Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Page 45
FÓKUS 4513. september 2019 skjápör með ótrú- legan aldursmun Í Í Hollywood, eða réttar sagt heimi fal- lega og fræga fólksins, skiptir aldurs- munur skjápars minna máli en fegurð og neisti á milli leikaranna sem skjáinn prýða. Í gegnum árin hefur það viðgeng- ist furðu lengi að karlpeningurinn eigi að deila hvíta tjaldinu með konu sem er tölu- vert yngri og hefur þetta lengi þótt vera sjálfsagt mál. Kvikmyndagerðin vestanhafs hefur aðeins tekið á þessu upp á síðkastið en kvikmyndasagan er engu að síður stút- full af undarlegum dæmum þar sem eldri karlmaðurinn gæti gegnt hlutverki föður frekar en elskanda. Kíkjum á átta dæmi. 8 Í spennumyndinni Training Day sjást leikararnir Denzel Washington og Eva Mendes stinga saman nefjum. Washington leikur alræmda og gjörspillta lögreglu, þannig að gefið er að ýmislegt í hans fari sé vafasamt. Aftur á móti er það víða þekkt regla – sem meira að segja Baltasar Kormákur sjálfur hefur staðfest – að Denzel fer ekki í rúmið með hvaða leikkonu sem er og segja margar sögur að hann velji mótleikkonur sínar sérstaklega. Það á ekki síst við þegar þær fækka fötum fyrir framan hann, en kannski er 19 ára aldursmunur minna mál þegar Denzel lítur yfirleitt út fyrir að vera tíu árum yngri en hann er í raun. Það er venjulega undantekn- ing ef stórleikarinn Tom Cruise á sér elskhuga í kvikmyndum sem er á sama aldri og hann. Í vísindaskáldsögunni Edge of Tomorrow fljúga nokkrir neistar á milli hans og bresku leikkonunnar Emily Blunt, sem er talin ein sú hæfileikaríkasta í dag. Hins vegar er það eitthvað við aldursmuninn sem stöðvar umrætt neistaflug og úr verður samspil sem frændsystkin væru sátt við. Straumarnir sem ríkja á milli þeirra Johnny Depp og Amber Heard í kvikmyndinni The Rum Diary eru eldfimir og óumdeilanlegir – þrátt fyrir að styttra sé á milli aldurs hennar og dóttur Depps en leikaranna beggja. Þessi mikli losti sem komst til skila á skjánum gæti verið ástæðan fyrir því að parið tók upp á því að stinga saman nefj- um þegar tökuvélarnar voru hættar að rúlla og leiddi það síðar meir til hjónabands. Ekki fór þó ástarævintýrið alveg eftir væntingum þeirra en skilnaður þeirra var eitt stærsta fréttafóður slúðurmiðla síðustu árin. Leikkonan ásakaði Depp um að hafa beitt hana ofbeldi meðan á sambandinu stóð en þá stefndi leikarinn Heard fyrir ófrægingu og ærumeiðingar og krafðist 50 milljóna Bandaríkjadala í bætur. Mikið getur ástin verið ljúf. Það muna sjálfsagt ekki allir eftir rómantísku ævintýramyndinni Six Days, Seven Nights, þar sem þau Harrison Ford og Anne Heche sneru saman bökum. Uppskriftin er sígild (eða dæmigerð); þau hata hvort ann- að í fyrstu en hægt og rólega fer róm- antíkin að skína á milli þeirra. Aldurs- munurinn stöðvar ekkert í þessu. Þetta er þó ekki langt frá tölunni hjá Ford og eiginkonu hans, leikkonunni Calistu Flockheart. Ef eitthvað hefur verið gegnumgangandi í kvikmyndum leikstjórans Woodys Allen, þá er það hefð kvikmyndagerðarmannsins og leikarans að sækja í yngri konur. Í raunheimi hefur sambærileg fantasía oft átt sér stað, en trúlega er versta bíóbrot- ið framið með kvikmyndinni Manhattan, sem er af mörgum talin ein besta mynd Allen. Í þessari mynd leikur Allen rithöfund á fimmtugsaldri sem byrjar að slá sér upp með sautján ára gömlum nema, sem leikinn er af Mariel Hemingway. Ekki bætti úr skák þegar leikstjórinn fór að daðra á hvíta tjaldinu við leikkonuna Miru Sorvino í Mighty Aphrodite frá árinu 1995, þegar hann var nýskriðinn á sjötugsaldurinn en hún aðeins 28 ára. Woody, þó! Enn og aftur er Woody Allen að verki, þótt hann sé ekki sjálfur í aðalhlutverki. Í myndinni Magic in the Moonlight frá 2014 eru ýmsir straumar á milli leikaranna Colins Firth og Emmu Stone. Þetta virkar blásaklaust við fyrstu sýn, þangað til áhorf- andinn er minntur á þá litlu staðreynd að Firth var 53 ára meðan á tökum stóð en Emma 25 ára. Tunglsljósið hefur væntanlega þessi áhrif, ef eitthvað er að marka titil myndarinnar. Fyrrverandi Bond-leikarinn Sean Connery var 69 ára þegar hann lék meistaraþjóf sem mætir jafningja sínum, sem reynist vera Catherine Zeta-Jones. Kvikmyndin sem um ræðir heitir Entrapment en við tökur hennar var Zeta-Jones nýorðin þrítug. Sennilega skrifast þetta á ómældan sjarma Connery, eða í það minnsta er áhorfendum talin trú um að það sé málið. Aldursmunurinn virðist þó ekki koma í veg fyrir þá stöðugu, kyn- ferðislegu spennu sem ríkir á milli persónanna. Hver segir svo að aldur sé ekki afstæð- ur? Það hefur lengi verið gömul hefð í kvikmyndum vestanhafs að rithöf- undar leiti að elskhuga sem er tölu- vert yngri. Í kvikmyndinni Starting Out in the Evening fer Frank Lang- ella með hlutverk eins slíks og hefur hann samband við útskriftarnema sem er heilum fjórum áratugum yngri en hann í sögunni. Þetta er líka munurinn á milli aldurs þeirra Langella og leikkonunnar Lauren Ambrose. Verkið dæmir sig sjálft. Sean Connery og Catherine Zeta-Jones – 39 ár Denzel Washington og Eva Mendes – 19 ár Frank Langella og Lauren Ambrose – 40 ár Harrison Ford og Anne Heche – 27 ár Woody Allen og Mariel Hemingway – 31 ár Johnny Depp og Amber Heard – 23 ár Tom Cruise og Emily Blunt – 20 ár Colin Firth og Emma Stone – 28 ár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.