Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 14
14 13. september 2019FRÉTTIR
Í
slenska nýsköpunarfyrirtæk
ið Risk ehf. er í viðræðum við
fimm stór indversk sjúkrahús,
með um hálfa milljón sykur
sjúkra einstaklinga á skrá, um
notkun á nýju smáforriti sem
reiknar út einstaklingsbundna
áhættu á því að viðkomandi þrói
með sér augnsjúkdóma vegna
sykursýki, sem getur leitt til sjón
skerðingar eða blindu. Hugbún
aðurinn reiknar út hvenær sé
skynsamlegt fyrir einstaklinginn
að koma til augneftirlits í sam
ræmi við einstaklingsbundna
áhættu hvers og eins.
Þessi byltingarkennda
tækninýjung, sem er hönnuð
fyrir síma, er hugarfóstur þre
menninganna Einars Stefáns
sonar augnlæknis, Örnu Guð
mundsdóttur innkirtlalæknis
og Thors Aspelund, prófessors í
stærðfræði. Þau eru fólkið á bak
við algóritma, eða reiknirita, sem
gerir einstaklingum með sykur
sýki kleift að grípa í taumana og
leita sér lækninga vegna augn
sjúkdóma áður en það er of seint.
78 milljónir með sykursýki á
Indlandi
Til að nota smáforritið setur fólk
inn sín persónulegu gildi, kyn,
hversu lengi það hefur verið með
sykursýki og hvers konar sykur
sýki. Einnig hvort þegar hafi orðið
vart við augnbotnaskemmdir, auk
breytilegra gilda, til dæmis blóð
sykursgildi og blóðþrýsting. Þegar
þessi einstaklingsbundnu gildi
eru komin inn getur algóritm inn
reiknað út hversu mikil hætta er á
að einstaklingurinn þrói með sér
augnsjúkdóma á árinu.
Indversku sjúkrahúsin eru
þegar farin að deila smáforritinu,
sem nefnist Retina Risk, til sjúk
linga sinna og Sigurbjörg Ásta
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
félagsins, segir að bara á Ind
landi séu um 78 milljónir manna
með sykursýki. Sjúkrahúsin sem
um ræðir séu risastór og í farar
broddi í sínu landi. Það sé nán
ast ómögulegt að skima þann
mikla fjölda sjúklinga sem er með
sykursýki á Indlandi og því geti
smáforritið reynst einstaklingun
um afar vel. Þeir geti þannig áttað
sig á því sjálfir hvenær þeir þurfi
að leita til læknis.
„Við höfum líka verið í sam
bandi við önnur lönd, eins og
Pakistan, Nepal og Kína. Líka
lönd í Afríku, þar sem búist er
við mikilli aukningu á sykur
sýki á næstu árum. Það gildir
líka um Ameríku. Flestir notend
ur eru þaðan og sykursýki á eftir
að aukast þar, en líka í Evrópu og
SuðurAmeríku. Það er til dæmis
mikið um sykursýki í Brasilíu og
Mexíkó.“
Aðspurð hvort íslenskir sykur
sjúklingar séu farnir að nýta sér
smáforritið segir hún að fjögur
til fimm prósent þeirra séu þegar
komin með það. „Við erum mjög
spennt með að á næstu vikum
verður boðið upp á smáforritið á
íslensku, sem á eftir að auka nota
gildi þess og vinsældir.“
Sparnaður í heilbrigðiskerfinu
Ljóst er að smáforritið Retina Risk
getur sparað umtalsverðar fjár
hæðir í heilbrigðiskerfinu, enda
var það upphaflega hugsunin á
bak við þróun þess, auk þess að
hjálpa sykursjúkum sem eru í
áhættuhópi hvað varðar augn
sjúkdóma. Þessir sjúklingar eru
hvattir til að leita árlega til læknis
til að kanna hvort þeir séu komn
ir með augnsjúkdóma, þannig
að þessum heimsóknum ætti að
fækka með þessum nýja búnaði.
Miklar rannsóknir liggja að
baki Retina Risk, sem um tuttugu
þúsund einstaklingar, bæði á Ís
landi og erlendis, tóku þátt í.
Niðurstöðurnar hafa verið birtar í
virtum læknatímaritum um heim
allan.
Sykursýki er alheimsfaraldur
en tíðni sjúkdómsins hefur þre
faldast frá aldamótum. Í dag er
talið að um 430 milljónir manna
um heim allan þjáist af sykursýki
og er gert ráð fyrir að fjöldinn fari
yfir 600 milljónir árið 2045. Augn
sjúkdómar af völdum sykursýki
eru í mörgum löndum algeng
asta orsök sjóntaps fólks á vinnu
aldri og næstalgengasta orsök
blindu. Tveir þriðju hlutar fólks
með sykursýki þróa með sé augn
sjúkdóma og mikil hætta á að
þriðjungur þessa hóps verði sjón
skerðingu eða jafnvel blindu að
bráð ef greining og meðhöndlun
á sér ekki stað tímanlega.
Síðast en ekki síst er mikilvægt
að benda á að smáforritið Retina
Risk er ókeypis bæði í Apple Store
og Google Play. n
Kaffihlaðborð ýmsar útfærslur, Pinnamatur,
smurt brauð, tertur, o.fl. fyrir erfidrykkjuna
Afgreitt á einnota fötum
tilbúið á borðið
Erfidrykkja
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
Íslenskur hugbúnaður notaður á
Indlandi í baráttu gegn augnsjúkdómum
n Stefnt að því að ná til að minnsta kosti einnar milljónar sykursjúkra með nýju íslensku
smáforriti á næstu árum n Gífurlegur sparnaður fyrir heilbrigðiskerfið
„Sykursýki er
alheimsfaraldur en
tíðni sjúkdómsins hefur
þrefaldast frá aldamótum
Karl Garðarsson
Karl@dv.is