Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 23
Sjávarútvegsblaðið 20. september 2019 KYNNINGARBLAÐ LOFTSTOKKAHREINSUNIN K2: Hreinsaðu andrúmsloftið í skipinu Loftstokkahreinsunin K2 sérhæfir sig í hreinsun á loftstokkum, loft-ræstikerfum og eldhúsháfum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofn- anir. Fyrirtækið var stofnað árið 1999 og hefur síðan þá byggt upp mjög gott orðspor innan iðnaðarins. „Stór hluti verkefna okkar kemur til vegna tilvísunar viðskiptavina og endurtek- inna viðskipta og við erum staðráðin í að veita fyrsta flokks þjónustu á samkeppnishæfu verði. Súrefni er manninum nauðsynlegt og okkar markmið er að það sé gott and- rúmsloft í hverju einasta rými,“ segir Sigurður Jónsson, þjónustufulltrúi K2. Loftstokkahreinsunin K2 er í nánu samstarfi við ýmis fyrirtæki sem hafa yfir að ráða viðamikilli sérþekk- ingu á ýmsum sviðum loftræsti- kerfa. „Með þessu samstarfi getum við tryggt viðskiptamönnum okkar ýmsa sértæka þjónustu sem hluta af heildarlausn, sé þess óskað.“ Loftstokkahreinsunin K2 hreinsar loftræstikerfi „Eins hagnýtt og loftræstikerfi getur verið, á vinnustað, heima eða annars staðar í híbýlum fólks, getur það hæglega breyst yfir í andstæðu sína ef ekki er hugað að reglulegu eftirliti og þrifum á kerfinu.“ Byotrol- -mistrið sem Loftstokkahreinsun K2 hefur notað með góðum árangri hefur valdið byltingu í sótthreinsun og er þar að auki náttúruvænt hreinsiefni. Með því að sótthreinsa loftræstikerfið með Byotrol-mistri og húða það með polymer, lengist líftími kerfisins. Mistrið smýgur um allt rýmið, líka á þá staði sem hefð- bundnar hreinsunaraðgerðir ná ekki til. Byotrol er með öllu hættulaust. „Aðferðin dregur mjög úr hættunni á að örverur, rykagnir og önnur skaðleg óhreinindi setjist að í kerfinu. Rannsóknir sýna að efnið er 99,9% virkt gegn bakteríum, þ.m.t. salmon- ellu, listeríu og sthaphylococcus.“ Skipverjar þurfa líka gott loft Þurrt loft og yfir- eða undirþrýsting- ur getur haft víðtæk áhrif á líðan starfsmanna og viðskiptavina. Með því að hreinsa reglulega og hafa eftirlit með loftræstingu má koma í veg fyrir að slíkt gerist og í mörgum tilfellum auka afköst og fækka veik- indadögum starfsmanna. „Starfsmenn Loftstokka- hreinsunarinnar K2 hreinsuðu loft- ræstikerfið í Skógarfossi í fyrra. Við erum mjög ánægðir með þjónustuna og finnum greinilega breytingu til batnaðar. Það er einfaldlega miklu betra loft um borð og mun meiri kraftur á kerfinu.“ Umsögn frá Eim- skipafélagi Íslands. Fyrir fjölbýlishúsið Eðlilegt er að gera úttekt á loftræsti- kerfi fjölbýlishúsa og hreinsa það á 3–5 ára fresti. Loftstokkahreinsunin K2 hefur séð um hreinsun á loft- stokkum og loftræstikerfum fjölda fjölbýlishúsa. Hreinsun fer þá fram uppi á millilofti eða þar sem blásar- inn er staðsettur. Einnig er farið inn í hverja íbúð þar sem allar ristar eru teknar niður, lagnir hreinsaðar og ef óskað er eftir þá er loftræsting sótthreinsuð með Byotrol-mistri. „Við sótthreinsun myndast polymer- -húð innan á veggi loftræstikerfisins sem heldur örverum, bakteríum og öðrum óþrifnaði fjarri. Eins skiptum við út túðum þar sem þess er þörf. Það er lítið ónæði fyrir íbúa hússins við svona hreinsun og yfirleitt tekur það ekki meira en 10–15 mínútur að klára hverja íbúð eftir að búið er að hreinsa lagnir og blásara frá þaki.“ Fólk finnur gífurlegan mun á loftinu eftir að það er búið að hreinsa loft- stokkana eins og sést hér á umsögn eins viðskipavinar. „Fólkið í blokkinni okkar er mjög ánægt og við finnum merkjanlegan mun á loftinu í íbúðunum. Þetta var greinilega mjög tímabært verk og starfsfólk K2 vann það fljótt og örugglega.“ Umsögn frá húsfélaginu í Engihjalla 7, Kópavogi. Hefur þú hreinsað háfinn nýlega? Loftstokkahreinsunin K2 býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun á eldhúsháfum á heimilum sem og veitingastöðum. Nauðsyn- legt er að gera reglulega úttekt á eldhúsháfum og hreinsa þá einu sinni eða oftar á ári. Regluleg hreinsun eldhúsháfa stuðlar að: • Minni eldhættu • Kröftugra útsogi • Lengri líftíma blásara • Rafmagnssparnaði • Þægilegra vinnuumhverfi heimilismanna og starfs- manna „Eftir fyrstu hreinsun bjóðum við upp á að koma og meta ástand á loftræstingu frá eldhúsi á nokkura mánaða fresti til að sjá hvað þarf að líða langt á milli hreinsana. Ekkert er rukkað fyrir þá þjónustu á höfuð- borgarsvæðinu. Stefna okkar er að vera ávallt með bestu fáanlegu efni, tæki og búnað. Allir okkar starfsmenn hafa sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er. Ekkert verkefni er of stórt eða of smátt fyrir okkur,“ segir Sigurður. Skrifstofur eru bæði í Reykjavík og á Reykjanesinu. Sími: 557-7000 og vaktsími 775-7770 Vefpóstfang: k2@k2.is Heimasíða: www.k2.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.