Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Qupperneq 40
Öryggisblaðið
UNICONTA –
bókhaldskerfið sem allir eru
að tala um
Uniconta er nýjasta og öflugasta bókhaldskerfið úr smiðju Eriks Damgaard.
Erik er ókrýndur konungur
bókhaldskerfanna, byrjaði ungur að
árum að þróa bókhaldskerfi sem
þúsundir fyrirtækja um allan heim
hafa notað, t.a.m. Concorde XAL og
Axapta. Microsoft keypti fyrirtæki
hans fyrir um 200 milljarða króna
árið 2001 og hafa lausnir hans
verið flaggskipið í lausnaframboði
hugbúnaðarrisans síðan þá.
Uniconta kom á markað í Danmörku
og á Íslandi árið 2016 og hefur fengið
frábærar viðtökur. Önnur kerfi komast
ekki með tærnar þar sem Uniconta er
með hælana þegar kemur að virkni
og hraða. Kerfið er skýjalausn þar sem
að öll gögn eru vistuð í ISO vottuðu
skýjaumhverfi en notandinn vinnur með
gögnin í gegnum forrit eða app á tölvu
eða snjalltæki.
Hraði og virkni
„Okkar reynsla er sú að Uniconta
sem skýjalausn er að skila gögnum
mun hraðar en bókhaldskerfi sem
eru á gagnaþjónum niðri í kjallara
hjá fyrirtækjum, gögnunum er
þjappað á snilldarlegan hátt þegar
þau er sótt eða send upp í skýið,“
segir framkvæmdastjóri Uniconta á
Íslandi, Ingvaldur Thor Einarsson.
Fjárhagskerfið er hjartað í
Uniconta og tengist að fullu
við allar kerfiseiningar eins og
viðskiptavina- og lánardrottnakerfi,
birgða-, framleiðslu-, verkbókhalds-,
kröfu- og CRM-kerfi. Uniconta
byggir á nýjustu tækni frá
Microsoft og forritaskilum (API)
þannig að einfalt er að láta gögn
flæða á milli Uniconta annars
vegar og launakerfa, vefverslana,
bókunarkerfa o.s.frv. hins vegar.
Þá er mjög fljótlegt að setja upp
gagnvirka teninga í Excel eða
PowerBI sem keyra á raungögnum
úr Uniconta. Í dag eru á annað
hundrað lausnir sem bjóða upp á
tilbúnar tengingar við Uniconta.
Uniconta má nota á öllum
tækjum: Windows- og Mac-tölvum,
spjaldtölvum og snjallsímum.
Frábærar viðtökur
Uniconta er viðskiptalausn á
heimsmælikvarða og styður nú þegar
30 tungumál. Kerfið er komið inn á
nokkra markaði í Evrópu, Asíu og Mið-
Austurlöndum. Fjöldi notenda hér á
landi er kominn yfir eitt þúsund og vel
á þriðja hundrað íslenskra fyrirtækja
af öllum stærðum og gerðum nota nú
Uniconta til að halda utan um fjármál
og rekstur, birgðir, framleiðslu og verk.
Í dag eru flest íslensk fyrirtæki að
nota gömul eða úrelt bókhaldskerfi
með tilheyrandi kostnaði og
takmörkun á framleiðni. „Hér eru
þessi gömlu íslensku bókhaldskerfi
eins og DK enn víða í notkun. Þessi
kerfi voru smíðuð á síðustu öld og
voru mjög fín á sínum tíma. Þarna
var tækniumhverfið allt annað,
nettengingar voru hægar og dýrar.
Þessi kerfi byggja því á gamalli
tækni sem verður flöskuháls víða.
Notendur þurfa oft að vinna í
gegnum fjarvinnsluviðmót sem
var ásættanlegt fyrir einhverjum
tíu árum en er ekki boðlegt í
nútímaumhverfi.“ segir Ingvaldur. „Á
hinum enda markaðarins eru stóru
kerfin eins og Dynamics NAV sem eru
einnig komin til ára sinna. Þessi kerfi
eru dýr í innleiðingu og uppfærslur
eru dýrar og flóknar. Uniconta er
skýjalausn sem uppfærist sjálfkrafa
þannig að fyrirtæki sem er í Uniconta
þarf aldrei að ráðast í kostnaðarsama
uppfærslu.“
Uniconta er því skynsamlegasta
lausnin fyrir íslensk fyrirtæki.
Bókhaldskerfi hafa aldrei verið
ódýrari
Uniconta er seld sem
hugbúnaðarlausn í áskrift þar
sem lægsta mánaðargjald er kr.
2.499 án VSK en sú áskrift hentar
einyrkjum í einföldum rekstri.
„Menn bæta svo við notendum,
kerfiseiningum, færslum og
viðbótarlausnum eftir þörfum.
Viðskiptavinir sem skipta yfir í
Uniconta eru að jafnaði að ná fram
50% sparnaði í rekstrarkostnaði
bókhaldskerfis,“ segir Ingvaldur.
„Þá er mun einfaldara að innleiða
Uniconta en önnur kerfi og hægt að
færa öll gögn úr gamla kerfinu yfir í
Uniconta. Við aðstoðuðum t.d. lítið
fyrirtæki um daginn við innleiðingu
Uniconta og það tók klukkustund að
koma öllum gögnum og færslum
síðustu 10 ára úr gamla kerfinu yfir
í Uniconta. Hjá stærri fyrirtækjum
hleypur innleiðing á einhverjum
dögum en ekki mánuðum eins og hjá
mörgum af okkar keppinautum.“
Aldrei minni vinna við bókhaldið
„Við ætlum okkur ekki aðeins að
lækka kostnað fyrirtækja við áskrift
og innleiðingu viðskiptalausna, heldur
viljum við einnig hjálpa þeim að spara
dýrmætan tíma starfsmanna,“ segir
Ingvaldur. Hjá meðalstóru fyrirtæki
fara hundruð klukkustunda í innslátt
og meðhöndlun fylgiskjala í hverjum
mánuði. Í byrjun árs mun Uniconta
kynna nýja lausn sem les upplýsingar
af fylgiskjölum á stafrænu formi og
færir inn í rétta reiti í kerfinu. Þetta
mun spara alla innsláttarvinnu og
nær útrýma mistökum.
Þetta er í takt við þriðju
iðnbyltinguna þar sem að tæknin
leysir af hólmi einföld, tímafrek
verkefni sem eru endurtekin í gríð
og erg. „Margir hafa spáð því að
starf bókara muni leggjast af en
okkar sýn er sú að þessi störf muni
ekki leggjast niður – heldur breytast.
Bókarar munu hafa tíma til að sinna
greiningum og veita stjórnendum
fyrirtækja endurgjöf um reksturinn.
Þetta skapar mun meiri verðmæti
fyrir alla en núverandi fyrirkomulag
þar sem heilu stöðugildin eru að
slá inn gögn af pappír og raða
fylgiskjölum í möppur.
Uniconta er í stöðugri þróun
og við leggjum okkur fram um að
hlusta á óskir viðskiptavina okkar.
Bestu hugmyndirnar koma frá
fólkinu sem notar kerfið daglega
til að leysa ýmis vandamál í
rekstrinum og kallar eftir nýjum og
snjöllum leiðum til að gera hlutina.“
Um Uniconta
Uniconta A/S er starfrækt í
Danmörku og hefur um 30
starfsmenn á sínum snærum.
Fyrirtækið er að mestu í eigu Eriks
Damgaard en danskir lífeyrissjóðir
lögðu til milljarða fjárfestingu á
síðasta ári. Uniconta Ísland ehf.
hefur dreifingarrétt á Uniconta hér
á landi. Uniconta bókhaldskerfið
er selt í gegnum fjölda sjálfstæðra
sölu- og þjónustuaðila. „Við teljum
að þetta sé besta leiðin inn á
markaðinn. Viðskiptavinurinn
getur valið þann þjónustuaðila
sem hann treystir best en við
höfum lagt mikla vinnu í að velja
og þjálfa öfluga þjónustuaðila sem
viðskiptavinir treysta.“
Sjá nánar á uniconta.is.
KYNNINGARBLAÐ 25. október 2019