Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Qupperneq 38
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Hægt að treysta búnaðinum
frá Donnu á ögurstundu
Donna ehf. er leiðandi verslun með mikið úrval af búnaði sem ætlaður er til aðhlynn-
ingar og flutnings á slösuðum.
„Viðskiptavinir okkar eru meðal
annars sjúkrabifreiðar, sjúkrahús,
heilsugæslustöðvar, lögregla, al-
mannavarnir, björgunarsveitir og
fleiri aðilar. Donna ehf. er með nán-
ast allt til þess að meðhöndla sjúk-
ling frá þeim tímapunkti sem hann
er sóttur á slysstað, uns hann kemur
á sjúkrahúsið. Við erum til dæmis
einn stærsti seljandinn á landinu
á hjartastuðtækjum,“ segir Ólafur
Magnússon, stofnandi og eigandi
fyrirtækisins.
Eingöngu viðurkenndar gæðavörur
Vörurnar má panta í vefversluninni
donna.is. „Við leitumst við að bjóða
aðeins viðurkenndar gæðavörur þar
sem viðskiptavinir okkar verða að
geta treyst þeim á ögurstundu við
erfiðustu aðstæður.“
Sett til þess að stöðva slagæða-
blæðingar
Donna selur sett frá SamMedical
sem nefnist Bleeding Control Kit og
er ætlað til stöðvunar á slagæða-
blæðingum. Settið er sérlega hent-
ugt þegar um alvarleg umferðarslys
eða önnur óhöpp er að ræða. „Við
höfum orðið vitni að mjög stórum
og skæðum bílslysum undanfar-
ið og miklar blæðingar geta leitt
fljótt til dauða. Svona búnaður, til
það stöðva blæðingu, getur komið
sér afar vel þegar langt er í næstu
hjálp.“
Stöðvið blæðingu settið inniheldur:
• SAM XT Tourniquet (snarvöndul),
• einnota hanska,
• slysaskæri,
• lofttæmda og sæfða pressaða
grisju,
• tússpenna (varanlegt blek),
• þrýstiböggul og leiðbeiningar.
Bleeding Control Kit pokinn er í
lofttæmdum umbúðum og innsiglað-
ur. Einfalt er að opna pokann og nota
búnaðinn með því að rífa hann upp
og renna aftur með plastlásnum.
Gul blikkljós ljós fyrir atvinnubifreiðar
Einnig selur Donna ljós fyrir atvinnu-
bifreiðar. „Við erum með fjölbreytt
úrval af gulum og bláum viðvör-
unarljósum og ljósabogum af öllum
stærðum og gerðum fyrir allar gerðir
atvinnubíla. Öll ljósin frá okkur eru
afar vönduð og með evrópskar
viðurkenningar og vottanir.“
Nánari upplýsingar og fleiri
vörur má nálgast á donna.is
Donna ehf. er staðsett að
Móhellu 2, 221 Hafnarfirði
Sími: 555-3100
Vefpóstur: donna@donna.is