Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 10
10 13. september 2019FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
Getur grín haft áhrif á samfélagið?
n Fanndís Birna rannsakaði pólitískt grín á Íslandi n „Má gera grín að öllu?“ n Spaugstofan var stjórnarandstaða og Skaupið er rammpólitískt
V
ið fengum miklu meiri
viðbrögð í denn. En svo
þegar samfélagsgerðin
einhvern veginn breyt-
ist, kannski með farsímum og
interneti og öllu slíku, og það ein-
hvern veginn opnast fleiri rásir
þá höfðum við minni slagkraft.
Samfélagið verður ágengara, það
verður harðara og óvægnara.
Það verður einhvern veginn bara
allt leyfilegt og þá er kannski að-
eins minna gaman að lifa.“ Þetta
segir Örn Árnason leikari og vís-
ar þar í tíð Spaugstofuþáttanna á
RÚV. Örn er einn af viðmælend-
um Fanndísar Birnu Logudóttur
í tengslum við BA-ritgerð hennar
í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands. Leitar Fanndís Birna þar
svara við því hvernig pólitískt grín
er gert fyrir heila þjóð og hvort
það séu einhverjar reglur í gríni.
Þá kannar hún áhrif grínsins á
bæði einstaklinga og samfélagið
sem heild. Spurningin er: Getur
grín haft áhrif á samfélagið?
Í tengslum við rannsóknina
tók Fanndís Birna viðtöl við fimm
landsþekkta grínista; Ara Eldjárn,
Önnu Svövu Knútsdóttur og Eddu
Björgvinsdóttur, sem öll hafa
komið að gerð áramótaskaups-
ins, ásamt Karli Ágústi Úlfssyni og
Erni Árnasyni sem voru meðlim-
ir Spaugstofunnar á sínum tíma.
Í niðurstöðum rannsóknarinn-
ar kemur meðal annars fram að
grín þróast samhliða samfélaginu
og að það sem er fyndið í dag var
kannski engan veginn fyndið hér
áður fyrr. Línan er sífellt að verða
óljósari og grín að verða beittara.
Allir þeir grínistar sem rætt
var við telja að Spaugstofan og
áramótaskaupin veiti losun fyrir
samfélagið. Hlutverk Spaugstof-
unnar og áramótaskaupsins var,
og er enn, að taka fyrir málefni
líðandi stundar og fjalla um þau
á skoplegan hátt. Þar sem Spaug-
stofan hefur aftur á móti lok-
ið göngu sinni hefur samfélagið
nú aðeins áramótaskaupið einu
sinni á ári til þess að takast á við
hin ýmsu málefni. Örn lýsir því
að fólk hafi sagt við hann, og aðra
meðlimi Spaugstofunnar, eftir að
þættirnir runnu sitt skeið, að það
sakni þess að Spaugstofan taki
mál fyrir.
Grínið breyttist í kreppunni
Í niðurstöðum segir einnig að
í kjölfar efnahagshrunsins hafi
orðið breyting á því hvernig grín-
inu var beitt. Ari Eldjárn, sem var
einn af handritshöfundunum
skaupsins 2009, lýsir því að árið
2009 hafi verið mikil óvissa og
hræðsla í samfélaginu. Margt átti
sér stað það ár og það reyndist
erfitt að koma öllu inn í ára-
mótaskaupið, enda þurftu þau í
raun að taka fyrir hrunið í heild
sinni. Handritshópurinn fór þá
leið að gera ekki lítið úr þjóðinni
og hegðun hennar, eins og hafði
verið í skaupunum árin áður. Í
staðinn gerðu þau grín að þeim
sem hrundu þessari atburðarás
af stað.
Næstum ekkert er heilagt
En má gera grín að öllu? Flestir
grínistanna eru sammála um að
það væri í raun ekkert sem mætti
ekki gera grín að heldur sner-
ist það um að finna rétta leið til
þess að gera grín að því. Þá telja
þau nauðsynlegt að taka fyrir það
sem á sér stað á líðandi stundu.
Þá eru þau öll mjög sammála um
að það megi og ætti jafnvel að
gera grín að stjórnmálamönnum,
enda mikið um það í bæði ára-
mótaskaupum og Spaugstofunni.
Til að mynda lýsir Karl Ágúst
því að Spaugstofuhópurinn hafi
alltaf talið að þeir sem höfðu
verið áberandi í fjölmiðlum „ættu
það inni að það yrði gert grín að
þeim, sama hvort þeir væru sam-
mála þeim eða ekki.“ Þeir væru
búnir að koma sér í þetta hlut-
verk og þar með væri komið
ákveðið skotleyfi á þá. Þrátt fyrir
að það geti virkað fjandsamlegt
þá lýstu nokkrir viðmælendurnir
því að þeir vildu líka að það væri
gert grín að þeim, að með því að
gert væri grín að þeim væru þeir
komnir á einhvern ákveðinn stall.
Skaupið er orðið
rammpólitískt
Fram kemur að þegar viðmæl-
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Spaugstofan.