Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Page 57
FÓKUS - VIÐTAL 5725. október 2019
að þetta væri ekki að ganga upp.
Við ákváðum að bíða og sjá hvað
setur.“
Í framhaldinu ákváðu þau
hjónin að minnka myndina, skera
niður um helming og byrja aftur.
Þá kom Harvey Weinstein, sem
nú bíður dóms fyrir kynferðis
lega áreitni og ofbeldi, inn sem
bjargvættur og tók myndina upp
á arma sína. Margrét og Jón Óttar
náðu því að fjármagna erlenda
hlutann af myndinni og sóttu um
styrk á Íslandi, en fengu höfnun.
„Þá urðum við svolítið fúl út í
Ísland. Við vorum búin að hafa
mikið fyrir þessu aftur. Þá ákváð
um við að setja þetta á ís,“ segir
Margrét. „Svo jafnaði það sig og
við héldum af stað í leiðangurinn
aftur og hann hefur verið tiltölu
lega hraður. Núna erum við að
sigla Titanic í höfn og byrja tökur
í lok janúar.“
Varði Weinstein í fyrstu
Í þessu ferli hitti Margrét Harvey
Weinstein tvisvar sinnum og
þekkir ekki þá hlið á honum að
hann misbeiti valdi sínu og stöðu,
eins og fjöldi kvenna hefur opnað
sig um.
„Hann tók Kill the Poet upp á
sína arma og fyrir það er ég óend
anlega þakklát. Ég byrjaði aðeins
að verja hann þegar þessar ásak
anir komu upp á yfirborðið. Þetta
var ekki á allra vitorði en augljós
lega á vitorði þeirra sem höfðu
unnið náið með honum og lengi.
Það er alveg á hreinu. Ég segi
bara í raun og veru um hann: Því
miður náði hann sér ekki í hjálp
fyrir mörgum árum síðan. Það er
til lækning við kynlífsfíkn. Ég vil
meina að kynlífsfíkn hafi ekkert
með kynlíf að gera. Hann er bara
fárveikur. Þessar lýsingar þessara
kvenna, það fer um mann sem
kvenmaður að heyra þetta. Mér
finnst það mikil synd að þessi
mikil hæfileikamaður í þessu
fagi eigi við svona mikinn vanda
að stríða. Maður er þakklátur
Gwyneth Paltrow, Angelinu Jolie
og þessum konum sem þorðu
að koma fram og segja sína sögu
og gerðu það það vel að hann er
núna fyrir rétti.“
Ásakanir á hendur Wein
stein komu upp í tengslum við
metoobyltinguna. Margrét segir
byltinguna hafa verið af því góða.
„Ég hef verið einstaklega
lánsöm. Ég hef kynnst sterkum
mönnum sem hafa virt það að
ég er ákveðin og framsækin og
dugleg og látið mig í friði á ann
an hátt. Enda kannski búin að
vera harðgift í þrjátíu ár og því
leiðinlegur kvenkostur að fara
eftir þannig séð en ég hef lent í
karlmönnum, sem betur fer ekki
oft. Það gerist þegar maður er að
eins viðkvæmari, yngri og þegar
maður styrkist þá breytist margt.
Maður setur bara mörk og lend
ir ekki illa í því. Ég held að þessi
bylting hafi verið af hinu góða. Ef
það er eitthvað eitt sem ég þyrfti
að segja að hefði komið út úr
þessari byltingu þá er það að það
er meira af sterkum kvenpersón
um og meira af sjónvarpsþáttum
og kvikmyndum gert af konum,
sem var gríðarlegur skortur á.
Þetta nýtur gríðarlegra vinsælda,
eins og við vitum. Þannig að þetta
bara þurfti að gerast,“ segir Mar
grét. Hún telur sig hafa þurft að
vinna harðar í sínu fagi til að ná
frama út af því að hún er kona.
„Ég vil meina að ég hafi haft
miklu meira fyrir því að hafa ver
ið framleiðandi í gegnum Ísland
á Kill the Poet sem kona en karl
maður. Ég er að gera stórt ver
kefni, tvöfalt „budget“ á við ís
lenska mynd og ég hef ekki fengið
eina krónu sem framleiðandi úr
neinum ríkissjóðum eða styrk. Ég
er nokkuð viss að ef ég væri karl
maður þá hefði mér verið hjálp
að hraðar og oftar og meira. Í
Hollywood eru ekki margar kon
ur framleiðendur, þótt það sé
alltaf að aukast og bætast í hóp
inn, sem betur fer. En þetta er
töff bransi og ekki fyrir aukvisa að
vera í honum.“
Lífið er ótrúlega einfalt
Margrét og Jón Óttar giftu sig í
Palm Springs árið 1996 og bjuggu
síðan í Los Angeles í um sextán ár.
Nú hafa þau snúið aftur til Palm
Springs, nánar tiltekið Palm Des
ert, þar sem þau hafa verið bú
sett síðastliðin fimm ár. Varðandi
daglega lífið segir Margrét það
ekki einkennast af glamúr – þvert
á móti.
„Lífið mitt er ótrúlega „döll“
og einfalt. Ég vakna yfirleitt fimm
á morgnana. Ég segi ekki að ég
rjúki á fætur alveg strax held
ur byrja á því að skoða tölvu
póst og pæla aðeins í hlutun
um. Svo fer ég af stað, byrja að
hreyfa mig aðeins og fylgjast með
því sem er að gerast. Síðan byrj
ar dagurinn. Ég vinn mikið og er
að vinna að mörgum skapandi
verkefnum þessa dagana. Við för
um á veitingastaði og mjög mikið
í bíó. Við horfum mikið á bíó og
sjónvarpsseríur í dag. Við förum
í göngutúr á kvöldin og tennis og
snemma að sofa. Þetta er ótrúlega
glatað,“ segir hún og hlær. Lykill
inn að farsælu hjónabandi þeirra
Jóns Óttars felst að miklu leyti í
því hve óhrædd Margrét hefur
verið að leita sér sálfræðihjálp
ar í gegnum tíðina. „Mín skoðun
er sú að við erum með ranghug
myndir um hjónabönd af því að
ég held að við gerum of miklar
kröfur á hinn aðilann og höld
um oft að það sem við fáum næst
sé miklu betra. Ég er mikið fyrir
það að fólk sé í þerapíu, fyrst fyrir
sjálft sig, því allar breytingar sem
verða á lífi manns gerast innra
með manni. Ég hitti mjög ung al
veg stórkostlegan sálfræðing sem
breytti lífi mínu. Ég fór í meðferð
mjög ung, hætti að drekka ung
og fór svo í þerapíu. Það var al
veg stórkostlegt. Ég vildi að allir
gerðu það. Flestir bera þetta fram
á fimmtugsaldur og allt í einu
byrja hlutir að springa.“
Hvernig á að vinna Donald
Trump?
Margrét er einnig rammpólitísk
og hefur stutt vel fjárhagslega við
bakið á Demókrataflokknum.
„Ég fylgi eftir minni ástríðu og
hugsjónum og reyni að taka þátt
í að skapa betri heim,“ segir hún
og styrkir nú Joe Biden, Eliza
beth Warren og Kamölu Harris
í aðdraganda forsetakosninga í
Bandaríkjunum á næsta ári. „Ég
held því fram að þetta verði sögu
legustu kosningar okkar sam
tíma. Hvernig á að vinna Donald
Trump eða takast á við þetta
fyrir brigði? Hann brýtur öll lög
mál og er að mörgu leyti siðblind
ur stjórnandi og leiðtogi og hefur
kannski tekið því hlutverki mjög
skringilega. Við erum vön því að
vandi fylgi vegsemd hverri. Þarna
kemur allt í einu maður sem brýt
ur öll lögmál. Hann er dóni og
hann vandar sig ekki og hann ger
ir þetta sannarlega með sínu nefi
og hefur sinn stíl. Ég held að hann
verði ekki endurkjörinn. Ekki
nema Rússar taki yfir og það er
auðvitað hætta á því, því þeir eru
ekki hættir. Þeir eru alls staðar.
Það er eitthvað sem sagan mun
segja mjög vel frá síðar en það ber
öllum saman um það að þeir hafi
haft mikil áhrif.“
Sorgir og sigrar
Margréti er tíðrætt um hve erfiður
kvikmyndagerðarbransinn er.
Þá liggur beinast við að spyrja af
hverju hún hafi enst svona lengi í
honum?
„Uppeldi mitt og uppvöxtur
bjó mig undir þessa göngu. Það
sem ekki drepur mann, herð
ir mann. Það alveg sama hvaða
verkefni við fáum í lífinu, það
er alltaf einhver þroskaganga.
Okkur líður alltaf mjög vel þegar
við komumst út úr einhverjum
erfiðum kafla. Þá hugsar maður:
Þetta bjó mig undir þetta, og svo
styrkjumst við öll á lífsins göngu.
Ég er orðin þetta sterk á þessari
göngu og er þakklát fyrir þessi
erfiðu verkefni sem hafa orðið á
vegi mínum, eins og verða á vegi
okkar allra. Það er enginn undan
skilinn því að lenda í ýmsu,“ segir
Margrét og telur þau hjónin hafa
haldið einkalífi sínu fyrir sig þrátt
fyrir að hafa verið í sviðsljósinu
í öll þessi ár. „Þegar við höfum
gengið í gegnum hluti höfum við
miðlað. Ég held að það sé gott að
miðla því að það eru sigrar eins
og sorgir og ekkert síður sorgir
en sigrar í lífsgöngu alls fólks sem
reynir að fara á eftir draumum
sínum og vekur þar af leiðandi
einhverja eftirtekt. En ég held
samt að sem betur fer þá vitum
við ekkert í raun hvað gengur á.
„Be kind for everyone is fighting
a hard battle.“ Ég held að þetta sé
ótrúlega góð lífsspeki. Ég held að
við séum of gagnrýnin á fólk án
þess að vita í hverju það stendur.“
Útilokar ekki framboð
Framundan hjá Margréti er verk
efni með ítölskum leikstjóra með
Gerard Depardieu í aðalhlutverki
og endurgerð á erlendri kvik
mynd sem verður gríðarstórt ver
kefni. Margrét getur tjáð sig um
hvorugt verkefnið, en þau verða
kynnt innan skamms. Eftir þrot
lausa vinnu síðustu ár er hún
loksins að uppskera og segist ekki
ætla að taka að sér gæluverkefni
sem hún þurfi að borga með í
bráð.
„Ég sel mig orðið dýrt. Það
verður þannig framvegis.
Góðgerðarstarfsemi er lokið í bili
eftir Kill the Poet. Það er búið að
kosta okkur tugi milljóna að kom
ast á þennan stað en færum við
ekki fórnir þegar þarf? Ég held að
allir athafnamenn, allir einstak
lingar sem hafa sett eitthvað á
stofn sem þeir hafa haft trú á og
þurft að borga með sér og vinna
mikið og fá minna borgað á með
an þeir eru að koma því á kopp
inn, sjái svo afraksturinn, það er
alltaf eins. Það breytist aldrei.
Maður leggur á sig þegar manni
finnst það þess virði. Einhverra
hluta vegna fannst okkur hjónun
um það þess virði, að þrátt fyrir
bankahrun og þá vitleysu sem
var hér í gangi í kringum það, og
kannski er enn þá,“ segir hún.
Hún útilokar ekki að flytja aftur
til Íslands, en sér það ekki ger
ast í nánustu framtíð. Varðandi
hennar aðra ástríðu í lífinu, póli
tíkina, gæti hún vel hugsað sér að
spreyta sig á þeim starfsvettvangi
einhvern tímann.
„Nú vil ég vera framleiðandi.
Nú vil ég hjálpa stjórnmála
mönnum og konum að vinna
að góðum málefnum. Ég hef haft
mikið fyrir því að komast á þenn
an stað. Það eru bæði sjónvarps
og kvikmyndaverkefni sem bíða.
En kannski eftir það. Ég held
að viska áranna hjálpi þér sem
stjórnmálamaður. Ungir stjórn
málamenn eru góðir en færustu
stjórnmálamenn samtímans og
sögunnar voru oft 55 ára og langt
yfir það. Það virðist oft vanta hér
í pólitík, visku áranna og reynslu
í bland við ungt fólk. Það þarf að
vera blanda.“ n
„Uppeldi mitt
og uppvöxtur
bjó mig undir
þessa göngu.
Það sem ekki
drepur mann,
herðir mann.
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
Á góðri stundu Margrét ásamt forsetafrúnni
Elizu Reid og leikstjórum House of Cardin.
Útilokar ekki framboð Margrét er
rammpólitísk. Mynd: Eyþór Árnason