Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Qupperneq 11
13. september 2019 FRÉTTIR 11 endur voru spurðir hvort að þeir teldu að áramótaskaupið og Spaugstofan væru pólitísk og hvort það hefði haft áhrif á sam- félagið hafi svörin verið frekar misjöfn. Þannig lýsir Örn því að Spaug- stofan hafi þó alltaf verið ákveðin stjórnarandstaða og tekur Karl Ágúst undir það. Þá segir Karl Ágúst að þátturinn hafi þróaðist þó mjög mikið með samfélaginu og Karl minnist þess að þegar þeir fóru af stað hafi verið mun minna gagnsæi í samfélaginu og því lítið til að gagnrýna, menn vissu ein- faldlega ekki betur. Í niðurstöðunum kemur einnig fram að þegar áramótaskaupið hóf göngu sína árið 1966 hafi það ekki verið sérstaklega pólitískt. Í dag er óhætt að fullyrða að skaup- ið sé rammpólitískt. „Ég held að allt sé pólitískt og ég held að það sé kannski frekar reynt að gæta að því að það sé ekki slagsíða á því. En ég held að það sé bara vitleysa að segja að það sé ópólitískt og þegar einhver segir: „Skaup- ið á ekki að vera pólitískt!“ Nú bíddu, á það þá bara, á það þá sem sagt ekki að taka fyrir neitt sem hefur haft einhverja pólitíska umræðu í kringum sig? … Ég held að fólk sé oft að rugla líka þegar það segir að það á ekki að vera pólitískt, ég held að það sé að rugla því saman við að þetta á ekki að vera flokkapólitískt,“ segir Ari Eldjárn. Anna Svava tekur undir með Ara og telur að áramótaskaup- ið þurfi að vera pólitískt. Edda Björgvinsdóttir, sem hefur tekið þátt í fjölmörgum skaupum seg- ist alltaf talið sitt grín vera póli- tískt, en að það hafi vissulega tek- ið breytingum samhliða þróun samfélagsins. Þá kemur fram að svör grínist- anna hafi verið misjöfn þegar spurt var um áhrif grínsins á sam- félagið. Aðeins Edda mundi eft- ir slíku dæmi, en það var eftir áramótaskaupið 1994 þegar þá- verandi menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, var tekinn fyrir. Óvinsældir hans jukust margfalt í kjölfarið og seinna meir sagði hann af sér. Karl Ágúst hefur vissar efa- semdir en ítrekar þó að á líðandi stund geti grín haft einhver áhrif á samfélagið með því að koma ákveðnum málum á dagskrá og vekja athygli á hegðun fólks sem mætti bæta. Grínið hefur einnig áhrif samfélagið með því að hjálpa einstaklingum að takast á við hlutina, en allir viðmælend- urnir voru sammála um það. „Sko, ég held að það hafi kannski haft einhver skamm- tímaáhrif. Það hefur kannski haft áhrif á hugsanlega álit fólks í einhvern tíma en ég held að, nei ekki þannig í þeim skilningi að það hafi breytt einhverju, breytt samfélaginu á einhvern hátt. Það held ég alls ekki. Og þótt við ættum þetta 30 ára tímabil og hefð- um þá kannski, má kannski segja, ef einhver hefði átt að geta, ef að svona efni getur einhvern tímann breytt ein- hverju þá hefði það átt að vera okkar efni og þessi hópur. En það kannski bara sýnir okkur það að það er alveg sama hvað listamenn hamast og deila á samfélagið þá til lengri tíma litið þá sækir allt í sama horf- ið, það er að segja það endar alltaf með því að það er eins og við höfum aldrei verið hér.“ n Getur grín haft áhrif á samfélagið? n Fanndís Birna rannsakaði pólitískt grín á Íslandi n „Má gera grín að öllu?“ n Spaugstofan var stjórnarandstaða og Skaupið er rammpólitískt Ari Eldjárn. Anna Svava Knútsdóttir. Á boðstólum verður The Host (Skrímslið, frá 2006), hin fræga skrímslamynd suðurkóreska leikstjórans Bong Joon-ho. Kvik- myndinni verður varpað á tjald í gömlu innilauginni, sem verður hituð upp. Heilmikið havarí verður í öllum krókum og kimum Sundhallarinnar þar sem andrúmsloftið verður tileinkað þessari sérstöku mynd. Fólk getur alveg búist við því að skrímsli troði sér inn í sturtuklefann hjá því, þó aðeins í karlaklefann. En fólk verður að muna eftir sundfötum og handklæði. Hinn stórkostlegi suðurkóreski leikstjóri Bong Joon-ho, sem stýr- ir myndinni, vann aðalverðlaun Cannes-hátíðarinnar í vor með myndinni Parasite og verður sú mynd lokamynd RIFF-hátíðar- innar. Skrímsli í Sundhöllinni Hið árlega og vinsæla sundlaugarbíó RIFF sem alltaf hefur verið uppselt á fer fram í Sundhöllinni í Reykjavík þann 28. september klukkan 19.30. www.riff.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.