Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 33
Öryggisblaðið25. október 2019 KYNNINGARBLAÐ BENDIR: Vörurnar sem tryggja heilsu og öryggi veiðihundsins Þegar farið er á rjúpu eða í aðra skotveiði þá er ekki síður mikilvægt að veiðihundurinn sé vel útbúinn en að veiðimaðurinn sé það. Góðir veiðihundar leggja mikið á sig í veiðiferðum og það þarf að vernda öryggi þeirra og heilsu. Bendir er eina sérverslun landsins sem selur eingöngu vörur fyrir hunda og sérhæfir sig sérstaklega í vörum fyrir veiðihunda og vinnuhunda. Eigendur eru hjónin Einar Páll Garðarsson og Sigríður Oddný Hrólfsdóttir. Þau hafa áratuga reynslu af þjálfun og umgengni við vinnuhunda og veiðihunda, og miðla af mikilli þekkingu til viðskiptavina verslunarinnar. Einar Páll, sem ávallt er kallaður Palli, fer hér yfir nokkur helstu öryggistæki fyrir veiðihunda. Nánari upplýsingar um allt vöruúrvalið eru síðan á vefsíðunni bendir.is. Hlífðar- og sýnileikavesti „Eitt mikilvægasta öryggistækið fyrir hundinn er hlífðar- og sýnileikavesti. Þetta snýst ekki bara um að hundurinn sjáist í myrkri því maður veit aldrei hver er á ferðinni á fjalli, oft geta það verið vopnaðar veiðiskyttur, og viðkomandi getur hæglega ruglað saman hundi og tófu úr fjarlægð, sé hundurinn ekki merktur með þessum hætti. Hundurinn þarf að vera vel merktur svo ekki fari á milli mála að veiðihundur sé á ferðinni,“ segir Palli. Margs konar hlífðarvesti gegna þessu hlutverki en eitt þeirra er Flecta-varmavestið sem auk þess að gera hundinn sýnilegan heldur á honum hita. Hlífðarsokkar „Þegar veiðimenn eru að þjálfa hundana sína á það sér oftast stað á heiði eða rétt fyrir utan bæinn, þar sem jarðvegurinn er oft gras eða mosi, einstaka sinnum grjót. Á þessu hefur hundurinn verið að hlaupa í nokkra mánuði en svo loksins þegar kemur að sjálfri veiðiferðinni þá er hún mikið yfir grjót, urð, skriður og hraun – þá mæðir á þófum hundsins. Menn tapa hundinum sínum á fyrsta degi í rjúpu þannig að hann er kannski ekki nothæfur í tvær þrjár helgar af því að hann er sárfættur. Þetta er eins og farið sé með ostaskera undir þófa hundsins og flett af,“ segir Palli og nefnir til sögunnar tvenns konar hlíðarsokka, frá Cordura og Mendota: „Hinir fyrrnefndu henta á grjót og urð en þeir síðarnefndu á snjó og snjóskel sem myndast þegar snjór hefur legið lengi á fjöllum, þá myndast hörð skel ofan á sem hundurinn rennur niður í gegnum – og naglaböndin á hundinum verða eitt blóðstykki. Þó að hundurinn sé með drif á öllum fjórum eins og góður jeppi þá eru framfæturnir hans bæði stýri og bremsur og það mæðir gríðarlega á þeim.“ Palli bendir jafnframt á að góður veiðihundur fari yfir miklu lengri vegalengd en veiðimaðurinn: „Í góðu göngufæri hefur meðal rjúpnaskytta gengið um 20 kílómetra á meðan standandi fuglahundur eða rjúpnahundur getur farið yfir allt frá 70 upp í 120 kílómetra á sama tíma, þar sem hann leitar, bendir á bráð, hleypur, sækir o.s.frv.“ Ljós og flautur Einn grundvallarþáttur í öryggi hundsins eru góð ljós, vatnsheld og með langa rafhlöðuendingu. Fox 40 ljósin uppfylla þessi skilyrði. Þau geta lýst allt að 8 kílómetra í myrkri og það er 100 þúsunda klukkustunda ending á perunni. Með stöðugu blikki logar ljósið í 10 sólarhringa stanslaust. Palli bendir enn fremur á mikilvægi þess að vera með góða flautu. Í miklum vindi heyrir hundurinn ekki þó að eigandinn gargi á hann en flauturnar eru 110 upp í 122 desibel – og tryggt er að hundurinn heyrir í þeim. Þá má nefna burðarpoka sem hægt er að setja á hundinn og láta hann deila byrðinni með veiðimanninum ef vel hefur veiðst og mikið þarf að bera til byggða. Bendir er til húsa að Hlíðasmára 13, Kópavogi. Verslunin er opin virka daga frá 10 til 18 og laugardaga frá 11 til 15. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni bendir.is og þar er líka vefverslun sem sendir hvert á land sem er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.