Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 17
FÓKUS - VIÐTAL 1725. október 2019 slíkum aðstæðum, þegar að þeim er vegið. Skotið hafnaði á vegg rétt fyrir neðan eldhúsgluggann. Það vildi til að unnusta Ágústs var einmitt með lögregluna á Selfossi í sím- anum á sama tíma og skotinu var hleypt af. Í frumskýrslu lögreglu kem- ur fram að lögreglan á Selfossi hafi óskað eftir því að sérsveit lögreglustjóra myndi aka í for- gangsakstri að húsinu. Vopn- aðir lögreglumenn lögðu um- svifalaust af stað frá Reykjavík. Þegar lögreglubifreiðin var stödd við syðri námu Lambafells á Þrengslavegi mætti hún svartri Volkswagen-bifreið og stöðvaði hana. Fjórmenningarnir voru í bifreiðinni. Undir mottu í far- angursrými lá svört haglabyssa. Fjórmenningarnir voru hand- teknir og færðir í fangaklefa. Brotnaði niður Ágúst segir atburðarásina næstu daga þokukennda. Það hafi ver- ið erfitt að lesa fréttir í fjölmiðlum um málið. „Það kvisuðust einhverjar sögusagnir um að þetta hefði ver- ið tengt dópi og undirheimun- um. Ég hef aldrei snert fíkniefni og myndi aldrei gera. Ég fékk líka símtöl frá fréttamönnum. Ég skellti strax á.“ Ágúst segir atburðinn stöð- ugt hafa sótt á hann næstu vikur og mánuði, og að sumu leyti enn í dag. „Ég fékk martraðir á nóttunni og hrökk upp. Mér brá við að heyra minnstu hljóð fyrir utan húsið og fór í vörn. Það er meira að segja ennþá þannig í dag, ef ég heyri einhver hljóð eða læti fyrir utan húsið þá hrekk ég við. Ofan á þetta bættust eldri áföll, ýmiss konar hlutir úr fortíðinni sem ég hafði ekki gert upp,“ segir hann og bætir við að hann hafi tekið með- vitaða ákvörðun tólf ára gamall um að hann ætlaði ekki að tala um tilfinningar sínar. Þegar hann ólst upp var alkóhólismi til staðar. Það hafði áhrif. Líkt og svo margir þá tókst Ágúst á við atburðinn með því að grafa allt saman niður og halda áfram með daglegt líf: vinna, borða og sofa. Hann vildi líka vera sterkari aðilinn, vera til staðar fyr- ir unnustu sína og stjúpdóttur. Það átti eftir að draga dilk á eftir sér. „Svo kom að því að ég fékk bara taugaáfall. Einn daginn fékk ég bara taugaáfall. Ég fór úr vinnunni, settist út í bíl, keyrði í burtu og brotnaði niður. Ég hef ekki unnið síðan.“ Ágúst fékk hjálp í gegnum vin sinn sem hafði sótt tíma hjá geðlækni. „Hann sagði læknin- um að hann yrði að taka við mér. Ég fékk símtal samdægurs. Það bjargaði mér.“ Augljós ásetningur Ágúst segir vinnubrögð lögreglu í málinu hafa verið til fyrirmyndar. Tekið hafi verið á málinu af mikilli fagmennsku. Hann gagnrýnir hins vegar vinnubrögð ákæruvaldsins. Fjórmenningarnir voru einungis kærðir fyrir vopnalagabrot. Þú telur að þau hafi átt að vera kærð fyrir til dæmis tilraun til manndráps eða eitthvað alvar- legra? „Já, alveg hiklaust. Vegna þess að þetta var augljós brotavilji. Þeir höfðu fyrir því að leita að húsinu og það var alveg augljóst hvað þeir ætluðu að gera.“ Ágúst og unnusta hans lögðu bæði fram bótakröfu á hendur fjórmenningunum. Fram kem- ur í kröfubréfi að um hafi verið að ræða „sérstaklega fólskulega og hættulega árás þar sem skot- vopni var beitt“ og að telja verði að hending ein hafi ráðið því að skotið hæfði rúðuna í eldhúsinu og þannig hugsanlega einnig tjón- þola eða sambýlismann hennar sem voru inni í húsinu.“ Á öðrum stað segir að líta verði til þess að árásin átti sér stað á heimili parsins og því gróflega brotið gegn friðhelgi heimisins. Ekkert kom hins vegar út úr bótakröfunni. „Ég fékk einhverjar 47 þúsund krónur í bætur, vegna skemmda á húsinu. Það var allt og sumt.“ Vill hjálpa öðrum Ágúst er í dag í prógrammi hjá VIRK og ber því vel söguna. Hann sækir tíma hjá sálfræðingi og það hefur reynst honum vel. Hann tekur einn dag í einu. Fyrr á árinu tók Ágúst stórt skref og birti færslu á Facebook þar sem hann opnaði sig að hluta til um baráttuna síðustu ár. „Rétt tæpum sex árum eft- ir þetta eru loksins komnar út- skýringar. Ég er kominn með PTSD-greiningu og útskýrir það rosalega margt sem hefur verið í gangi hjá mér í gegnum síðustu ár. PTSD er Post Traumatic Stress Disorder eða áfallastreituröskun á íslensku. Ég mun byrja í með- ferð við þessu von bráðar og ætla að koma þessu á bakvið mig. Ég óska engum að fá þennan ófögn- uð í sitt líf. Þetta hefur plagað mig miklu meira en mér mögu- lega datt í hug.“ Á öðrum stað ritaði hann: „Ég er að reyna að hafa þetta þannig að ég skammist mín ekki fyr- ir þetta. Ég hitti fólk reglulega sem spyr „hvað ég sé að gera og svona“ eftir að ég hætti að vinna. Ég finn einhvern veginn alltaf fyrir smá skömm varðandi svona veikindi. Ég fer að afsaka mig og þannig. Mig langar það ekki og ég þarf þess ekki.“ Hann vonar að hans frásögn muni kannski hjálpa einhverjum þarna úti sem er að glíma við af- leiðingar áfalla. Það er mikilvægt að vita að maður er ekki einn. „Ég hef mikið tekið eftir því undanfarið, að fólk tali við mig, þar sem það segist hafa verið í svipaðri stöðu og fengið smá pepp og byr undir sína vængi við að sjá mig opna mig aðeins um þetta. Ég hef oft staðið orðlaus yfir fólki sem ég þekki kannski ekki neitt náið. Þau koma til mín og þakka mér fyrir þennan stat- us. Mér finnst það bara frábært að getað hjálpað einhverjum, því nógu djöfulli er þetta erfitt fyrir. Ég er mikið í bílum og bíladellu, hef hitt stráka þar sem hafa opnað sig við mig eftir þenn- an status. Bara síðast var það í byrjun þessa mánaðar. Ég hitti kunningja minn úr bílabrans- anum. Eftir mikið spjall sagði hann mér frá heilmiklu sem er að hrjá hann og hans taugaáfalli, sem nánast enginn vissi af. Hann hafði orð á að það hefði verið svo mikill léttir þegar hann sá minn status, að hann væri ekki einn.“ n „Það kvisuðust einhverjar sögu- sagnir um að þetta hefði verið tengt dópi og undirheimunum. Ég hef aldrei snert fíkniefni og myndi aldrei gera. Dró dilk á eftir sér Árásin hafði djúpstæð áhrif á líf Ágústs. M Y N D IR : E Y Þ Ó R Á R N A S O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.