Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Síða 45
FÓKUS 4513. september 2019
skjápör með ótrú-
legan aldursmun
Í
Í Hollywood, eða réttar sagt heimi fal-
lega og fræga fólksins, skiptir aldurs-
munur skjápars minna máli en fegurð
og neisti á milli leikaranna sem skjáinn
prýða. Í gegnum árin hefur það viðgeng-
ist furðu lengi að karlpeningurinn eigi að
deila hvíta tjaldinu með konu sem er tölu-
vert yngri og hefur þetta lengi þótt vera
sjálfsagt mál. Kvikmyndagerðin vestanhafs
hefur aðeins tekið á þessu upp á síðkastið
en kvikmyndasagan er engu að síður stút-
full af undarlegum dæmum þar sem eldri
karlmaðurinn gæti gegnt hlutverki föður
frekar en elskanda.
Kíkjum á átta dæmi.
8
Í spennumyndinni Training Day sjást leikararnir Denzel Washington og Eva Mendes
stinga saman nefjum. Washington leikur alræmda og gjörspillta lögreglu, þannig að
gefið er að ýmislegt í hans fari sé vafasamt. Aftur á móti er það víða þekkt regla – sem
meira að segja Baltasar Kormákur sjálfur hefur staðfest – að Denzel fer ekki í rúmið
með hvaða leikkonu sem er og segja margar sögur að hann velji mótleikkonur sínar
sérstaklega. Það á ekki síst við þegar þær fækka fötum fyrir framan hann, en kannski
er 19 ára aldursmunur minna mál þegar Denzel lítur yfirleitt út fyrir að vera tíu árum
yngri en hann er í raun.
Það er venjulega undantekn-
ing ef stórleikarinn Tom Cruise
á sér elskhuga í kvikmyndum
sem er á sama aldri og hann.
Í vísindaskáldsögunni Edge
of Tomorrow fljúga nokkrir
neistar á milli hans og bresku
leikkonunnar Emily Blunt, sem
er talin ein sú hæfileikaríkasta í
dag. Hins vegar er það eitthvað
við aldursmuninn sem stöðvar
umrætt neistaflug og úr verður
samspil sem frændsystkin væru
sátt við.
Straumarnir sem ríkja á milli þeirra Johnny Depp og Amber Heard í kvikmyndinni
The Rum Diary eru eldfimir og óumdeilanlegir – þrátt fyrir að styttra sé á milli aldurs
hennar og dóttur Depps en leikaranna beggja. Þessi mikli losti sem komst til skila
á skjánum gæti verið ástæðan fyrir því að parið tók upp á því að stinga saman nefj-
um þegar tökuvélarnar voru hættar að rúlla og leiddi það síðar meir til hjónabands.
Ekki fór þó ástarævintýrið alveg eftir væntingum þeirra en skilnaður þeirra var eitt
stærsta fréttafóður slúðurmiðla síðustu árin. Leikkonan ásakaði Depp um að hafa
beitt hana ofbeldi meðan á sambandinu stóð en þá stefndi leikarinn Heard fyrir
ófrægingu og ærumeiðingar og krafðist 50 milljóna Bandaríkjadala í bætur. Mikið
getur ástin verið ljúf.
Það muna sjálfsagt ekki allir eftir
rómantísku ævintýramyndinni Six
Days, Seven Nights, þar sem þau
Harrison Ford og Anne Heche sneru
saman bökum. Uppskriftin er sígild
(eða dæmigerð); þau hata hvort ann-
að í fyrstu en hægt og rólega fer róm-
antíkin að skína á milli þeirra. Aldurs-
munurinn stöðvar ekkert í þessu.
Þetta er þó ekki langt frá tölunni hjá
Ford og eiginkonu hans, leikkonunni
Calistu Flockheart.
Ef eitthvað hefur verið gegnumgangandi í kvikmyndum leikstjórans Woodys Allen,
þá er það hefð kvikmyndagerðarmannsins og leikarans að sækja í yngri konur. Í
raunheimi hefur sambærileg fantasía oft átt sér stað, en trúlega er versta bíóbrot-
ið framið með kvikmyndinni Manhattan, sem er af mörgum talin ein besta mynd
Allen. Í þessari mynd leikur Allen rithöfund á fimmtugsaldri sem byrjar að slá sér
upp með sautján ára gömlum nema, sem leikinn er af Mariel Hemingway. Ekki bætti
úr skák þegar leikstjórinn fór að daðra á hvíta tjaldinu við leikkonuna Miru Sorvino
í Mighty Aphrodite frá árinu 1995, þegar hann var nýskriðinn á sjötugsaldurinn en
hún aðeins 28 ára. Woody, þó!
Enn og aftur er Woody Allen að verki, þótt hann sé ekki sjálfur í aðalhlutverki. Í
myndinni Magic in the Moonlight frá 2014 eru ýmsir straumar á milli leikaranna
Colins Firth og Emmu Stone. Þetta virkar blásaklaust við fyrstu sýn, þangað til áhorf-
andinn er minntur á þá litlu staðreynd að Firth var 53 ára meðan á tökum stóð en
Emma 25 ára. Tunglsljósið hefur væntanlega þessi áhrif, ef eitthvað er að marka titil
myndarinnar.
Fyrrverandi Bond-leikarinn Sean Connery var 69 ára þegar hann lék meistaraþjóf sem
mætir jafningja sínum, sem reynist vera Catherine Zeta-Jones. Kvikmyndin sem um
ræðir heitir Entrapment en við tökur hennar var Zeta-Jones nýorðin þrítug. Sennilega
skrifast þetta á ómældan sjarma Connery, eða í það minnsta er áhorfendum talin trú
um að það sé málið. Aldursmunurinn virðist þó ekki koma í veg fyrir þá stöðugu, kyn-
ferðislegu spennu sem ríkir á milli persónanna. Hver segir svo að aldur sé ekki afstæð-
ur?
Það hefur lengi verið gömul hefð í
kvikmyndum vestanhafs að rithöf-
undar leiti að elskhuga sem er tölu-
vert yngri. Í kvikmyndinni Starting
Out in the Evening fer Frank Lang-
ella með hlutverk eins slíks og hefur
hann samband við útskriftarnema
sem er heilum fjórum áratugum
yngri en hann í sögunni. Þetta er
líka munurinn á milli aldurs þeirra
Langella og leikkonunnar Lauren
Ambrose. Verkið dæmir sig sjálft.
Sean Connery og Catherine
Zeta-Jones – 39 ár
Denzel Washington
og Eva Mendes – 19 ár
Frank Langella
og Lauren
Ambrose – 40 ár
Harrison Ford og
Anne Heche – 27 ár
Woody Allen
og Mariel
Hemingway
– 31 ár
Johnny Depp og Amber
Heard – 23 ár
Tom Cruise og Emily
Blunt – 20 ár
Colin Firth og
Emma Stone
– 28 ár