Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 57
FÓKUS - VIÐTAL 5725. október 2019 að þetta væri ekki að ganga upp. Við ákváðum að bíða og sjá hvað setur.“ Í framhaldinu ákváðu þau hjónin að minnka myndina, skera niður um helming og byrja aftur. Þá kom Harvey Weinstein, sem nú bíður dóms fyrir kynferðis­ lega áreitni og ofbeldi, inn sem bjargvættur og tók myndina upp á arma sína. Margrét og Jón Óttar náðu því að fjármagna erlenda hlutann af myndinni og sóttu um styrk á Íslandi, en fengu höfnun. „Þá urðum við svolítið fúl út í Ísland. Við vorum búin að hafa mikið fyrir þessu aftur. Þá ákváð­ um við að setja þetta á ís,“ segir Margrét. „Svo jafnaði það sig og við héldum af stað í leiðangurinn aftur og hann hefur verið tiltölu­ lega hraður. Núna erum við að sigla Titanic í höfn og byrja tökur í lok janúar.“ Varði Weinstein í fyrstu Í þessu ferli hitti Margrét Harvey Weinstein tvisvar sinnum og þekkir ekki þá hlið á honum að hann misbeiti valdi sínu og stöðu, eins og fjöldi kvenna hefur opnað sig um. „Hann tók Kill the Poet upp á sína arma og fyrir það er ég óend­ anlega þakklát. Ég byrjaði aðeins að verja hann þegar þessar ásak­ anir komu upp á yfirborðið. Þetta var ekki á allra vitorði en augljós­ lega á vitorði þeirra sem höfðu unnið náið með honum og lengi. Það er alveg á hreinu. Ég segi bara í raun og veru um hann: Því miður náði hann sér ekki í hjálp fyrir mörgum árum síðan. Það er til lækning við kynlífsfíkn. Ég vil meina að kynlífsfíkn hafi ekkert með kynlíf að gera. Hann er bara fárveikur. Þessar lýsingar þessara kvenna, það fer um mann sem kvenmaður að heyra þetta. Mér finnst það mikil synd að þessi mikil hæfileikamaður í þessu fagi eigi við svona mikinn vanda að stríða. Maður er þakklátur Gwyneth Paltrow, Angelinu Jolie og þessum konum sem þorðu að koma fram og segja sína sögu og gerðu það það vel að hann er núna fyrir rétti.“ Ásakanir á hendur Wein­ stein komu upp í tengslum við metoo­byltinguna. Margrét segir byltinguna hafa verið af því góða. „Ég hef verið einstaklega lánsöm. Ég hef kynnst sterkum mönnum sem hafa virt það að ég er ákveðin og framsækin og dugleg og látið mig í friði á ann­ an hátt. Enda kannski búin að vera harðgift í þrjátíu ár og því leiðinlegur kvenkostur að fara eftir þannig séð en ég hef lent í karlmönnum, sem betur fer ekki oft. Það gerist þegar maður er að­ eins viðkvæmari, yngri og þegar maður styrkist þá breytist margt. Maður setur bara mörk og lend­ ir ekki illa í því. Ég held að þessi bylting hafi verið af hinu góða. Ef það er eitthvað eitt sem ég þyrfti að segja að hefði komið út úr þessari byltingu þá er það að það er meira af sterkum kvenpersón­ um og meira af sjónvarpsþáttum og kvikmyndum gert af konum, sem var gríðarlegur skortur á. Þetta nýtur gríðarlegra vinsælda, eins og við vitum. Þannig að þetta bara þurfti að gerast,“ segir Mar­ grét. Hún telur sig hafa þurft að vinna harðar í sínu fagi til að ná frama út af því að hún er kona. „Ég vil meina að ég hafi haft miklu meira fyrir því að hafa ver­ ið framleiðandi í gegnum Ísland á Kill the Poet sem kona en karl­ maður. Ég er að gera stórt ver­ kefni, tvöfalt „budget“ á við ís­ lenska mynd og ég hef ekki fengið eina krónu sem framleiðandi úr neinum ríkissjóðum eða styrk. Ég er nokkuð viss að ef ég væri karl­ maður þá hefði mér verið hjálp­ að hraðar og oftar og meira. Í Hollywood eru ekki margar kon­ ur framleiðendur, þótt það sé alltaf að aukast og bætast í hóp­ inn, sem betur fer. En þetta er töff bransi og ekki fyrir aukvisa að vera í honum.“ Lífið er ótrúlega einfalt Margrét og Jón Óttar giftu sig í Palm Springs árið 1996 og bjuggu síðan í Los Angeles í um sextán ár. Nú hafa þau snúið aftur til Palm Springs, nánar tiltekið Palm Des­ ert, þar sem þau hafa verið bú­ sett síðastliðin fimm ár. Varðandi daglega lífið segir Margrét það ekki einkennast af glamúr – þvert á móti. „Lífið mitt er ótrúlega „döll“ og einfalt. Ég vakna yfirleitt fimm á morgnana. Ég segi ekki að ég rjúki á fætur alveg strax held­ ur byrja á því að skoða tölvu­ póst og pæla aðeins í hlutun­ um. Svo fer ég af stað, byrja að hreyfa mig aðeins og fylgjast með því sem er að gerast. Síðan byrj­ ar dagurinn. Ég vinn mikið og er að vinna að mörgum skapandi verkefnum þessa dagana. Við för­ um á veitingastaði og mjög mikið í bíó. Við horfum mikið á bíó og sjónvarpsseríur í dag. Við förum í göngutúr á kvöldin og tennis og snemma að sofa. Þetta er ótrúlega glatað,“ segir hún og hlær. Lykill­ inn að farsælu hjónabandi þeirra Jóns Óttars felst að miklu leyti í því hve óhrædd Margrét hefur verið að leita sér sálfræðihjálp­ ar í gegnum tíðina. „Mín skoðun er sú að við erum með ranghug­ myndir um hjónabönd af því að ég held að við gerum of miklar kröfur á hinn aðilann og höld­ um oft að það sem við fáum næst sé miklu betra. Ég er mikið fyrir það að fólk sé í þerapíu, fyrst fyrir sjálft sig, því allar breytingar sem verða á lífi manns gerast innra með manni. Ég hitti mjög ung al­ veg stórkostlegan sálfræðing sem breytti lífi mínu. Ég fór í meðferð mjög ung, hætti að drekka ung og fór svo í þerapíu. Það var al­ veg stórkostlegt. Ég vildi að allir gerðu það. Flestir bera þetta fram á fimmtugsaldur og allt í einu byrja hlutir að springa.“ Hvernig á að vinna Donald Trump? Margrét er einnig rammpólitísk og hefur stutt vel fjárhagslega við bakið á Demókrataflokknum. „Ég fylgi eftir minni ástríðu og hugsjónum og reyni að taka þátt í að skapa betri heim,“ segir hún og styrkir nú Joe Biden, Eliza­ beth Warren og Kamölu Harris í aðdraganda forsetakosninga í Bandaríkjunum á næsta ári. „Ég held því fram að þetta verði sögu­ legustu kosningar okkar sam­ tíma. Hvernig á að vinna Donald Trump eða takast á við þetta fyrir brigði? Hann brýtur öll lög­ mál og er að mörgu leyti siðblind­ ur stjórnandi og leiðtogi og hefur kannski tekið því hlutverki mjög skringilega. Við erum vön því að vandi fylgi vegsemd hverri. Þarna kemur allt í einu maður sem brýt­ ur öll lögmál. Hann er dóni og hann vandar sig ekki og hann ger­ ir þetta sannarlega með sínu nefi og hefur sinn stíl. Ég held að hann verði ekki endurkjörinn. Ekki nema Rússar taki yfir og það er auðvitað hætta á því, því þeir eru ekki hættir. Þeir eru alls staðar. Það er eitthvað sem sagan mun segja mjög vel frá síðar en það ber öllum saman um það að þeir hafi haft mikil áhrif.“ Sorgir og sigrar Margréti er tíðrætt um hve erfiður kvikmyndagerðarbransinn er. Þá liggur beinast við að spyrja af hverju hún hafi enst svona lengi í honum? „Uppeldi mitt og uppvöxtur bjó mig undir þessa göngu. Það sem ekki drepur mann, herð­ ir mann. Það alveg sama hvaða verkefni við fáum í lífinu, það er alltaf einhver þroskaganga. Okkur líður alltaf mjög vel þegar við komumst út úr einhverjum erfiðum kafla. Þá hugsar maður: Þetta bjó mig undir þetta, og svo styrkjumst við öll á lífsins göngu. Ég er orðin þetta sterk á þessari göngu og er þakklát fyrir þessi erfiðu verkefni sem hafa orðið á vegi mínum, eins og verða á vegi okkar allra. Það er enginn undan­ skilinn því að lenda í ýmsu,“ segir Margrét og telur þau hjónin hafa haldið einkalífi sínu fyrir sig þrátt fyrir að hafa verið í sviðsljósinu í öll þessi ár. „Þegar við höfum gengið í gegnum hluti höfum við miðlað. Ég held að það sé gott að miðla því að það eru sigrar eins og sorgir og ekkert síður sorgir en sigrar í lífsgöngu alls fólks sem reynir að fara á eftir draumum sínum og vekur þar af leiðandi einhverja eftirtekt. En ég held samt að sem betur fer þá vitum við ekkert í raun hvað gengur á. „Be kind for everyone is fighting a hard battle.“ Ég held að þetta sé ótrúlega góð lífsspeki. Ég held að við séum of gagnrýnin á fólk án þess að vita í hverju það stendur.“ Útilokar ekki framboð Framundan hjá Margréti er verk­ efni með ítölskum leikstjóra með Gerard Depardieu í aðalhlutverki og endurgerð á erlendri kvik­ mynd sem verður gríðarstórt ver­ kefni. Margrét getur tjáð sig um hvorugt verkefnið, en þau verða kynnt innan skamms. Eftir þrot­ lausa vinnu síðustu ár er hún loksins að uppskera og segist ekki ætla að taka að sér gæluverkefni sem hún þurfi að borga með í bráð. „Ég sel mig orðið dýrt. Það verður þannig framvegis. Góðgerðarstarfsemi er lokið í bili eftir Kill the Poet. Það er búið að kosta okkur tugi milljóna að kom­ ast á þennan stað en færum við ekki fórnir þegar þarf? Ég held að allir athafnamenn, allir einstak­ lingar sem hafa sett eitthvað á stofn sem þeir hafa haft trú á og þurft að borga með sér og vinna mikið og fá minna borgað á með­ an þeir eru að koma því á kopp­ inn, sjái svo afraksturinn, það er alltaf eins. Það breytist aldrei. Maður leggur á sig þegar manni finnst það þess virði. Einhverra hluta vegna fannst okkur hjónun­ um það þess virði, að þrátt fyrir bankahrun og þá vitleysu sem var hér í gangi í kringum það, og kannski er enn þá,“ segir hún. Hún útilokar ekki að flytja aftur til Íslands, en sér það ekki ger­ ast í nánustu framtíð. Varðandi hennar aðra ástríðu í lífinu, póli­ tíkina, gæti hún vel hugsað sér að spreyta sig á þeim starfsvettvangi einhvern tímann. „Nú vil ég vera framleiðandi. Nú vil ég hjálpa stjórnmála­ mönnum og ­konum að vinna að góðum málefnum. Ég hef haft mikið fyrir því að komast á þenn­ an stað. Það eru bæði sjónvarps­ og kvikmyndaverkefni sem bíða. En kannski eftir það. Ég held að viska áranna hjálpi þér sem stjórnmálamaður. Ungir stjórn­ málamenn eru góðir en færustu stjórnmálamenn samtímans og sögunnar voru oft 55 ára og langt yfir það. Það virðist oft vanta hér í pólitík, visku áranna og reynslu í bland við ungt fólk. Það þarf að vera blanda.“ n „Uppeldi mitt og uppvöxtur bjó mig undir þessa göngu. Það sem ekki drepur mann, herðir mann. M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N Á góðri stundu Margrét ásamt forsetafrúnni Elizu Reid og leikstjórum House of Cardin. Útilokar ekki framboð Margrét er rammpólitísk. Mynd: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.