Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Page 30
VÖRN ÖRYGGISKERFI – Leiðandi í öryggismálum Vörn öryggiskerfi var stofnað árið 2008 af Jóni Á. Hermannssyni og hefur síðan vaxið og dafnað og er í dag í viðskiptum við 1200 fyrirtæki auk fjölda heimila. Átta manna teymi sér um sölu og uppsetningu á myndavélum um allt land. „Vörn hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á alls kyns tækninýjungar og erum við ávallt með nýjasta og besta búnaðinn frá heimsþekktum framleiðendum. Við vorum með þeim fyrstu sem buðu uppá þann möguleika að skoða myndavélar í gegnum síma,“ segir Jón Ágúst. „Við erum með vörumerkið Dahua og bjóðum upp á 4k myndavélar sem eru 8 megapixla með nýrri gerð af nætursjón sem heitir Starvis. Hún virkar þannig að myndin verður ekki svarthvít að nóttu til, hún heldur lit og þannig er auðveldara að greina einstaklinga í miklu myrkri. Og 4k myndavélar eru það besta sem hægt er að fá í dag í almennum vélum, en þær eru samt á viðráðanlegu verði. Vélarnar henta vel bæði fyrir fyrirtæki og heimili.“ Fyrirtæki geta leitað tilboða, „við setjum upp og þjónustum stærri sem smærri fyrirtæki.“ Snjalltæknin vinsælust í dag Snjalltæknin er í boði hjá Vörn og langflestir eru að snjallvæðast. „Það er gríðarlega vinsælt, það vilja allir geta haft stjórn á hlutunum í gegnum símann,“ segir Jón Ágúst. „Þú getur skoðað myndavélarnar í gegnum símann, getur kveikt og slökkt á þjófavörninni, kaffivélinni, heita pottinum í sumarbústaðnum svo dæmi sé tekið, það er hægt að gera allt með þessu kerfi í dag. Ef þú ert með þjófavörn og myndavélakerfi þá ertu fljótur að sjá í símanum hvað er að gerast, þú ert fljótari en öryggisfyrirtækið er að hringja í þig. Þannig getur þú sparað þér stórar upphæðir í vöktun. Við erum leiðandi í tækninýjungum í öryggismálum og verslum við bestu fyrirtæki í heimi. Þjónustustöðin okkar er í Reykjavík, en við setjum upp öryggiskerfi um allt land.“ Gæðaeftirlitskerfi fyrir útgerðarfyrirtæki Fyrir útgerðarfyrirtæki býður Vörn upp á gæðaeftirlitskerfi og er það komið upp hjá mörgum fyrirtækjum og er framarlega þar, sem dæmi má nefna Þorbjörn í Grindavík, GPG Seafood og Fiskmarkað Íslands. „Þessi fyrirtæki og fleiri nota myndavélakerfi sem gæðaeftirlitskerfi fyrir fiskvinnsluna og fleira, enda geta öryggismyndavélar hjálpað til við margt.“ Myndavélakerfi – vörn gegn einelti og skemmdarverkum í skólum „Vörn hefur sett upp myndavélakerfi í fjölmarga skóla á höfuðborgarsvæðinu og hefur það reynst gott vopn í baráttunni gegn einelti. Skemmdarverk á skólalóðum geta kostað mikla fjármuni og eru nánast úr sögunni þegar myndavélar eru til staðar,“ segir Jón Ágúst. Allar upplýsingar um Vörn öryggiskerfi má fá í síma 561- 5600, netfanginu vorn@vorn.is og á heimasíðunni www.vorn.is. 25. október 2019KYNNINGARBLAÐÖryggisblaðið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.