Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Page 36
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Bílaleiga með jákvæðasta
orðsporið auglýsir eftir arftaka
Snail.is bílaleiga er fyrsta bíla-leigan á Íslandi sem bauð upp á breytta bíla til ferðalaga
með svefnplássi. „Við hjónin byrj-
uðum með tvo bíla fyrir tíu árum og
eftir það byrjuðu hjólin að snúast
hratt. Áður einskorðuðust valkostir
ferðamanna við dýra húsbíla eða bíl
með tjaldi og voru ferðamennirnir
snöggir að koma auga á þennan
hagkvæma og þægilega ferðakost
sen Snail býður upp á. Á síðustu tíu
árum hefur markaðurinn breyst tölu-
vert hér á landi og upp hafa sprottið
tugir bílaleiga sem bjóða upp á svip-
aða bíla og við. Nú er komið að því
að við Árni erum að fara á eftirlaun.
Okkur langar til þess að fyrirtækið
hljóti framhaldslíf og leitum því að
góðum eftirmanni eða konu til að
taka við rekstrinum,“ segir Sigrún E.
Unnsteinsdóttir.
Sniglast um landið
„Nafnið Snail er hugarfóstur hús-
bóndans og kemur til af því að við
erum að bjóða upp á breytta bíla
sem eru ekki endilega þeir allra nýj-
ustu, en þó vel útbúnir og hentugir til
ferðalaga. Að auki fara sniglar ferða
sinna með heimilið á bakinu, líkt og
þeir sem keyra Snail-bílana. Þeir
sniglast áfram um fjöll og firnindi.“
Góður og heimilislegur andi
Það er ótrúlega þægilegur andi yfir
Snail-fyrirtækinu enda reyna hjónin
að hafa allt eins persónulegt og
heimilislegt og hægt er. „Allir bílarnir
okkar er fullbúnir og þeim fylgir allt
til ferðalagsins. Svefnpokar, sængur,
koddar, gaseldavélar, eldhúsgræjur.
Við höfum alltaf stefnt að því að
útbúa bílana eins og við værum sjálf
að fara í ferðalag. Einnig tökum við
á móti öllum viðskiptavinum okkar
eins og um gesti væri að ræða. Fólk
hefur verið svo yfirmáta ánægt með
þjónustu okkar að það kemur aftur
og aftur. Það var til dæmis einn
viðskiptavinur, læknir frá Brehmen,
sem leigði hjá okkur bíl fyrsta árið
sem Snail starfaði. Síðan þá hefur
hann komið fimm sinnum í viðbót og
alltaf fengið að leigja sama bílinn.
Þegar hann frétti að við værum að
hætta að vinna þá keypti hann sér
sams konar bíl, kom hingað með
Norrænu og heimsótti okkur í sumar.
Við fórum út að borða saman og á
tónleika. Annar viðskiptavinur, þýskur
dýralæknir, hefur komið til okkar
þrisvar. Við hjálpuðum henni að
kaupa sér sumarhús í Stykkishólmi.
Við fáum ótal póstkort frá viðskipta-
vinum okkar úti í heimi og eigum
heimboð til langflestra. Nú er tíminn
til að nýta sér það. Ætli við eigum
ekki eftir að ferðast á milli landa með
fría gistingu í fimm ár?“ segir Sigrún
og hlær.
Reka menn ekki út í gaddinn
Snail.is starfar sex mánuði á ári, frá
maí til október. „Við höfum valið það
að bjóða ekki upp á Snail-bílana yfir
vetrarmánuðina enda búum við á
Íslandi og við vitum öll hvernig það er
á veturna. Það er illfært fyrir þessa
bíla og svo er eiginlega ekki mönn-
um bjóðandi að sofa úti í bíl í snjó og
gaddi. Starfsfólk okkar kemur víða að
úr heiminum til þess að vinna með
okkur yfir sumarmánuðina.
Við höfum haft fólk frá Tékklandi,
Þýskalandi , Finnlandi og Póllandi
sem við höfum bundist vinabönd-
um. Við vorum boðin í brúðkaup
í Tékklandi fyrir tveimur árum og
auðvitað skelltum við okkur. Sú sem
var að gifta sig hafði unnið hjá okkur
þrjú sumur í röð. Við höfum líka haft
pólskan bifvélavirkja síðustu þrjú
sumur sem er virkilega klár og heldur
bílunum okkar í toppformi. Það er
virkilega gaman að starfa á vinnu-
stað þar sem allt er á persónulegu
nótunum og kúnnarnir finna það
þegar þeir koma til okkar.“
Núll neikvæðar umsagnir á
TripAdvisor
Snail.is er eina bílaleigan á landinu
sem er ekki með eina einustu nei-
kvæða umfjöllun á TripAdvisor.
„Við höfum aldrei þurft að auglýsa
okkur enda sér fólk á ummælunum
hvers konar rekstur þetta er. Við
höfum auðvitað verið heppin með
viðskiptavini, en ég held að viðhorf
okkar til rekstrarins hafi ennþá meira
að segja þegar kemur að ánægð-
um viðskiptavinum. Ef það kemur
eitthvað upp á og viðskiptavinur
þarf hjálp, þá brunum við af stað,
hvar sem hann er staddur á landinu.
Ef það er ekki hægt að komast á
staðinn tímanlega þá björgum við
flutningi á næsta hótel og borgum
nóttina undir ferðalanginn/-lang-
ana. Einnig höfum við fengið gott
klapp á bakið frá Sjóvá. Þegar við
vorum að byrja voru tryggingafélög-
in treg að veita okkur tryggingu. En
eftir tíu ár í þessum bransa höfum
við bara misst einn bíl og erum við
og Sjóvá afar ánægð með þann ár-
angur. Auk þess erum við mjög dug-
leg í forvarnardeildinni. Við höldum
ítarlegan fyrirlestur fyrir alla okkar
viðskiptavini um það að ferðast um
Ísland á mismunandi árstíma. Fólk
er því vel undirbúið þegar það fer af
stað í ferðalagið.“
Leita að arftaka
Eftir að Sigrún og Árni byrjuðu fyrst
að leigja út bílana fjölgaði hratt
í kúnnahópnum. „Þetta byrjaði á
tveimur bílum og fyrir tveimur árum
vorum við komin með 60 bíla. Í
dag höfum við dregið þetta aðeins
saman enda erum við bæði komin
á aldur og orðin þreytt. Í dag erum
við með 35 bíla. Karlinn er kominn
á eftirlaun og ég á ekki langt í þau.
Því erum við í raun að auglýsa eftir
arftaka að fyrirtækinu. Þetta hefur
verið góður og heiðarlegur rekstur
í tíu ár og okkur langar til þess að
fyrirtækið fái framhaldslíf. Það er
margt hægt að gera með fyrirtæki
sem hefur jafn gott orðspor og Sna-
il,“ segir Sigrún.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.snail.is
Tangarhöfða 2, 110 Reykjavík
Sími: 533-1919
Vefpóstur: snail@snail.is
Fylgstu með á Facebook:
Snail.is – Motorhome Rental