Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 40
40 PRESSAN 20. september 2019
H
ver er konan á bak við
risastóru sólgleraugun
og þetta dularfulla
Mónu Lísu-bros? Þetta
er Melania Trump sem er 45.
forsetafrú Bandaríkjanna.
En andstætt því sem síðustu
þrjár forsetafrúr, þær Michelle
Obama, Hillary Clinton og Laura
Bush, gerðu þá lætur Melania
sjaldan uppi hvað er að gerast á
bak við fagurt yfirborðið.
„Ég held að Melania Trump
geti sagt okkur sögur
sem myndu láta okkur
standa á öndinni. En
hún heldur þessu
út af fyrir sig.
Melania er eins og
einhyrningur. Hún
er óvenjulegasta
forsetafrúin á
síðari tímum
í bandarískri
sögu,“
segir Kate
Bennett,
fréttakona
hjá CNN,
um
forsetafrúna. Í desember kemur
bókin „Free Melania“ út en hún
er einmitt eftir Bennett. Bennett
hefur fjallað um líf Melaniu
frá því í janúar í starfi sínu hjá
CNN. En kannski er það Brigitte
Macron, forsetafrú í Frakklandi,
sem hefur komist næst Melaniu.
Í nýlegu viðtali við breska
dagblaðið The Guardian talaði
hún um Melaniu:
„Melania Trump er heillandi
og athugul. Húmor okkar
er svipaður. Hún elskar að
grínast og hlæja. Melania er
orðin góð vinkona mín,“ sagði
Brigitte Macron en hún eyddi
töluverðum tíma með Melaniu
á meðan fundur leiðtoga G7-
ríkjanna fór fram í Frakklandi
fyrir skömmu.
Æskuárin
Melania Knavs, eins og hún hét
þá, hitti Donald Trump í fyrsta
sinn í samkvæmi í New York
1998. Þau gengu í hjónaband
2005. Meðal gesta í brúðkaupi
þeirra voru þau Bill og Hillary
Clinton sem síðar urðu erkióvinir
Trump.
Melania flutti til
Bandaríkjanna þegar
hún var 26 ára en hún er nú
49 ára. Hún starfaði sem
fyrirsæta í New York og
var lífið í stórborginni allt
öðruvísi en lífið í heimalandi
hennar, Slóveníu. Hún er
frá litlum bæ sem heitir
Sevnica. Faðir hennar,
Viktor Knavs, var leiðtogi
kommúnistaflokksins í bænum.
Móðir hennar, Amalija, starfaði
sem saumakona. Fjölskyldan
bjó í íbúð í miðbænum. Íbúar í
Sevnica gera að vonum mikið úr
því að forsetafrú Bandaríkjanna
sé þaðan og geta ferðamenn
farið í sérstakar „Melania-
rútuferðir“. Í ferðunum er sagt frá
æsku Melaniu. Meðal annars fær
fólk að heyra að áður en Melania,
sem hét Melanija áður en hún
flutti til Bandaríkjanna, hafi
ræktað lauk með móður sinni.
Á unglingsárunum prjónaði
hún sínar eigin peysur. Fyrsta
fyrirsætustarfið fékk hún þegar
hún var fimm ára en það var hjá
fataverksmiðju í nágrenninu.
Á unglingsárunum fór hún á
diskótek þar sem hún dansaði
við tónlist Wham og Georges
Michael. Þangað fór hún á
skellinöðru með unnusta sínum.
Melania var á unglingsaldri
þegar hún flutti til Mílanó á Ítalíu
með eldri systur sinni, Ines. Þær
systur eru miklar vinkonur og
er Ines sögð vera besta vinkona
Melaniu. Ines á einmitt íbúð við
hlið Trump Tower í New York
en hún er metin á sem svarar
til á þriðja hundrað milljóna
íslenskra króna.
Raunveruleiki sem þau vildu
ekki
Eftir kosningasigurinn 2016 bjó
Melania áfram í New York með
syni hennar og Trump, Barron.
Þegar skólaárinu lauk hjá honum
hálfu ári síðar flutti hún gegn vilja
sínum inn í Hvíta húsið eftir því
sem Washington Post segir. Kate
Bennett segir að tregða Melaniu
til að sinna starfi forsetafrúar sé
ekkert einsdæmi. Bæði Laura
Bush og Michelle Obama hafi
játað að þær hafi eingöngu verið
í hinu pólitíska sviðsljósi vegna
eiginmanna sinna.
Barbara Walters sjónvarps-
fréttakona segir að starfið sem
forsetafrú sé allt annað en
þakklátt. Konurnar séu alltaf
bornar saman við Jackie Kennedy
og ef annar pólitíski vængurinn
elski þær þá hati hinn þær.
Kate Bennett segir að
andstaða Melaniu við starfið
sem forsetafrú sé þó í sérflokki.
Heimildarmenn hennar segi
að Donald Trump hafi lofað
henni að kosningabaráttan væri
bara leið til að auka viðskipti og
umsvif Trump Enterprise, sem
er fjölskyldufyrirtækið. Trump
hafi verið sömu skoðunar og
allir helstu stjórnmálaskýrendur
heims um að engar líkur væru á
að hann sigraði í kosningunum.
„Á þann hátt eru þau föst í
raunveruleika sem þau vildu
ekki að yrði að veruleika,“ sagði
hún í samtali við CNN. n
Dulúð Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna.
Hin
dularfulla
Melania
Dularfyllsta forsetafrú sögunnar
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
M
Y
N
D
: G
ET
T
Y
IM
A
G
ES
M
Y
N
D
: G
ET
T
Y
IM
A
G
ES
M
Y
N
D
: G
ET
T
Y
IM
A
G
ES
Umkringd fjölmiðlafólki Það
mæðir oft mikið á Melaniu.
Hendi á hjarta
Ásamt eiginmanninum,
Donald Trump.„Á þann
hátt eru
þau föst í raun-
veruleika sem
þau vildu ekki að
yrði að veruleika