Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 58
58 FÓKUS 25. október 2019 Leðurverkstæðið reykjavík býður upp á handunnin og kLæðskeraskorin karLmannsbeLti úr hágæða Leðri. Þá bjóðum við upp á mikið úrvaL af axLaböndum. síðumúLa 33 / 108 reykjavík / sími: 551 6659 / www.Lvr.is Leðurverkstæðið reykjavík á sér Langa sögu en upphaf Þess má rekja aLLt aftur tiL áranna fyrir seinna stríð. árið 1937 hóf Það starfsemi sína að víðimeL í reykjavík en í dag er Það tiL húsa með versLun og verkstæði að síðumúLa 33. AXLARBÖND FRÁ 4.990 KR. BELTI FRÁ 5.990 KR. Bitlaus en stílhreinn furðufarsi n Getur kvikmynd verið drasl og snilld til skiptis? n Af hverju er Jón Jónsson svona fyndinn? H vort sem okkur líkar það betur eða verr, þá þurfum við Íslendingar á Þorsta að halda núna, burtséð frá notagildi eða meintu ágæti lokavörunnar. Formúla þeirra kvikmynda sem Ísland framleiðir í bílförm- um er orðin skopstælingu líkust (aftur, burtséð frá gæðum) en á undanförnum þremur mánuð- um höfum við til dæmis fengið þrjár íslenskar kvikmyndir sem í grunninn snúast um miðaldra hversdagsfólk utan höfuðborgar- svæðisins sem upplifir stöðnun, vonleysi og brotna fjölskyldu. Samtímasögurnar eru yfirleitt vandaðar en húðaðar svo mik- illi grámyglu að áhorfendur fer þá eðlilega að þyrsta í nýtt bragð í þá flóru sem við höfum. Þar kemur Þorsti eins og kölluð, þótt lendingin sé allt önnur saga. Þorsti er hinn undarlegasti bræðingur; „gay vampíru-geira- mynd með sprautukláms- og trúarlegu ívafi“ hljómar eins og meiri brandari en lokaafrakstur- inn býður upp á, en með svona lýsingu er eins gott að myndin standi undir væntingum. Útkoma Þorsta er í eðli sínu eins og risastór mótsögn; hún er ódýr en aðstandendur bera ódýra yfirbragðið með stolti. Hún er illa leikin en nógu yfirdrifin til þess að það skipti litlu máli. Hún er subbuleg en gengur sjaldan nógu langt með eigin viðbjóð til að seðja viðbjóðshungur þeirra sem sjá hana (ekki nema viðkomandi finnist það sprenghlægilegt að sjá alltaf sama afskorna gerviliminn aftur og aftur). Efnislega er allt tekið af ákveðnum klisjulager en þó hefur tekist að salta inn ýms- um bröndurum sem bragðbæta steikina. Hæfileikafólkið í aftursætinu Myndinni er leikstýrt af þeim Steinda Jr. og Gauki Úlfarssyni (sem gerði meðal annars heim- ildamyndina Gnarr) og má bæði sjá hana sem sjálfstætt flipp og sem lokaþátt seríunnar Góðir landsmenn, sem félagarnir unnu saman að ásamt áhugaleik- hópnum X. Þættirnir eru í raun- inni eins og óvenjulega bitastætt baksviðsefni (í gerviheimildar- stíl) fyrir gerð Þorsta – og þar af leiðandi hluti af stóra gríninu. Skemmst er frá því að segja að viðkomandi fær eflaust meira út úr Þorsta ef hann eða hún hefur fylgst með sjónvarpsþáttunum þótt það sé ekki beinlínis skilyrði. En áhorfandi sá er þó líklegri til að fyrirgefa vankanta Þorsta öðr- um fremur. Leikhópurinn X er í besta falli misgóður, en þegar B- eða-C mynd er til umræðu er það eins og fylgihlutur ákveðins sjarma – og sennilega viljandi gert í þessu tilfelli. Það er líka eitthvað svívirðilega fyndið við það að setja reynda statista og áhugaleikhóp í burðarhlutverk og á móti leyfa reyndara fagfólki (á borð við Ingv- ar E. Sigurðsson, Halldóru Geir- harðsdóttur og makalaust mein- fyndinn Jón Jónsson) að hverfa í bakgrunninn. Þvert á það sem þó kannski mátti við búast er Hjörtur Steinason, lykilmaðurinn sjálfur, afskaplega hentugur í hlutverk samkynhneigðu vampírunnar með hjarta úr gulli og sundur- slitna belli í vasanum. Hulda Lind Kristinsdóttir er líka furðu efnileg á móti honum og sýnir mestu til- þrifin á skjánum – fyrir utan Unn- stein Manúel í hlutverki pylsu- sala, vissulega. Ég er smá – eins og sagt er – „on the fence“ með hann Jens gamla Jensson og hina meðlimi áhugaleikhópsins. Þetta er til- finning sem er gegnumgangandi út alla myndina. Á einum tíma- punkti er stutt í leiftrandi kjána- hroll en svo kemur augnablik sem fer hringinn og verður að gulli. Frasarnir hjá Jens eru sumir svo slæmir að þeir verða nánast frá- bærir. Ef markmið Þorsta var að vera drasl og snilld til skiptist, þá tókst henni það með látum. Konga í svartmyrkri Það verður þó seint rifið af Þorsta, þrátt fyrir takmarkað fram- leiðslufjármag , hvað my din er stílhrein á flestum sviðum. Hljóð- vinnsla, myndataka og ekki síður tónlistin er dýnamísk og rammar inn gómsætan „grindhouse“-fíl- ing. Hápunktur myndarinnar er þó undarlegur teiknimyndakafli – sem hefur nákvæmlega ekkert með afgang framvindunnar að gera – en það skrifast á þau Jón Gnarr og Andreu Björk Andrés- dóttur grafíker að taka gegnsósa sýru alla leið. Í rauninni hefði myndin alveg mátt stíga oftar út fyrir „innihaldið“ og bæta ofan á ringulreiðina, því verkið sem eftir stendur er oftar en ekki örlítið þunnt og mætti vera betur tennt, ef til vill blóðugra. En eins og áður segir bætir Þorsti við nýjum lit í bíóflóru landans. Myndin treður sér eins og óboðinn gestur í dannað sveitapartí íslenskrar kvikmynda- gerðar og krefst þess að gamla fólkið á svæðinu spili konga alls- bert í svartmyrkri. Það að hægt sé að skemmta sér yfir henni ann- að slagið er í rauninni bónus, en bókað er að myndin skapi sér eins konar „költ“-sess þegar fram í sækir hjá hópum sem samein- ast í bjór- eða jónupartí til þess eins að hlæja að myndinni jafnt og með. Ekki er ólíklegt að með- limir Leikhópsins X verði á meðal þeirra. n Hverjum góðum brandara fylgir einn vondur, en myndin stíllúkkar fyrir litla peninginn og bragðbætir íslenska bíóflóru með nýjum lit. Af „gay vampírumynd“ að vera mætti hún þó vera betur tennt – og meira „gay.“ G læ pu r o g sa m vi sk a Í stuttu máli:Tómas Valgeirssontomas@dv.is Sjáðu þessa ef þú kannt að meta … P la ne t T er ro r Th ir st Sl ee pl es s in S ea tt le Ch ild E at er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.