Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Side 33
Öryggisblaðið25. október 2019 KYNNINGARBLAÐ
BENDIR:
Vörurnar sem tryggja heilsu
og öryggi veiðihundsins
Þegar farið er á rjúpu eða í aðra skotveiði þá er ekki síður mikilvægt að veiðihundurinn
sé vel útbúinn en að veiðimaðurinn
sé það. Góðir veiðihundar leggja
mikið á sig í veiðiferðum og það þarf
að vernda öryggi þeirra og heilsu.
Bendir er eina sérverslun landsins
sem selur eingöngu vörur fyrir
hunda og sérhæfir sig sérstaklega
í vörum fyrir veiðihunda og
vinnuhunda. Eigendur eru
hjónin Einar Páll Garðarsson
og Sigríður Oddný Hrólfsdóttir.
Þau hafa áratuga reynslu
af þjálfun og umgengni
við vinnuhunda og
veiðihunda, og miðla
af mikilli þekkingu
til viðskiptavina
verslunarinnar. Einar
Páll, sem ávallt er
kallaður Palli, fer hér yfir
nokkur helstu öryggistæki
fyrir veiðihunda. Nánari
upplýsingar um allt vöruúrvalið eru
síðan á vefsíðunni bendir.is.
Hlífðar- og sýnileikavesti
„Eitt mikilvægasta öryggistækið
fyrir hundinn er hlífðar- og
sýnileikavesti. Þetta snýst ekki
bara um að hundurinn sjáist í
myrkri því maður veit aldrei hver
er á ferðinni á fjalli, oft geta það
verið vopnaðar veiðiskyttur, og
viðkomandi getur hæglega ruglað
saman hundi og tófu úr fjarlægð,
sé hundurinn ekki merktur með
þessum hætti. Hundurinn þarf að
vera vel merktur svo ekki fari á milli
mála að veiðihundur sé á ferðinni,“
segir Palli. Margs konar hlífðarvesti
gegna þessu hlutverki en eitt þeirra
er Flecta-varmavestið sem auk þess
að gera hundinn sýnilegan heldur á
honum hita.
Hlífðarsokkar
„Þegar veiðimenn eru að þjálfa
hundana sína á það sér oftast
stað á heiði eða rétt fyrir utan
bæinn, þar sem jarðvegurinn
er oft gras eða mosi, einstaka
sinnum grjót. Á þessu hefur
hundurinn verið að hlaupa
í nokkra mánuði en svo
loksins þegar kemur að
sjálfri veiðiferðinni þá
er hún mikið
yfir grjót, urð, skriður og hraun – þá
mæðir á þófum hundsins. Menn
tapa hundinum sínum á fyrsta degi
í rjúpu þannig að hann er kannski
ekki nothæfur í tvær þrjár helgar
af því að hann er sárfættur. Þetta
er eins og farið sé með ostaskera
undir þófa hundsins og flett af,“
segir Palli og nefnir til sögunnar
tvenns konar hlíðarsokka, frá
Cordura og Mendota:
„Hinir fyrrnefndu henta á grjót
og urð en þeir síðarnefndu á snjó
og snjóskel sem myndast þegar
snjór hefur legið lengi á fjöllum,
þá myndast hörð skel ofan á sem
hundurinn rennur niður í gegnum –
og naglaböndin á hundinum verða
eitt blóðstykki. Þó að hundurinn
sé með drif á öllum fjórum eins
og góður jeppi þá eru
framfæturnir hans
bæði stýri og
bremsur og
það mæðir
gríðarlega
á þeim.“
Palli
bendir
jafnframt á að góður veiðihundur
fari yfir miklu lengri vegalengd en
veiðimaðurinn: „Í góðu göngufæri
hefur meðal rjúpnaskytta gengið
um 20 kílómetra á meðan
standandi fuglahundur eða
rjúpnahundur getur farið yfir allt frá
70 upp í 120 kílómetra á sama tíma,
þar sem hann leitar, bendir á bráð,
hleypur, sækir o.s.frv.“
Ljós og flautur
Einn grundvallarþáttur í öryggi
hundsins eru góð ljós, vatnsheld
og með langa rafhlöðuendingu.
Fox 40 ljósin uppfylla þessi skilyrði.
Þau geta lýst allt að 8 kílómetra
í myrkri og það er 100 þúsunda
klukkustunda ending á perunni.
Með stöðugu blikki logar ljósið í 10
sólarhringa stanslaust.
Palli bendir enn fremur á
mikilvægi þess að vera með
góða flautu. Í miklum vindi heyrir
hundurinn ekki þó að eigandinn
gargi á hann en flauturnar eru 110
upp í 122 desibel – og tryggt er að
hundurinn heyrir í þeim.
Þá má nefna burðarpoka sem
hægt er að setja á hundinn og
láta hann deila byrðinni með
veiðimanninum ef vel hefur veiðst og
mikið þarf að bera til byggða.
Bendir er til húsa að Hlíðasmára
13, Kópavogi. Verslunin er
opin virka daga frá 10 til 18 og
laugardaga frá 11 til 15. Nánari
upplýsingar eru á vefsíðunni
bendir.is og þar er líka vefverslun
sem sendir hvert á land sem er.