Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 28
25. október 2019KYNNINGARBLAÐÖryggisblaðið SECURITAS: Öryggishnappur Securitas – Öryggi þegar á reynir Öryggishnappur Securitas er hjálpartæki sem eykur öryggi fólks innan veggja heimilisins, en með notkun hans er fljótlegt og auðvelt að gera viðvart ef eitthvað kemur upp á. Öryggi öllum stundum Að hlakka til morgundagsins og horfa björtum augum á það sem er framundan er ofarlega í hugum allra. Flest langar okkur til að eiga ánægjulegt líf með ástvinum, ættingjum og vinum. Það að horfa á börnin sín og barnabörn vaxa og verða að fullgildum meðlimum samfélagsins veitir okkur ómælda ánægju og hugarró. Íbúum á besta aldri á Íslandi mun á næstu árum fjölga mikið. Hluti af þessum hóp verður líkamlega vel á sig kominn og mun geta notið lífsins til fulls þrátt fyrir hækkandi aldur. Þessi virki hópur vill hafa áhrif á sitt líf, áhugamál og samfélagsleg verðmæti. Hluti þessa hóps mun þurfa meiri aðstoð en vill á sama hátt og aðrir geta haft áhrif á líf sitt. „Það er sama hvar einstaklingar eru staddir á lífsleiðinni, hvort viðkomandi er orðinn aldraður eða býr við skert lífsgæði, þá vilja allir vera öruggir á heimilum sínum,“ segir Elsa Einarsdóttir, sölustjóri Securitas. „Vegna líkamlegra breytinga sem fylgja hækkandi aldri, skertri heilsu eða hreyfifærni skerðist jafnvægi fólks og viðbrögð verða seinni. Aðstandendur þessa hóps hafa oft verulega áhyggjur af fólkinu sínu, jafnvel þeim sem eru við góða heilsu. Þeir vilja draga úr óhöppum og slysum og auka öryggi síns fólks sem frekast er unnt. Með aðgát og fyrirbyggjandi aðgerðum á heimilinu er hægt að draga úr slysum og óhöppum eldri einstaklinga og þeirra sem búa við skerta getu,“ segir Elsa. Öryggishnappur Securitas „Öryggishnappurinn gagnast vel þegar að hnappþegi dettur, veikist skyndilega eða þarf aðstoð vegna líkamlegra einkenna án tafar. Um leið og ýtt er á hnappinn opnast talsamband við sérþjálfað starfsfólk á stjórnstöð Securitas,“ segir Elsa. Viðbrögð frá öryggishnöppum eru flokkuð sem forgangsboð og þeim er sinnt án tafar. Öryggisverðir Securitas bregðast við boðunum, koma á staðinn, grípa til þeirra aðgerða sem þörf er á hverju sinni. Öryggisverðir Securitas eru vel þjálfaðir í öllum viðbrögðum, margir þeirra hafa menntun sjúkraflutningamanna sem gerir þá sérstaklega hæfa til að aðstoða hnappþega í neyð. Þessi sérstaka þjálfun öryggisvarða Securitas er lykilatriði fyrstu mínútur eftir að kallað hefur verið á aðstoð, rétt og fljótt viðbragð hefur mikil áhrif á þann tíma sem endurhæfing tekur til að komast aftur af stað ef óhapp á sér stað. Þetta viðbragð getur í einhverjum tilvikum skilið milli lífs og dauða. „Securitas er með 12 bíla í hverfum borgarinnar, sem allir eru til taks allan sólarhringinn alla daga ársins,“ segir Elsa. „Það er alltaf stutt í næsta bíl og öryggisvörð sama hvar hnappþeginn býr og því er hjálpin fljót að berast.“ Öryggishnappurinn er borinn um háls eða um úlnlið eftir því hvað hverjum og einum þykir þægilegt. Tæknimenn Securitas setja allan búnað upp og kenna á hnappinn. „Það er afar einfalt að nota hnappinn, ýtt er á hnappinn og boð sendast til stjórnstöðvar Securitas og þá myndast talsamband stjórnstöðvar við hnappþegann,“ segir Elsa. Hnappþeginn getur gert vart við sig og upplýst um hvort aðstoðar er þörf eða ekki. Ef að ýtt er á hnappinn og ekki næst samband við hnappþega er tafarlaust sendur öryggisvörður á staðinn. Aukið öryggi með öryggiskerfi Með öryggishnappnum er hægt að setja upp einfalt öryggiskerfi sem eykur enn á öryggi hnappþega og aðstandenda hans. Reykskynjarar ásamt vatnsskynjurum eru oft nauðsynleg öryggistæki hjá þeim sem glíma við t.d. minnisleysi og elliglöp. Einnig er hægt að setja upp hreyfiskynjara sem nema óeðlilega umgengni í húsnæðinu og láta vita þegar slíkt gerist. Öryggiskerfi sem bjóða upp á app fylla aðstandendur ró um að allt sé í lagi hjá ættingjum sínum. Kostnaðurinn við slík öryggiskerfi er sáralítill þegar horft er til gagnsemi þeirra og öryggis þeirra sem maður elskar. Lyklar að heimilum hnappþega eru geymdir í öruggum geymslum í stjórnstöð Securitas. Þegar öryggisvörður fer í útkall til hnappþega er ástand hnappþega metið, kallað er á sjúkrabíl ef þess gerist þörf, haft er samband við ættingja og hnappþega sinnt eins alúðlega og hægt er. Hnappþegar Securitas eru heimsóttir tvisvar sinnum á ári. Í þeim heimsóknum er gengið úr skugga um að allur búnaður virki sem skyldi og upplýsingar um breytingar á heilsufari og því tengdar eru skráðar. Þessar upplýsingar nýtast vel ef hnappþegi þarf að fara á sjúkrahús, þá verður öll meðferð skilvirkari og hægt er að bregðast skjótt við í alvarlegum atvikum. Sjúkratryggingar Íslands og öryggishnappur Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða mánaðargjöld vegna öryggishnapps hjá þeim sem uppfylla ákveðin skilyrði. Í þeim tilfellum sendir læknir viðkomandi einstaklings læknisvottorð til Sjúkratrygginga. Eftir samþykkt niðurgreiðslunnar velur hnappþegi þjónustufyrirtæki. Securitas á farsælan feril í þjónustu og aðstoð við hnappþega í tugi ára, og þjónustar í dag á þriðja þúsund hnappþega. Hnappþegar Securitas eru afar ánægðir með þjónustuna og viðbragðið. Öryggishnappurinn er þó ekki eingöngu fyrir þá sem njóta niðurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands. Allir geta fengið öryggishnapp sem þess óska. Það er einfalt að sækja um öryggishnapp, það er eitt símtal til Securitas sem tekur við beiðninni og meðhöndlar hana þar til að hnappurinn hefur verið settur upp hjá viðkomandi. Í öruggum höndum með Securitas Með öryggishnapp Securitas er þeim sem eldri eru eða þeim sem ekki njóta fullrar færni, veittur farsæll tími, tími sem þeir geta notið með fjölskyldu, ættingjum og vinum, tími til að njóta afmælisdaganna og að vera með elskunni sinni heima hjá sér. Öryggishnappur Securitas er öruggt skjól þegar á reynir. Elsa ásamt hópi öryggisráðgjafa sem sinna málefnum hnappþega / Mynd: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.