Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 34
25. október 2019KYNNINGARBLAÐÖryggisblaðið
Aktu af öryggi og með góða
umhverfissamvisku í allan
vetur á Green Diamond
Harðkornadekk er ekki það sama og harðkornadekk þegar kemur að því að
skipta út hjólbörðum. „Það eru
aðilar að auglýsa harðkornadekk
til sölu sem komast hvergi nálægt
því að standast samanburð við
Green Diamond harðkornadekkin.
Ég er ekkert hræddur við að
fullyrða að dekkin frá okkur
eru bestu demantsdekkin á
markaðnum, ef ekki bara bestu
dekkin yfirleitt,“ segir Kristinn
Sigurðsson. „Mestu skiptir að
iðnaðardemanturinn nær inn
úr öllu slitlagi dekksins. Þetta er
mjög mikilvægt þar sem það eru
tvisvar til þrisvar sinnum meiri
líkur á því að ökumaður á slitnum
hjólbörðum valdi umferðaróhappi
en ökumaður á nýlegum dekkjum.“
Iðnaðardemanturinn í Green
Diamond harðkorndekkinu sést
vel, en hann er í öllu slitlagi
dekksins, sem eykur öryggi
bifreiðarinnar mjög mikið.
Íslenskt hugvit slær í gegn
Green Diamond hafa verið
framleidd í Evrópu í meira en í 15
ár samkvæmt einkaleyfi íslenskra
frumkvöðla sem fengið var upp úr
síðustu aldamótum. „Markmiðið
var að leysa nagladekkin af hólmi
á suðvesturhorni Íslands. Eins og
menn vita spæna nagladekkin
upp malbikið sem eykur mikið á
svifryksmengun sem veldur einu af
erfiðustu heilsufarsvandamálum
í Evrópu. Þess má geta að allt
að 25% af svifryksmyndun á
höfuðborgarsvæðinu er talin vera
af völdum nagladekkjanotkunar.
Svo má bæta við að rannsóknir
dr. Haraldar Sigþórssonar
umferðaverkfræðings hafa sýnt
fram á hversu ofmetið öryggi
nagladekkja er í umferðinni
samanborið við aðrar gerðir
vetrardekkja.“ Haraldur dregur
niðurstöður sínar fram með
eftirfarandi hætti:
• Ávinningur umferðaröryggis
af völdum nagladekkja er
mjög lítill.
• Nagladekk veita falska
öryggiskennd. (Ökumenn á
negldum hjólbörðum aka að
jafnaði allt að 10–15% hraðar
því þeir „trúa“ því að þeir búi
við meira öryggi.)
• Slitnir negldir hjólbarðar eru
lélegir rétt eins og allir eyddir
hjólbarðar (Innsk. Á þó miklu
síður við harðkornadekkin
frá Green Diamond þar sem
demanturinn er í öllu slitlagi
dekksins).
• Hugarfar ökumanna hefur
meira að segja en naglar í
hjólbörðum.
• Ónegldir hjólbarðar eru
alltaf að batna og verða
fýsilegur kostur.
• Svifryk frá negldum
hjólbörðum er mjög
heilsuspillandi.
• Notkun negldra hjólbarða
veldur hávaðamengun.
• Hemlunarvegalengd á auðu
malbiki eykst aðeins ef ekið er
á negldum hjólbörðum.
Harðkornadekk frá Green Diamond
virka fullkomlega allan ársins hring í
nánast öllum aðstæðum. Á veturna
veita 2 mm iðnaðardemantarnir
gott grip í ísingu, og í rigningu
nær demanturinn í gegnum
vatnsfilmuna, grípur í malbikið og
eykur því rásfestu bifreiðarinnar til
muna. Dekkin fást í 14–18 tommu
stærðum sem henta bílum frá
fólksbílum til minni langferðabíla.
Jaðrar við vörusvik
„Þegar kom að því að sækja um
einkaleyfið láðist mönnum að skrá
nafnið „harðkornadekk“ og skilgreina
hvað mætti teljast sem slíkt. Í Green
Dimond fólksbíladekki eru 300–400
grömm af 2 mm iðnaðardemöntum
í hverju dekki fyrir sig, sem dreifast
í allt slitlag dekksins. Þegar dekkin
slitna þá varir virknin allan líftíma
dekkjanna. Hjá samkeppnisaðilum
er algengt að kornin sé einungis
að finna í ysta slitlagi dekkjanna
og þegar þau slitna, þá eru þau
einfaldlega ekki harðkornadekk
lengur. Það er ekkert eftir af
demantinum í þeim. Green Diamond
dekkin innihalda jafnvel yfir tíu
sinnum meira af iðnaðardemöntum
en dekk frá samkeppnisaðilum sem
auglýsa harðkornadekk. Þegar
litið er á þessar tölur sést að hér
er alls ekki um samanburðarhæfa
vöru að ræða og jaðrar það, að
tala um harðkornadekk í flestum
tilfellum, við fátt annað en vörusvik,“
segir Kristinn og bætir við að
Green Diamond harðkornadekkin
séu einu dekkin sem standa undir
þeim fullyrðingum sem haft er um
harðkornadekk.
• Fjöldi prófana hefur verið
gerður af óháðum aðilum á
eiginleikum Green Diamond
harðkornadekkjanna.
• Í slitprófun á demantsdekkjum
kom fram, að jafnaði slíta
harðkornadekk malbikinu
fjórtán sinnum minna en negld
dekk.
• Í prófun á móti negldum
dekkjum á blautum ís við 0°C
kom fram að demantsdekk
tóku negldum dekkjum
fram þegar dekkin rúlla á
yfirborðinu líkt og við ABS-
hemlun eða í keyrslu.
• Hljóðmengunarpróf sýndi
fram á að við 60 km hraða
framkölluðu demantsdekkin
sama hávaða og venjuleg dekk
á meðan nagladekk gáfu frá sér
2–3 sinnum meiri hávaða.
• Prófun á blautum ís við
frostmark (þegar glæran
læðist að okkur) sýndi fram á
að í beygjuprófi voru Green
Diamond harðkornadekk 32%
betri en næstbesta dekkið og
í bremsuprófi voru þau 36%
betri en næstbesta dekkið.
Einu umhverfisvænu dekkin á Íslandi
Það er leitun að vöru sem
stuðlar að jafnmikilli sjálfbærni
og umhverfisvernd og Green
Diamond harðkornadekkin.
„Þetta getum við fullyrt þar sem
við framleiðslu þeirra er notast
við eldri belgi sem upphaflega
voru framleiddir fyrir fleiri en
eitt slitlag. Framleiðslutækninni
við endursólningu hefur fleygt
mikið fram og notumst við við
sambærilega tækni og þekkist
við endursólningu hjá Formúlu 1
og í flugvélabransanum, s.k. „strip
winding“ aðferð. Þetta þýðir að
nýja dekkið er nálægt 70% eldri
belgur sem er endurnýttur og við
það sparast á bilinu 50–100 lítrar
af jarðefnaeldsneyti við framleiðslu
á einum dekkjagangi. Okkur,
sem hjólbarðaframleiðendum,
ber siðferðisleg skylda til þess
að endursóla dekk og stuðla
þannig að aukinni sjálfbærni og
umhverfisvernd. Með því einu að
leysa nagladekk af hólmi, kemur
notkun harðkornadekkja í veg fyrir
þá miklu svifryksmengun sem
annars hefði orðið. Green Diamond
harðkornadekkin hafa mjög góða
endingu, en dæmi eru um þau
endist allt að 75.000 km. Með betri
endingu og löngum líftíma er enn
fremur hægt að minnka framleiðslu
og flutning á dekkjum.“
Þessir aðilar standa við stóru
orðin í umhverfisvernd!
„Það er komin góð reynsla á notkun
á Green Diamond dekkjum frá
traustum og ábyrgum aðilum en
við erum m.a. í traustu sambandi
við Hafnarfjarðarbæ, Isavia, Ístak,
Öryggismiðstöðina og fjölda aðra
stóra aðila. Ístak kaupir af okkur
nálægt 150 dekk á hverju einasta
ári. Þessi viðskipti eru eðlilega komin
til vegna almennrar ánægju með
dekkin, en einnig sannarlega vegna
stefnu fyrirtækjanna og stofnananna
um að stuðla að aukinni sjálfbærni
og umhverfisvernd. Í ljósi stöðugt
aukinnar umræðu um mikilvægi
umhverfisverndar og aukinna
loftgæða þá trúum við því að mörg
fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hjóti
að skoða til hlítar þann möguleika að
setja bifreiðar sínar á umhverfisvæn
Green Diamond harðkornadekk.“
Hægt er að panta Green Diamond
harðkornadekk með því að senda
tölvupóst á panta@hardkornadekk.
is eða í síma 694-7720.
Hægt er að sækja pöntuð dekk í
Dekkjaþjónustuna að Auðbrekku 2 í
Kópavogi eða fá fría heimsendingu
innan höfuðborgarsvæðisins.