Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 42
42 MATUR 20. september 2019 Segðu það m eð Lakkrísinn góði hefur fylgt Íslendingum um áratugaskeið og virðast vinsældir hans aldrei dvína. Þótt lakkrís sé ekki það hollasta sem við getum látið ofan í okkur þá má stundum gera vel við sig með einni lúku eða svo. Einnig er einstaklega skemmtilegt að baka með lakkrís – eitthvað sem allir lakkrísunnendur þurfa að prófa. Ótrúlega einfalt Það er ekkert mál að búa til lakkrís heima fyrir. Hráefni: n 8 msk. smjör n 1 bolli sykur n 1/2 bolli „corn syrup“ n 1/2 bolli sæt mjólk („sweetened condensed milk“) n 1/4 bolli melassi n 1/8 tsk. sjávarsalt n 3/4 bolli heilhveiti n 1 1/2 msk. anísolía n 1 1/2 tsk. svartur matarlitur Aðferð: Setjið bökunarpappír í ílangt form, sirka 23 sentimetra langt, og smyrjið það líka. Leyfið pappírnum að koma upp á hliðunum svo auðveldara verði að taka lakkrísinn úr forminu. Setjið smjör, sykur, „corn syrup“, mjólkina, melassa og salt í pott og hitið yfir háum hita þangað til það nær 130°C hita. Hér þarf að nota hitamæli. Takið pottinn af hellunni og blandið hveiti, olíunni og matarlitnum út í. Hrærið vel saman. Hellið blöndunni í formið og leyfið þessu að kólna inn í ísskáp í 30 til 45 mínútur. Takið lakkrísinn úr forminu og færið yfir á skurðarbretti. Skerið lakkrísinn í lengjur og snúið upp á þær. Auðvitað er líka hægt að leika sér með þetta og hafa lakkrísinn í laginu eins og maður vill. Setjið herlegheitin á bökunarpappír og aftur inn í ísskáp í 20 til 30 mínútur. Botn – Hráefni: n 2 1/2 bolli hveiti n 1 msk. sykur n 1/2 tsk. salt n 225 g kalt smjör, skorið í teninga n 5–6 msk. ískalt vatn Fylling – Hráefni: n 5–6 lítil epli (án hýðis og skorin í litla bita) n 4 msk. maíssterkja n 6 msk. púðursykur n 1 tsk. kanill n 1 msk. vanilludropar n 1 msk. sítrónusafi n 3 msk. lakkrísduft Ofan á – Hráefni: n 3 msk. smjör n 1 egg n 2 msk. mjólk n 3 msk. lakkríssíróp Aðferð: Byrjum á botninum. Blandið saman hveiti, sykri og salti í skál. Blandið smjörinu saman og vinnið það inn í þurrefnablönduna með höndunum þar til blandan líkist mulningi. Hellið ískalda vatninu saman við, einni matskeið í einu, og hnoðið þar til deig hefur myndast. Skellið deiginu inn í ísskáp í um tvær klukkustundir. Skiptið því síðan í tvo hluta og fletjið út. Stillið ofninn á 200°C og setjið annan hlutann í smurt bökuform. Búið síðan til fyllinguna. Blandið öllum hráefnum í fyllinguna vel saman í skál og látið standa í um 30 mínútur. Sigtið mesta vökvann frá eplafyllingunni og hellið henni ofan á bökubotninn. Skerið strimla úr deiginu sem þið eruð ekki búin að nota og raðið þeim fallega ofan á eplafyllinguna. Skerið smjörið í litla bita og setjið hér og þar ofan á eplafyllinguna. Blandið saman eggi og mjólk og penslið deigið sem þið settuð ofan á eplakökuna. Bakið við 200°C í sirka 10 mínútur. Minnkið síðan hitann í 175°C og bakið í 30 til 40 mínútur eða þar til bakan er orðin fallega gullinbrún. Svo er lakkríssírópinu hellt yfir til að gera lakkrísbragðið enn sterkara. Kaka – Hráefni: n 100 g smjör n 2 egg n 270 g sykur n 2 tsk. lakkrískökuskraut n 3 msk. lakkrísduft n 130 g hveiti n 4 msk. kakó n smá salt Krem – Hráefni: n 75 g dökkt súkkulaði n 75 ml rjómi n 3–4 msk. lakkríssíróp n lakkrískökuskraut (til að skreyta með) Aðferð: Byrjum á kökunni. Hitið ofninn í 200°C og smyrjið hringlaga form. Bræðið smjörið og setjð það til hliðar. Blandið saman eggjum, sykri, lakkrískökuskrauti og lakkrísdufti. Bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Bætið þurrefnunum saman við eggjablönduna og hrærið þar til allt er orðið blandað saman. Hellið deigi í form og bakið í lægsta hluta ofnsins í 15 til 17 mínútur. Svo er það kremið. Hitið rjómann og lakkríssírópið í potti eða örbylgjuofni þar til rjóminn byrjar að sjóða. Saxið súkkulaði og hellið rjómablöndunni yfir það. Leyfið þessu að standa í smá stund og hrærið síðan vel. Leyfið blöndunni að kólna aðeins áður en þið hellið henni yfir kalda kökuna. Skreytið síðan með lakkrískökuskrautinu. lakkrís Hráefni: n 150 g dökkt súkkulaði n 90 g rjómi n 1 1/2 msk. smjör (skorið í litla bita) n 50 g lakkrísbitar n 5–9 msk. lakkrísduft Aðferð: Saxið súkkulaðið og setjið það í skál sem þolir háan hita. Hitið rjómann og smjör í potti eða í örbylgjuofni þar til blandan byrjar að sjóða. Hellið rjómablöndunni yfir súkkulaðið og leyfið því að standa í nokkrar mínútur á meðan súkkulaðið bráðnar. Hrærið allt vel saman, setjið plastfilmu yfir súkkulaðiblönduna og geymið í ísskáp í að minnsta kosti fimm klukkustundir, eða yfir nótt. Gerið litlar kúlur úr súkkulaðiblöndunni og stingið litlum lakkrísbita í miðjuna. Rúllið kúlunum upp úr lakkrísduftinu og þá eru trufflurnar tilbúnar. Æðislegar la kkrístrufflu r Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Heimagerður lakkrís Sænsk kladdkaka með lakkrís Sjúk lakkrís- eplakaka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.