Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 32
25. október 2019KYNNINGARBLAÐÖryggisblaðið
PRONET:
Háþróuð öryggistæki og eftirlitskerfi
fyrir heimili og fyrirtæki
Pronet er sérhæft fyrirtæki á sviði fjarskiptalausna með áratuga reynslu af
uppbyggingu á ljósleiðarakerfum og
öðrum fjarskiptakerfum, öryggis- og
myndavélakerfum, bæði á Íslandi og
erlendis.
Pronet rekur öfluga
framkvæmdadeild með
starfsmönnum sem hafa viðamikla
reynslu úr tæknigeiranum.
Tækjabúnaður fyrirtækisins
samanstendur af nýjustu og
bestu tækjum sem völ er á.
Starfsmennirnir eru þrautþjálfaðir í
að leysa öll verkefni, stór sem smá,
hvort sem um er að ræða byggingu
nýs kerfis, eða mælingu, úttekt eða
viðhald eldri kerfa.
Pronet rekur öfluga heildsölu/
smásölu og flytur m.a. inn efni fyrir
lagna- og netkerfi, verkfæri, raftæki
o.fl. Styrkur fyrirtækisins felst í að
bjóða vörur á mjög hagstæðu verði,
en kannski ekki síður að vörurnar eru
valdar af fagmönnum með mikla
reynslu.
Helstu birgjar Pronet í
öryggiskerfum eru Tiandy
(myndavélar og myndþjónar), Protec
(brunaviðvörunarkerfi), Digifort
(myndavélahugbúnaður) og SecoLink
(öryggiskerfi).
Tiandy – öryggismyndavélar og
vídeóþjónar
Frá Tiandy býður Pronet upp á
myndavélar frá 2Mp upp í 12. Til eru
vélar með föstum linsum, stillanlegum
(varifocal) og stýranlegum
(motorised). Ávallt eru til a.m.k. tíu
gerðir á lager hverju sinni. Einnig
eru í boði PTZ-vélar með frá 20
og upp í 44 x optical aðdrátt sem
staðalbúnað.
Enn fremur eru í boði vídeóþjónar
frá Tiandy (NVR upptökutæki) frá 4
og upp í 80 rása með 1 og upp í 8
harða diska. Þessi tæki eru bæði til
með PoE og án. Einnig eru til PoE-
beinar til að bæta við kerfum.
Kerfin eru einföld í uppsetningu
og stillingum. Reyndar eru flest kerfi
afhent stillt og tilbúin í uppsetningu ef
viðskiptavinir velja að setja upp sjálfir.
Pronet setur einnig upp tengingu við
síma og spjaldtölvur fyrir viðskiptavini,
þeim að kostnaðarlausu.
Protec – brunaviðvörunartæki
Protec Algo–Tec(tm) 6100 er
hringtengt, stafrænt og tölvustýrt
eldskynjunar- og viðvörunarkerfi
sem hentar fyrir litlar og meðalstórar
byggingar, s.s. verslanir, hótel og
skrifstofur. Stjórnborð kerfisins
er hannað og smíðað af Protec
og uppfyllir EN 54-2 og 4
eldvarnarstaðla ESB. Stjórnborðið er
hægt að festa á vegg, en einnig hægt
að fella það inn, sé þess þörf.
Algo–Tec 6100 stjórnborðið er
hringtengt með getu til að tengjast
og stýra 192 tengipunktum, auk
þess að geta tengst og stjórnað
öllum stjórnborðum, nemum,
viðvörunarbjöllum, viðvörunarljósum
og handvirkum neyðarboðum.
Algo–Tec 6000PLUS línuna er
einnig hægt að tengja inn í Algo–
Tec 6300 upplýsingaskjái sem sýna
viðburði með sjálfvirkum flettingum
á texta.
Með þeim möguleikum sem þetta
kerfi býður upp á er hægt að byggja
upp öflugt og öruggt stafrænt
eldvarnakerfi, með mun einfaldari
lagnavinnu en áður, með þeim
sparnaði sem því fylgir.
Fjöldi aukahluta er fáanlegur
með stöðinni. Optískir reykskynjarar,
skynjarar með viðvörunarbjöllu,
hitanemar, sambyggðir reyk- og
hitanemar, handboðar, geislanemar,
loftstokkanemar, sírenur og margt
annað.
ProPoint PLUS Aspirating er
reyksogskerfi, sérstaklega hannað
fyrir loftstokka, lyftugöng og t.d.
fangelsi eða aðra staði þar sem
rafbúnaður hentar ekki. Í staðinn fyrir
hefðbundna reykskynjara er kerfið
byggt upp þannig að það sýgur loft
í gegnum litla pípu og sendir sýni
í greiningarbúnað sem skilgreinir
agnir og lætur vita ef grunur er um
eld. Kerfið er meðal annars notað
þar sem hátt er til lofts og viðhald og
eftirlit getur verið kostnaðarsamt.
Digifort – myndaeftirlitskerfi
Digifort myndaeftirlitskerfi kemur í
ferns konar útfærslu, en það fer eftir
fjölda myndavéla og möguleika sem
kerfin bjóða upp á. Fjöldi myndavéla
í Digifort Explorer er 4-16, í Standard
4-32, í Professional 8-64 og
Enterprise 8-ótakmarkað.
Einnig er hægt að bjóða upp á
númeraplötugreiningu, ítarlega
vídeógreiningu, andlitsgreiningu og
viðvörun og sjálfvirkni (Alarm and
Automation). Möguleiki er á því að
tengja allar þessar einingar við hvaða
kerfi sem er. Digifort hugbúnaðurinn
gengur með myndavélum frá flestum
framleiðendum heims.
T.E.L.L. – öryggiseiningar
T.E.L.L. eru öryggiseiningar sem hægt
er að tengja við hvaða tæki sem er og
senda þaðan boð í vöktunarmiðstöð.
Einingarnar eru til í IP og 3G/4G og
allt frá 1 rás upp í 6 rásir. Enn fremur
er Pronet að prufukeyra sitt eigið
vöktunarkerfi sem kynnt verður á
næstunni.
SecoLink – þráðlaus og víruð
öryggiskerfi fyrir heimili og fyrirtæki
Frá SecoLink koma öryggiskerfi sem
henta fyrir heimili og fyrirtæki. Kerfin
geta tengst IP og GSM-neti. Hægt er
að fá auka lyklaborð, fjarstýringar,
hurðanema, vatnsnema, sírenur og
fleira. Kerfin eru svæðaskiptanleg
og koma með 64 rása stjórnstöð.
Kerfunum er stjórnað með appi í
síma, með fjarstýringu eða með
talnaborði.
Allir hreyfiskynjarar eru með
innbyggðum hitanema og er hægt að
fylgjast með stöðu á rými við hvern
skynjara. Hægt er að láta kerfi senda
boð með stöðu reglulega eða fá stöðu
með fyrirspurn i gegnum app.
Pronet stillir kerfi og afhendir
viðskiptavinum sínum tilbúið til
uppsetningar. Eina sem þarf að koma
með er SIM kort og þeir setja upp
kerfið fyrir viðskiptavini sína. Pronet
kemur einnig á staðinn og metur
aðstæður að kostnaðarlausu.
Vision UPS systems varaaflgjafar
Vision varaaflgjafar henta vel í öll
net- og öryggiskerfi. Pronet eru með
allt frá litlum varaaflgjöfum 1-3KVA
fyrir afgreiðslukerfi í allt að 650KVA
fyrir stærri kerfi.
Varaaflgjafar eru til bæði fyrir 19“
rekka og sjálfstandandi.
Nánari upplýsingar um þessar
vörur og margar fleiri er að finna á
vefsíðunni www.pronet.is
Pronet er einnig með vörur frá
General Cable (netkaplar), Tecnosteel
(tölvuskápar), Cubis (lagnabrunnar),
LinkBasic (net lagna og tengiefni)
Lantech, AOA og Moxa (beinar og
merkjabreytur).
Pronet er til húsa að Ögurhvarfi 2,
Kópavogi. Símanúmer er 540-3520.