Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 36
Allt fyrir börnin 20. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Barnaloppan breytir
kauphegðun Íslendinga, eitt
lítið flóarskref í einu
Barnaloppan er kærkomin bylting á íslenskum markaði en hjónin Guðríði
Gunnlaugsdóttur og Andra Jónsson
dreymdi um að fara í rekstur
sem hjálpaði umhverfinu. „Það er
ótrúlegt hvað fólk hefur tekið vel á
móti okkur. Að opna Barnaloppuna
er örugglega ein besta og
skemmtilegasta ákvörðun sem við
höfum tekið,“ segir Andri.
Boltinn byrjaði að rúlla í DK
„Við bjuggum um tíma í Danmörku
og nýttum okkur mjög mikið
flóamarkaði þar. Við erum bæði
uppalin í Skandinavíu og bjuggum
á Íslandi áður en við fluttum aftur
út í nám. Bæði höfðum við lengi
keypt notaðar vörur á okkur sjálf
og börnin okkar og þótti okkur
ótrúlega skemmtilegt að rölta
um endilanga Kaupmannahöfn
og gera góða „díla“ á alls konar
mörkuðum. Það var síðan mánuði
áður en við fluttum aftur heim til
Íslands að hugmyndin að
Barnaloppunni kviknaði.
Við prófuðum nefnilega
sjálf að vera með
bás á sams konar
loppumarkaði í
Danmörku, þar sem
við seldum
fatnað og
fleira af
stelpunum
okkar. Það
var reyndar
alltaf planið að
opna einhvers
konar „second-
hand“ búð,“
segir Guðríður.
Mér hafði ekki
dottið nákvæmlega
þessi hugmynd í
hug þar sem þessi
tegund af markaði
er að finnskri
fyrirmynd og því ekki á hverju strái
á Norðurlöndunum. En snilldin við
Loppuna er að við sjáum alfarið um
söluna og sinnum viðskiptavinum
verslunarinnar eftir að leigjendur
hafa sett básana sína upp. Svo
er hægt að fylgjast með sölunni
í rauntíma í gegnum símann eða
tölvuna. Þannig er Barnaloppan
frábrugðin þessum venjulegu
mörkuðum sem við þekkjum þar sem
fólk stendur sjálft og selur.
Guðríður Gunnlaugsdóttir.
Í rauninni fannst okkur við
vera að taka smá áhættu með
opnun Barnaloppunnar. Því fylgir
ákveðið stress að vera fyrst á
markað með ákveðið „konsept“
og vita ekki hvernig móttökur það
fær. Fljótlega eftir opnun varð
ljóst að það var mikil þörf á svona
verslun og við erum afar þakklát
fyrir frábærar móttökur. Það er
líka virkilega gaman að sjá hvað
Íslendingar eru orðnir meðvitaðir
um umhverfisþáttinn og finnst
gaman að taka þátt með því að
hugsa vel um litlu „búðina sína“
hjá okkur. Við viljum líka trúa
því að við séum búin að eiga
smá þátt í að breyta kúltúr
og kauphegðun Íslendinga,
bæði með því að bjóða
upp á auðveldari leið til
að endurnýta og losa
sig við varning, og
kaupa „second
hand“ vörur á
frábæru verði.“
Barnavörur og
meðgöngufatnaður
Í Barnaloppunni
fæst allt fyrir barnið og
nýbakaða foreldra. Allt
frá fatnaði og leikföngum
til barnavagna og bílstóla.
„Svo er einnig í boði að selja
meðgöngu- og gjafafatnað hjá
okkur. Það er eiginlega galið að
endurnýta ekki þessar vörur þar sem
notkunargildið takmarkast oftar en
ekki við nokkra mánuði. Við erum oft
spurð upp í hvaða aldur megi selja,
en við miðum við börn á aldrinum
0–16 ára og bendum fólki á
Extraloppuna ef það hyggst selja
fullorðinsfatnað og
aðrar heimilisvörur.“
Spöruðu miklar
fjárhæðir á að
kaupa notað
Úrvalið í
Barnaloppunni kemur fólki
mikið á óvart. „Við erum
með 206 bása í búðinni
og hátt í 20.000 vörur,
og á hverjum degi setja
nýir aðilar upp bása
þar sem leigutímabilin
eru mislöng. Vika er
þó lágmarks leigutími.
Sömuleiðis eru þeir
sem eru með bása sífellt
að skipta út vörum og fylla
á básana sína og því er á
hverjum einasta degi eitthvað
nýtt á boðstólum. Það er gaman
að að segja frá því að það kom
til okkar par fyrir stuttu sem átti
von á sínu fyrsta barni. Þau höfðu
útbúið langan lista af hlutum sem
átti að kaupa fyrir barnið á meðan
faðirinn væri erlendis. Maðurinn
er flugmaður og ætlun hans var
að kaupa vörurnar á listanum í
Bandaríkjunum. Listinn hljóðaði
upp á hátt í 200.000 krónur
miðað við verðlagið úti. Þau kíktu
í Barnaloppuna af rælni til að
athuga hvort þau fyndu eitthvað
af listanum. Eftir að hafa verið hér í
tvo tíma komu þau að kassanum og
sögðu okkur að þau hefðu náð að
strika allt út af listanum fyrir 60.000
krónur! Þau spöruðu sér þarna
140.000 krónur, og það miðað við
verðið í Bandaríkjunum. Algjörlega
frábært.“
Íslendingar eru sífellt að verða
meðvitaðri um umhverfið og sýna
það í verki með því að flokka
flöskur, plast, málm og
pappa, vera
með moltu og
jafnvel kjúklinga
í garðinum. „Við
eru líka sífellt
að verða
betri í því að
endurnýta.
Desember
í fyrra kom
okkur til dæmis
skemmtilega á
óvart en þá kom
fólk hingað inn í
stórum stíl til að
kaupa jólafatnað
á börnin sín og
jólagjafir handa
börnunum í kringum sig. Þannig
að það er klárlega að aukast að
fólk gefi notaðar gjafir og ef við
foreldrarnir gerum það, munu
börnin okkar alast upp við að þetta
sé hinn eðlilegasti hlutur og það er
þróun í rétta átt. Gott fyrir budduna
og enn betra fyrir umhverfið og
móður jörð.“
Nánari upplýsingar á
www.barnaloppan.is
Fylgstu með okkur á Facebook
og Instagram: Barnaloppan –
Barnaloppan
Barnaloppan, Skeifan 11d, 108
Reykjavík
Sími: 620-2080
Vefpóstur: info@barnaloppan.is