Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 36
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ Bílaleiga með jákvæðasta orðsporið auglýsir eftir arftaka Snail.is bílaleiga er fyrsta bíla-leigan á Íslandi sem bauð upp á breytta bíla til ferðalaga með svefnplássi. „Við hjónin byrj- uðum með tvo bíla fyrir tíu árum og eftir það byrjuðu hjólin að snúast hratt. Áður einskorðuðust valkostir ferðamanna við dýra húsbíla eða bíl með tjaldi og voru ferðamennirnir snöggir að koma auga á þennan hagkvæma og þægilega ferðakost sen Snail býður upp á. Á síðustu tíu árum hefur markaðurinn breyst tölu- vert hér á landi og upp hafa sprottið tugir bílaleiga sem bjóða upp á svip- aða bíla og við. Nú er komið að því að við Árni erum að fara á eftirlaun. Okkur langar til þess að fyrirtækið hljóti framhaldslíf og leitum því að góðum eftirmanni eða konu til að taka við rekstrinum,“ segir Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Sniglast um landið „Nafnið Snail er hugarfóstur hús- bóndans og kemur til af því að við erum að bjóða upp á breytta bíla sem eru ekki endilega þeir allra nýj- ustu, en þó vel útbúnir og hentugir til ferðalaga. Að auki fara sniglar ferða sinna með heimilið á bakinu, líkt og þeir sem keyra Snail-bílana. Þeir sniglast áfram um fjöll og firnindi.“ Góður og heimilislegur andi Það er ótrúlega þægilegur andi yfir Snail-fyrirtækinu enda reyna hjónin að hafa allt eins persónulegt og heimilislegt og hægt er. „Allir bílarnir okkar er fullbúnir og þeim fylgir allt til ferðalagsins. Svefnpokar, sængur, koddar, gaseldavélar, eldhúsgræjur. Við höfum alltaf stefnt að því að útbúa bílana eins og við værum sjálf að fara í ferðalag. Einnig tökum við á móti öllum viðskiptavinum okkar eins og um gesti væri að ræða. Fólk hefur verið svo yfirmáta ánægt með þjónustu okkar að það kemur aftur og aftur. Það var til dæmis einn viðskiptavinur, læknir frá Brehmen, sem leigði hjá okkur bíl fyrsta árið sem Snail starfaði. Síðan þá hefur hann komið fimm sinnum í viðbót og alltaf fengið að leigja sama bílinn. Þegar hann frétti að við værum að hætta að vinna þá keypti hann sér sams konar bíl, kom hingað með Norrænu og heimsótti okkur í sumar. Við fórum út að borða saman og á tónleika. Annar viðskiptavinur, þýskur dýralæknir, hefur komið til okkar þrisvar. Við hjálpuðum henni að kaupa sér sumarhús í Stykkishólmi. Við fáum ótal póstkort frá viðskipta- vinum okkar úti í heimi og eigum heimboð til langflestra. Nú er tíminn til að nýta sér það. Ætli við eigum ekki eftir að ferðast á milli landa með fría gistingu í fimm ár?“ segir Sigrún og hlær. Reka menn ekki út í gaddinn Snail.is starfar sex mánuði á ári, frá maí til október. „Við höfum valið það að bjóða ekki upp á Snail-bílana yfir vetrarmánuðina enda búum við á Íslandi og við vitum öll hvernig það er á veturna. Það er illfært fyrir þessa bíla og svo er eiginlega ekki mönn- um bjóðandi að sofa úti í bíl í snjó og gaddi. Starfsfólk okkar kemur víða að úr heiminum til þess að vinna með okkur yfir sumarmánuðina. Við höfum haft fólk frá Tékklandi, Þýskalandi , Finnlandi og Póllandi sem við höfum bundist vinabönd- um. Við vorum boðin í brúðkaup í Tékklandi fyrir tveimur árum og auðvitað skelltum við okkur. Sú sem var að gifta sig hafði unnið hjá okkur þrjú sumur í röð. Við höfum líka haft pólskan bifvélavirkja síðustu þrjú sumur sem er virkilega klár og heldur bílunum okkar í toppformi. Það er virkilega gaman að starfa á vinnu- stað þar sem allt er á persónulegu nótunum og kúnnarnir finna það þegar þeir koma til okkar.“ Núll neikvæðar umsagnir á TripAdvisor Snail.is er eina bílaleigan á landinu sem er ekki með eina einustu nei- kvæða umfjöllun á TripAdvisor. „Við höfum aldrei þurft að auglýsa okkur enda sér fólk á ummælunum hvers konar rekstur þetta er. Við höfum auðvitað verið heppin með viðskiptavini, en ég held að viðhorf okkar til rekstrarins hafi ennþá meira að segja þegar kemur að ánægð- um viðskiptavinum. Ef það kemur eitthvað upp á og viðskiptavinur þarf hjálp, þá brunum við af stað, hvar sem hann er staddur á landinu. Ef það er ekki hægt að komast á staðinn tímanlega þá björgum við flutningi á næsta hótel og borgum nóttina undir ferðalanginn/-lang- ana. Einnig höfum við fengið gott klapp á bakið frá Sjóvá. Þegar við vorum að byrja voru tryggingafélög- in treg að veita okkur tryggingu. En eftir tíu ár í þessum bransa höfum við bara misst einn bíl og erum við og Sjóvá afar ánægð með þann ár- angur. Auk þess erum við mjög dug- leg í forvarnardeildinni. Við höldum ítarlegan fyrirlestur fyrir alla okkar viðskiptavini um það að ferðast um Ísland á mismunandi árstíma. Fólk er því vel undirbúið þegar það fer af stað í ferðalagið.“ Leita að arftaka Eftir að Sigrún og Árni byrjuðu fyrst að leigja út bílana fjölgaði hratt í kúnnahópnum. „Þetta byrjaði á tveimur bílum og fyrir tveimur árum vorum við komin með 60 bíla. Í dag höfum við dregið þetta aðeins saman enda erum við bæði komin á aldur og orðin þreytt. Í dag erum við með 35 bíla. Karlinn er kominn á eftirlaun og ég á ekki langt í þau. Því erum við í raun að auglýsa eftir arftaka að fyrirtækinu. Þetta hefur verið góður og heiðarlegur rekstur í tíu ár og okkur langar til þess að fyrirtækið fái framhaldslíf. Það er margt hægt að gera með fyrirtæki sem hefur jafn gott orðspor og Sna- il,“ segir Sigrún. Nánari upplýsingar má nálgast á www.snail.is Tangarhöfða 2, 110 Reykjavík Sími: 533-1919 Vefpóstur: snail@snail.is Fylgstu með á Facebook: Snail.is – Motorhome Rental

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.