Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 6
6 20. september 2019FRÉTTIR Dýrmætur afskurður skilinn eftir n Blöð, stilkar og þess háttar skorið af og skilið eftir í verslunum landsins n Bæði umhverfis- og sparnaðarsjónarmið U mhverfisvitund almennings eykst jafnt og þétt og virðast sífellt fleiri átta sig á hve mikilvægt er að spyrna fótum gegn loftslagsbreytingum. Eins og DV sagði frá í síðustu viku er matarsóun einn af lykilþáttum í loftslagsbreytingum, en jafnframt þá þáttur sem alltof margir horfa framhjá. Verslanir taka hins vegar eftir einni tískubylgju, ef svo má segja, sem umhverfissinnar hafa tileinkað sér í meira mæli undanfarið – það er að fjarlægja „óþarfa“ hluta ávaxta og grænmetis, svo sem blöð og stilka, og skilja afskurðinn eftir í versluninni þar sem honum er komið í viðeigandi flokkunarkerfi. „Þessu höfum við lengi tekið eftir hjá fólki sem verslar hjá okkur. Við höfum í raun ekkert gert í þessu samt sem áður og er ólíklegt að það breytist,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónuss. Sigurður Gunnar Markússon, framkvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Krónunni, tekur í sama streng en bætir við að þetta athæfi sé ekki jafn algengt og í verslunum Bónuss. „Krónan hefur ekki séð ástæðu til að bregðast sérstaklega við þessu þar sem tilvikin eru svo fá.“ Ekki nein trix Bæði Baldur og Sigurður segja að afskurður fólks sem stundi þetta fari í góðan farveg; hjá Bónus er það lífrænn gámur og hjá Krónunni í sérstaka moltu fyrir ávexti og grænmeti. Sú staðreynd að ekki allir geti stundað jarðvegsgerð, safnað í moltu heima hjá sér, leikur stórt hlutverk í því af hverju fólk skilur afskurðinn eftir í versluninni. Hins vegar er einhver hluti fólks sem notar þessa aðferð til að spara nokkrar krónur. „Auðvitað er ekki æskilegt að fólk sé að reyna greiða minna fyrir vörurnar en þær raunverulega kosta með því að létta af þeim,“ segir Baldur og heldur áfram. „Hins vegar skiljum við vel fólk sem vill hreinsa aðeins af vörum og gera þær snyrtilegri áður en farið er með þær heim. Við reynum eftir bestu getu að hafa grænmetið snyrtilegt og það er snyrt af og til.“ Sigurður vill enn fremur brýna fyrir þeim sem eru í sparnaðarhugleiðingum að blöð, stilkar og þess háttar fylgi ávöxtum og grænmeti af góðri ástæðu. „Ágætt að benda á að ástæða þess að varan er seld svona er sú að það lengir líftíma vörunnar. Ekki nein trix, heldur eingöngu gæðamál til að varðveita gæðin í vörunni sem lengst,“ segir hann. Afskurður ekki rusl Ásamt því að halda utan um grænmetið og ávextina þá er vel hægt að nýta afskurðinn í matar- gerð. Til dæmis er flest næringar- efni að finna í stilk blómkáls og brokkolís, sem og laufunum. Það sama má segja um stilka annars konar káls, til dæmis grænkáls. Þúsundir í sparnað Þeir sem fjarlægja allt sem ekki er notað af ávöxtum og grænmeti og skilja eftir í versluninni ættu að vera meðvitaðir um hvers lags sparnaður er fólginn í því. Ef við tökum dæmi um meðalstóra rauða papriku og reiknum með að stilkurinn, og eitthvað af innvolsinu, sé fjarlægt úr henni í matvöruverslun áður en hún er vigtuð og greidd þá er hægt að áætla að paprikan sé um 10 prósentum léttari þegar hún kemur á kassann í versluninni. Kílóverð á papriku: 549 kr. 1 paprika ca. 250 g: 137 kr. Verð án stönguls: 123 kr. Sparnaður per papriku: 14 kr. Ef keyptar eru fimm paprikur á viku sparast 70 kr. á viku. Það samsvarar sparnaði upp á rúmlega 3.600 kr. á ári. Ef keyptar eru sjö paprikur á viku sparast 98 kr. á viku. Það samsvarar sparnaði upp á rúmlega 5.000 kr. á ári. Paprikur eru jafn misjafnar og þær eru margar og oft vegur stilkur og innvols meira en sem nemur tíu prósentum. Ef reiknað er með að það vegi þrettán prósent þá sparast 18 kr. af hverri papriku, 90 kr. á viku ef keyptar eru fimm paprikur og tæplega 4.700 kr. á ári. Mikilvæg molta Þeir sem hafa aðstöðu heima hjá sér og hafa ekki lyst á afskurðinum geta stundað jarðgerð og safnað í moltu. Á vefnum Náttúran er að finna ítarlegar leiðbeiningar um jarðgerð, til að mynda hvað má og hvað má ekki setja í moltuna. Eftirfarandi má jarðgera: Matarafganga, kjöt , fisk, grænmeti og ávexti Brauð, kex og kökur Kaffikorg og telauf, ekki tepoka Fisk, kjúkling og kjöt (ekki stór bein) Eggjaskurn, mulda Garðaúrgang Illgresi Hey Jurtir og blóm Eldhúsrúllur og servíettur Dagblaðapappír í ræmum Tréflísar og sag í litlum mæli Eftirfarandi má ekki jarðgera: Plast, gler, málm, gúmmí, vefnaðarvöru, bómull Rafhlöður, lyf, spilliefni og annan hættulegan úrgang Vax- eða plasthúðaðan pappír Pappír í miklu magni Sígarettustubba eða sígarettuösku Viðarösku eða kalk Ryk úr ryksugunni Bleiur og dömubindi Stór bein Leirborinn kattasand Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Því er mælt með að borða stilkana þar sem þeir innihalda vítamín og andoxunarefni. Ef fólki hugn- ast ekki að borða þá hráa er hægt að snöggsteikja þá, gufusjóða eða setja þá með í þeyting og drykki. Annað gott dæmi eru laufin á sell- erístilkunum. Þau eru afbragð- skryddjurt og innihalda einnig C-vítamín, kalíum og kalk. Varð- andi almennan afskurð af græn- meti er tilvalið að sjóða hann nið- ur til að búa til grænmetissoð sem er hægur leikur að frysta og nota þegar að búa á til súpu. Þannig að afskurðurinn er í raun mjög dýr- mætur og honum ætti alls ekki að henda. n Í minna mæli Færri stunda þetta í verslunum Krónunnar en Bónuss. Mynd: Krónan Næringarmikið Mikið af næringarefnum eru í blöðum og stilkum grænmetis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.