Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Page 38
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ Hægt að treysta búnaðinum frá Donnu á ögurstundu Donna ehf. er leiðandi verslun með mikið úrval af búnaði sem ætlaður er til aðhlynn- ingar og flutnings á slösuðum. „Viðskiptavinir okkar eru meðal annars sjúkrabifreiðar, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, lögregla, al- mannavarnir, björgunarsveitir og fleiri aðilar. Donna ehf. er með nán- ast allt til þess að meðhöndla sjúk- ling frá þeim tímapunkti sem hann er sóttur á slysstað, uns hann kemur á sjúkrahúsið. Við erum til dæmis einn stærsti seljandinn á landinu á hjartastuðtækjum,“ segir Ólafur Magnússon, stofnandi og eigandi fyrirtækisins. Eingöngu viðurkenndar gæðavörur Vörurnar má panta í vefversluninni donna.is. „Við leitumst við að bjóða aðeins viðurkenndar gæðavörur þar sem viðskiptavinir okkar verða að geta treyst þeim á ögurstundu við erfiðustu aðstæður.“ Sett til þess að stöðva slagæða- blæðingar Donna selur sett frá SamMedical sem nefnist Bleeding Control Kit og er ætlað til stöðvunar á slagæða- blæðingum. Settið er sérlega hent- ugt þegar um alvarleg umferðarslys eða önnur óhöpp er að ræða. „Við höfum orðið vitni að mjög stórum og skæðum bílslysum undanfar- ið og miklar blæðingar geta leitt fljótt til dauða. Svona búnaður, til það stöðva blæðingu, getur komið sér afar vel þegar langt er í næstu hjálp.“ Stöðvið blæðingu settið inniheldur: • SAM XT Tourniquet (snarvöndul), • einnota hanska, • slysaskæri, • lofttæmda og sæfða pressaða grisju, • tússpenna (varanlegt blek), • þrýstiböggul og leiðbeiningar. Bleeding Control Kit pokinn er í lofttæmdum umbúðum og innsiglað- ur. Einfalt er að opna pokann og nota búnaðinn með því að rífa hann upp og renna aftur með plastlásnum. Gul blikkljós ljós fyrir atvinnubifreiðar Einnig selur Donna ljós fyrir atvinnu- bifreiðar. „Við erum með fjölbreytt úrval af gulum og bláum viðvör- unarljósum og ljósabogum af öllum stærðum og gerðum fyrir allar gerðir atvinnubíla. Öll ljósin frá okkur eru afar vönduð og með evrópskar viðurkenningar og vottanir.“ Nánari upplýsingar og fleiri vörur má nálgast á donna.is Donna ehf. er staðsett að Móhellu 2, 221 Hafnarfirði Sími: 555-3100 Vefpóstur: donna@donna.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.