Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 66
66 25. október 2019STJÖRNUSPÁ stjörnurnar Spáð í Afmælisbörn vikunnar n 27. október Jóhann Berg Guðmundsson knattspyrnukappi, 29 ára n 28. október Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi alþingismaður, 47 ára n 29. október Karen Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, 39 ára n 30. október Jón Jónsson tónlistarmaður, 34 ára n 31. október Sigríður Björk Bragadóttir, eigandi Salt eldhús, 59 ára n 1. nóvember Ólafur Þór Jóelsson fjölmiðlamaður, 47 ára n 2. nóvember Helga Rós V. Hannam búningahönnuður, 51 árs T ónlistarmaðurinn Krist- inn Óli Haraldsson, sem er betur þekktur sem Króli, er kominn á fast með Ragn- hildi Birtu Ásmundsdóttur, nema í samtímadansi í Listaháskóla Ís- lands. DV fannst því tilvalið að athuga hvernig þau eiga saman ef rýnt er í stjörnumerkin. Ragnhildur er bogmaður og Króli er sporðdreki. Ef þessi tvö merki vilja að sambandið verði farsælt og langlíft þá verða þau að fara sér hægt, gefa sér tíma í að kynnast hvort öðru undir yfir- borðinu. Ef þessi tími er ekki tek- inn þá gætu þau hæglega farið fram úr sér og þá flosnar fljótt upp úr sambandinu. Þessi þolinmæði á fyrstu vikum sambandsins mun borga sig. Bogmaðurinn þrífst á breyting- um og er einstaklega jákvæður. Því gæti bogmanninum liðið óþægi- lega í byrjun ástarsambands ef sporðdrekinn er of ágengur og athyglisfrekur. Sporðdrekinn þarf því aðeins að tóna tilfinn- ingar sín- ar niður þannig að hann geti náð einhvers konar millivegi með bogmanninum. Bæði þessi merki eru ævin- týragjörn og eru til í að kanna nýjar lendur, læra og þrosk- ast. Það er í raun það sem gerir þau náin – þessi endalausa upp- spretta nýrrar upplifunar sem þau deila. Þetta er samband sem er alltaf mjög lifandi og mikið í gangi í kringum þessi tvö merki. Bogmaðurinn gæti hins vegar átt erfitt með þrjósku sporðdrek- ans og sporðdrekanum finnst bogmaðurinn stundum of mikil kappsmanneskja. En eins og áður segir, þá gildir gullni meðalvegur- inn í þessu sambandi sem bæði merki verða að reyna að finna. n Naut - 20. apríl–20. maí Fiskur - 19. febrúar–20. mars Vatnsberi - 20. janúar–18. febrúar Steingeit - 22. desember–19. janúar Bogmaður - 22. nóvember–21. desember Sporðdreki - 23. október–21. nóvember Vog - 23. sept.–22. október Meyja - 23. ágúst–22 .sept. Ljón - 23. júlí–22. ágúst Krabbi - 22. júní–22. júlí Tvíburi - 21. maí–21. júní Stjörnuspá vikunnar Gildir 27. október – 2. nóvember Þú býrð yfir daðurofurkröftum í þessari viku, og raun næstu vikur. Það geislar af þér sjarminn og þú nærð að heilla alla sem á vegi þínum verða. Einhleypir hrútar hafa samt engan áhuga á að gera meira með þessa krafta en að daðra á meðan lofaðir hrútar njóta þess út í ystu æsar að krydda samlífið. Þú ættir að byrja vikuna á að ganga frá lausum endum og koma öllu í röð og reglu sem þú hefur látið sitja á hakanum. Þér á eftir að líða betur með að einfalda lífið og gott væri ef þú myndir líka taka til í kringum þig og henda, eða gefa allt það sem þú þarft ekki. Nægjusemi er lykill þinn að hugarró. Þú ert rosalega einbeitt/ur þessa vikuna. Þú ert búin/n að ganga í gegnum tímabil þar sem þú gerir bara rétt svo það sem er nóg og er búin/n að lalla í fyrsta gír alltof lengi. Nú er komið að þér að taka líf þitt til baka, fylla þig af orku með hreyfingu og góðu mataræði, og láta alla draumana rætast sem þú hélst að þú gætir aldrei gert. Lofaðir krabbar ættu að finna fleiri tækifæri til að hækka hitastigið í svefnherberginu og finna nýjar leiðir til að koma makanum á óvart. Ef lífið í svefn- herberginu er heilbrigt og gott smitast það út í hið daglega líf og þú fyllist áður óþekktu sjálfstrausti í samskiptum þín- um við fjölskyldu, vini og vinnufélaga. Þú ert voðalega þreytt/ur þessa dagana og hugsanlega ertu ekki að fá nægan svefn. Þú skalt setja það í forgang í þessari viku að koma þér í rútínu. Prófaðu að hafa fastan háttatíma og vakna á hverjum morgni á sama tíma. Þá hefurðu alltaf fastan punkt í tilverunni, alveg sama þótt óreiða ríki á öðrum sviðum. Það er ákveðin breyting innra með þér. Þú nærð að sleppa lógík og skynseminni í smá stund og lætur tilfinningar og hjartað ráða för. Þú átt rétt á því og þú hefur líka gott af því að vera ekki svona smámunasöm/samur alltaf. Vittu til – þú gætir komið þér sjálfri/um á óvart með þessari hugarfarsbreytingu. Þú ert metnaðarfullur einstaklingur að eðlisfari og þessa dagana veltir þú mikið fyrir þér hvernig þú ætlar að fara að því að ná öllum markmiðum þínum í ljósi breyttra aðstæðna heima fyrir og í vinnunni. Þú veist að þú þarft að fjármagna þessi markmið og því veitir það þér hugarró að setjast niður og gera plan um hvernig þú ætlar að haga þínum málum næstu vikurnar. Það hefur verið einhver lægð yfir þér. Ekkert til að hafa áhyggjur af, en það er mikilvægt að þú komir þér upp úr þessari lægð hratt og örugglega svo þú náir að njóta lífsins til hins fyllsta. Þú færð upp- ljómun um hvað þig langar að taka þér fyrir hendur næst og ferð á fullt að reyna að komast að endatakmarkinu. Þú hefur lítinn áhuga á að vera mikið á meðal fólks næstu daga og vikur. Þig langar frekar að halda þig inni í kósígall- anum og hjúfra þig undir teppi, enda orðið hreint út sagt skítkalt. Það er í góðu lagi að vera einn með sjálfum sér og mikil kúnst að kunna það. Þá kúnst kannt þú betur en flestir aðrir. Njóttu! Það hefur verið ótrúlega mikið að gera hjá þér síðasta mánuðinn og eitt verkefni tekur við af öðru, bæði í leik og starfi. Nú er hins vegar annríkinu að ljúka og þú ert í óðaönn að skipuleggja skemmtilegt frí þar sem þú endurhleður batteríin, hittir fólk á sama reki og þú og nærð að slaka almennilega á. Í vinnunni er búið að vera mikið að gera hjá þér og þú hefur verið að vinna að verkefni sem gæti svo sannarlega komið þér á kortið. Nú styttist í lokahnykkinn og vittu til – þetta verkefni mun hafa svo góðar afleiðingar fyrir þig og koma þér á þann stað sem þig hefur alltaf dreymt um að vera á. Ekki gefast upp! Mér sýnist þú vera á höttunum eftir nýju húsnæði og ætlir jafnvel að stækka við þig. Slík ákvörðun krefst mikillar umhugsunar og þú þarft að vega og meta hve mikið þú ræður við. Þú vilt náttúru- lega ekki demba þér í skuldasúpu með tilheyrandi áhyggjum. Taktu yfirvegaða ákvörðun, skoðaðu markaðinn og stattu föst/fastur á þínu. Hrútur - 21. mars–19. apríl Lesið í tarot Eyþórs Arnalds Króli og Ragnhildur á vængjum ástarinnar – Svona eiga þau saman Ragnhildur Birta Ásmundsdóttir Fædd 9. desember 1999 Bogmaður n örlát n góð kímnigáfa n heiðvirð n opinská n lofar upp í ermina á sér n óþolinmóð Kristinn Óli Haraldsson Fæddur: 2. nóvember 1998 Sporðdreki n ráðagóður n hugrakkur n ástríðufullur n þrjóskur n á erfitt með að treysta n dulur Ekki verður aftur snúið H lutabréfaviðskipti Ey- þórs Arnalds, borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins, í Morgunblaðinu hafa ver- ið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna daga og hafa ein- hverjir kallað viðskiptin „sýndar- viðskipti“ og talið þau vafasöm. DV ákvað því að lesa í tarotspil borgarfulltrúans, en lesendum er bent á að þeir geta sjálfir dregið sér tarotspil á vef DV. Á að gefa eftir Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Eyþóri er Stríðsvagninn. Það táknar metnaðinn og drifkraft- inn sem býr innra með Eyþóri og hann virðist geta náð öllum sínum markmiðum, ekki síst af því að hann veit hvar tæki- færin liggja. Hann er líka óhræddur við að fara ótroðnar slóðir í líf- inu. Hann er hins vegar ekki að nýta hæfileika sína rétt og þarf að leysa úr þeim vanda. Hann þarf að passa það í framtíðinni að vera varkár þegar hann sleppir tækifærum úr greip- um sínum. Hann má ekki sýna of mikið fljótræði og verður að spá og spekúlera vel í hlutunum. Mannlegi þáttur- inn á það til að standa í veg- inum fyrir Eyþóri og er honum ráðlagt að gefa eftir ef vandamál koma upp milli hans og þeirra sem hann umgengst í starfi sem og persónu- lega. Eyþór er fær um að takast á við framtíðina ef hann agar sjálf- ið með jákvæðu hugarfari og jafn- vægi. Krefjandi áskoranir Næst er það Keisarinn. Merkilegt spil sem sýnir að reynsla Eyþórs, bæði í pólitík og viðskiptum, mun koma sér vel. Framundan hjá honum er stöðuhækkun í núver- andi starfi en líklegra er að hann breyti um starfsvettvang og tak- ist á við nýjar, krefjandi áskoran- ir. Eyþór stendur nú frammi fyr- ir tækifæri sem sjaldan birtist og ætti hann að kanna möguleika framtíðarinnar gaumgæfilega. Ásetningur Ey- þórs og ekki síður skipulag og hagkvæmni mun leiða hann næstu misseri að settu marki. Hann skal einnig hafa í huga að velferð náungans kemur honum lengra en hann grunar. Brúðkaup í vændum? Loks er það spilið Breytingar. Einn kafli er að enda hjá Eyþóri og nýr um það bil að hefjast. Hann skal hafa það hugfast að fagna þegar kaflanum lýkur, sama hve erfiður hann var. Hér eru nefni- lega á ferð breytingar til batnað- ar sem Eyþór mun verða var við fyrr en síðar. Þessar breytingar gætu verið brúðkaup, flutningar eða fyrrnefnt nýtt starf. Eyþór og fyrrverandi eiginkona hans fóru nýverið hvort í sína áttina, en hugsanlega hefur ný kona fang- að hjarta borgarfulltrúans. Eyþór þarf að hafa hugfast að þessar breytingar gætu orðið erf- iðar, eins og breytingar eru oft, og að- lögunarhæfni hans kemur sér því vel í þessu tilviki. Þó að breytingarnar taki á tekur Ey- þór þeim fagn- andi. Ekki verður aft- ur snúið þar sem hann gefur fortíðina upp á bátinn og tekur opnum örmum utan framtíð- inni og tækifærunum sem bíða hans. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.