Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 62
62 FÓKUS 25. október 2019
Laun 5 áhrifavalda
n Gríðarlegir peningar í húfi n Umdeild atvinna
Á
hrifavaldar er
vaxandi starfs-
stétt en þeirra
tekjur byggjast á
því að fá greitt fyrir að
auglýsa vörur. Óljóst
hefur verið nákvæm-
lega hve mikið áhrifa-
valdar fá greitt fyrir
vinnu sína, en nú virð-
ist vera í tísku að vinna
með áhrifavöldum sem
eru með að hámarki
fimmtíu þúsund fylgj-
endur á Instagram, líkt
og nokkrir áhrifavaldar
á Íslandi hafa áorkað.
Huffington Post
fékk uppgefið hjá fimm
bandarískum áhrifa-
völdum hvað þeir fá
borgað fyrir eitt ver-
kefni, án þess að til-
greina hvaða fyrirtæki
réð þá til vinnu. Þótt
launagreiðslurnar séu
afar einstaklingsbundn-
ar, þá gefa upplýs-
ingarnar góða mynd af
því hve hægt er að þéna
mikið sem áhrifavaldur
úti í hinum stóra heimi.
Tomi er tísku- og lífsstílsáhrifa-
valdur sem býr í Charlotte í
Norður- Karolínu. Hún er með
tæplega nítján þúsund fylgjendur
á Instagram og fékk fyrsta launaða
verkefnið fyrir þremur árum.
Samningurinn: Ein Instagram-fær-
sla með tveimur ljósmyndum
sem ljósmyndari, sem Tomi réð til
verksins, tók. Þá fékk hún einnig
tvo kassa af túrtöppum, en varan
þurfti að sjást á myndunum.
Laun: 1.000 dollarar, tæplega
125.000 krónur.
Önnur samningsatriði: Tomi mátti
ekki vinna fyrir samkeppnisaðila
næstu þrjá mánuðina. Fyrirtæk-
ið mátti nota myndirnar hennar á
samfélagsmiðlum, í fréttabréfum
og á heimasíðu sinni.
Audree er tísku- og lífsstílsáhrifa-
valdur og stílisti sem býr í New
York. Hún er með rúmlega 31 þús-
und fylgjendur á Instagram og fékk
fyrsta launaða verkefnið fyrir fjór-
um árum.
Samningurinn: Ein bloggfær-
sla eða YouTube-myndband,
tvær Instagram-færslur sem
sýndu Audree nota nýja vöru, ein
Instagram-saga með möguleika á
að tengja við hlekk og ein Face-
book-færsla með hlekk á blogg-
færsluna. Hún réð tökumann til að
vinna með henni að verkefninu.
Laun: 3.500 dollarar, tæplega
444.000 krónur.
Önnur samningsatriði: Hún mátti
ekki vinna fyrir aðra þremur dög-
um fyrir og eftir að hún birti keypta
efnið. Fyrirtækið mátti nota efnið
frá henni í auglýsingum og á sam-
félagsmiðlum.
Emmalynn er tísku-, ferðalaga- og lífsstílsáhrifavaldur sem býr í
Seattle. Hún er með tæplega þrjátíu þúsund fylgjendur á Facebook
og fékk fyrsta launaða verkefnið fyrir þremur árum.
Samningur: Ein Instagram-færsla með þremur ljósmyndum, ein
Instagram-saga með fimm römmum og hlekk á vefsíðu fyrirtækis-
ins og átta ljósmyndir sem fyrirtækið mátti nota á heimasíðu sinni.
Laun: 1.500 dollarar, tæplega 190.000 krónur, og 100 dollara gjafa-
kort, andvirði tæplega 12.500 króna.
Önnur samningsatriði: Fyrirtækið mátti nota allt efni frá henni í eitt
ár.
Sarah er tískuáhrifavald-
ur í New York með tæplega
fimmtíu þúsund fylgjendur
á Instagram. Hún fékk fyrsta
launaða verkefnið fyrir fjórum
árum.
Samningur: Tvær Instagram-
-færslur og að lágmarki fimm
Instagram-sögur, þar af að
minnsta kosti ein með hlekk á
fyrirtækið.
Laun: 1.800 dollarar, eða rúm-
lega 220.000 krónur, og 750
dollara inneign, andvirði tæp-
lega 94.000 króna.
Caitlin er tísku-, fegurðar-
og lífsstílsáhrifavaldur sem
býr í Chicago. Hún er með
um 25 þúsund fylgjendur á
Instagram og fékk fyrsta laun-
að verkefnið fyrir þremur
árum.
Samningur: Ein Instagram-
færsla og átta rammar í
Instagram-sögu.
Laun: 2.000 dollarar, eða tæp-
lega 250.000 krónur.
Önnur samningsatriði: Hún
mátti ekki vinna fyrir
samkeppnisaðila í tvo mánuði
og fyrirtækið mátti nota efni
frá henni í stafrænu formi í sex
mánuði.
To
m
i O
be
be
(@
go
od
to
m
ich
a)
Au
dr
ee
K
at
e L
op
ez
(@
si
m
pl
ya
ud
re
ek
at
e)
Emmalynn
(Emma) Cortes
(@emmasedition)
Sa
ra
h
Ch
iw
ay
a
(@
cu
rv
ily
)
Caitlin Patton
(@caitpatton)