að vera grín, þá var þetta alltaf á dagskránni. Þarf alltaf að vera grín, varð svo mun stærra en þau þorðu að vona þannig að svona hlaðvarp sat á hakanum. Í vor fór Tinna aftur að ræða þessa hug- mynd en vantaði meðstjórnanda og þá ákvað ég að stíga aðeins út fyrir þægindarammann og stinga upp á sjálfri mér. Í kjölfarið fórum við af stað í undirbúning.“ Árnný ítrekar jafnframt að ólíkur bakgrunnur þeirra komi sér vel við gerð þáttanna. „Ég elska fátt eins mikið og gott excel- skjal með upplýsingum og hef unun af því að grúska í heimild- um til að kanna hvort eitthvað sé raunveruleg staðreynd eða ekki. Tinna tók hins vegar alla mögu- lega sálfræðiáfanga og hefur afar skapandi og frjóa hugsun og er því mun betri í að setja fram hin- ar ýmsu kenningar varðandi mál- in og skoða hvað gæti mögu- lega hafa gerst. Við tökum okkur þó ekki of alvarlega því öll málin sem eru til umfjöllunar eru óleyst og við vitum að við erum ekki að fara að leysa þau, en við leggj- um okkur fram við að kanna sem flesta vinkla og þar vinna ólík- ir styrkleikar okkar best saman. Við erum alla vikuna að spá í nýtt mál og velta upp upplýsingum og kenningum, síðan tökum við frá svona hálfan dag í tökur, þá tek- ur Ingó við þættinum og vinnur hann. Að því loknu klippir Tinna hann með honum og svo bætir hann inn geggjaða hljóðheimin- um okkar sem Hafsteinn Þráins- son, Ceastone, bjó til fyrir okkur.“ Prentaðar bækur henta ekki öllum Vinsældir hlaðvarps eru sannar- lega að aukast, teljið þið það bitna á bókalestri eða er hlað- varp hluti af hraðara samfélagi þar sem fólk þarf helst að gera tvennt eða meira í einu? „Hlaðvarpið er eitthvað sem er að bætast við flóruna, prentaðar bækur henta ekki öllum og það er bara frábært að núna sé unnt að sækja sér þekkingu og af þreyingu í gegnum símann sinn eða önnur raftæki, þróunin er hröð í þessum heimi og það sem skiptir mestu máli er að hafa gagnrýna hugs- un á það efni sem maður er að neyta, hvort sem það er á formi hlaðvarps, hljóðbóka, rafbóka eða prentrits. Hlaðvörp eru frá- bær leið til að láta leiðinleg verk- efni verða að gæðastund, við vit- um að minnsta kosti að bæði Þarf alltaf að vera grín og Mister- ía hafa gert ýmis heimili landsins mun hreinni en þau hefðu annars verið.“ Og stöllurnar viðurkenna að viðbrögð hlustenda hafi komið þeim gríðarlega á óvart. „Við viss- um í raun ekkert hvort einhverjir væru jafn spenntir og við fyrir svona umfjöllun um óleyst mál þar sem í raun er enginn endir. Þátturinn er líka í óformlegum frásagnarstíl, hann hefst á kynn- ingu á málinu en í kjölfarið er hlustandanum boðið í umræð- ur á milli tveggja vinkvenna um hinar ýmsu staðreyndir og kenn- ingar í málinu. Við erum ótrú- lega þakklátar fyrir það hvað hlustendur okkar eru duglegir að senda okkur skilaboð, mæla með þættinum og koma með sínar eig- in kenningar og skýringar ásamt því að benda okkur á ný mál. Við höfum ekki haft undan að svara og erum ekkert smá ánægðar með allan áhugann sem þættin- um hefur verið sýndur. Ætlunin er að halda áfram að sinna báð- um hlaðvörpunum, það er ýmis- legt spennandi í farvatninu og við höfum sjaldan hlakkað jafn mikið til vetrarins.“ n √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjón t Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga www.eignaumsjon.is Suðurlandsbraut 30 • Sími 585 4800 „Mistería hefur gert heimili landsins hreinni en þau hefðu annars verið“ n Tinna Björk og Árnný kryfja óleyst sakamál n Dulúðin er það sem heillar vinkonurnar Íris Hauksdóttir iris@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.