Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 46
46 BLEIKT - VIÐTAL 20. september 2019 S ara Barðdal, einkaþjálfari, heilsumarkþjálfi og eigandi Hiitfit, tilkynnti á Instagram á dögunum að hún ætlaði að taka sér frí frá samfélagsmiðlum. Tilkynningin kom fylgjendum hennar að óvörum, enda Sara dugleg að deila hvatningarorðum, æfingum sem hafa góð áhrif á andlega og líkamlega heilsu og ýmsu öðru heilsutengdu með sínum fylgjendum. Ástæðan fyrir þessu skyndilega brotthvarfi Söru af samfélagsmiðlum á sér hins vegar langan aðdraganda og tengist fráfalli móður hennar árið 2013 – áfall sem hún gróf djúpt niður og ýtti til hliðar. „Við vorum mjög nánar, sérstaklega síðustu árin hennar, en þá eyddum við miklum tíma saman. Þá hafði sambandið breyst yfir í mikla vináttu þar sem ég var orðin fullorðin og við áttum mikið sameiginlegt,“ segir Sara í samtali við blaðamann um móður sína, Lindu Konráðsdóttur. „Hún var svo sannarlega mín besta vinkona. Við bjuggum einar saman þangað til ég varð níu ára, þá eignaðist ég yndislegan stjúpföður, þannig að fyrstu árin mín vorum við bara tvær saman. Hún var einstaklega skemmtileg, ástrík, glaðlynd og mikill húmoristi. Við gátum skemmt okkur endalaust saman og spjallað um allt milli himins og jarðar. Ég sé núna eftir á hversu heppin ég var með mömmu, hún gaf mér svo mikið og hugsaði vel um mig,“ bætir Sara við og brosir blítt. Gaf gleði á hræðilegum tíma Móðir Söru greindist með brjóstakrabbamein í lok árs 2008. Meinið færðist yfir í beinin og móðir hennar dó fimm árum seinna. „Hún var ótrúlega sterk og dugleg þennan tíma og gerði allt til að láta þetta hafa sem minnst áhrif á lífið og okkur sem stóðum henni næst,“ segir Sara er hún rifjar upp þennan tíma. Þegar móðir hennar lá á dánarbeðinum einkenndist líf Söru af miklum andstæðum þar sem sex vikum áður en móðir hennar lést eignaðist hún sitt fyrsta barn, snáðann Alexander. „Ég hugsa stundum að Alexander hafi algjörlega bjargað mér, hann gaf mér svo mikla gleði á hræðilegum tíma. Eftirvæntingin eftir honum gaf okkur mæðgum einnig mikla bjartsýni og eitthvað til að hlakka til og undirbúa. Hún var svo spennt að fá að sjá hann og ég er handviss um að hún hafi náð að lengja líf sitt því hún var svo harðákveðin í að fá að hitta hann. Hún hafði svo gaman af börnum og þráði ekkert meira en að hitta fyrsta barnabarnið sitt. Henni tókst það svo sannarlega, en fljótlega eftir fæðingu hans hrakaði henni hratt. Ég veit ekki hvernig það hefði verið að hafa ekki þennan litla ljóspunkt í lífi mínu, hann gaf mér eitthvað gott til að einblína á, en það leiddi hins vegar líka til þess að ég ýtti í burtu þessum erfiðu tilfinningum og sorginni. Þetta var mjög furðulegur tími, blandaður missi og gleði, maður vissi ekki hvernig maður átti að höndla þetta,“ segir Sara. Hún segist hafa ýtt sársaukanum við móðurmissinn til hliðar, algjörlega ómeðvitað, og þegar hún horfir til baka í dag er hún handviss um að hún hefði ekki getað tekist á við þessar aðstæður öðruvísi. „Ég vildi gera allt mitt besta fyrir Alexander og standa mig vel í þessu nýja hlutverki, að hrynja ofan í djúpa sorg var þess vegna ekki í boði fyrir mig,“ segir Sara sem lenti einnig í því að fá sýkingu eftir fæðinguna og þurfti að liggja á spítala. Einnig þróaði hún með sér ofnæmi fyrir pensilíni og var hrædd við að missa mjólkina, eða lenda í einhverju þaðan af verra. „Ég ákvað því að reyna að einblína á allt þetta góða sem ég hafði, á Alexander, vera í góðu jafnvægi og sjá jákvæðu hlutina í lífinu. Það hjálpaði mér mikið á þessum tíma.“ Byrjaði strax að hlaupa Eftir andlát móður sinnar dýfði Sara sér í vinnu og að láta gott af sér leiða. Hún byrjaði að vinna í heilsubransanum þegar Alexander var nokkurra mánaða gamall og skráði sig í kjölfarið í einkaþjálfaranám. Hún flutti til Danmerkur sumarið 2015 og stofnaði Hiitfit þann 13. nóvember, á dánardegi móður sinnar, og varð ólétt aftur þann vetur. Hún var því að byggja upp fyrirtæki ásamt því að vinna í hlutastarfi, hugsa um einn lítinn snáða og ófrísk að öðrum. „Eftir að Baltasar Máni kom í heiminn haustið 2016 fór ég á fullt að vinna sjálfstætt sem eina fyrirvinna heimilisins. Þetta hafa verið mjög skemmtileg og spennandi ár. Ég var mjög góð í að halda sjálfri mér upptekinni, sem er algengt hjá fólki á flótta og fólki sem auðkennir sig sem „duglegt“. Ég sé það núna að ég var alltof fljót í gang, ég byrjaði strax að hlaupa, einblína á að komast yfir þetta og halda áfram. Partur af því var hversu góð ég er að „hrista“ hlutina af mér. Ég er líka frekar jákvæð og lausnamiðuð að eðlisfari, sem hefur þjónað mér mjög vel, en það getur líka farið út í öfgar eins og í þessu dæmi. Maður hristir ekki svona missi af sér á nokkrum vikum,“ segir Sara. Flöt og dofin Hún segist hafa gert sér grein fyrir því smám saman að hún var að fela sig frá sársaukanum og sorginni. Lokaði á sársaukann við fráfall móður Sara Barðdal missti móður sína þegar sonur hennar var sex vikna gamall – Ýtti burtu sorginni – Leit á slæmar tilfinningar sem veikleika Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Hætt á samfélagsmiðlum Sara þarf að taka sér hlé frá því að sinna fylgjendum sínum. Mynd: Aðsend
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.