Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 20. september 2019
eftirtektarverðustu
sviðsnöfn Íslendinga9
Sviðsnöfn listamanna eru jafn ólík og þau eru
mörg. Þegar kemur annars vegar að því að skapa
sér nafn á erlendum velli er það nokkuð ljóst að
alíslensk nöfn eru ekki mjög hagkvæm til að nota
á alþjóðamarkað enda mörgum sem þykir erfitt að
bera þau fram. Fyrsta reglan er þá yfirleitt sú að
losna við íslenska stafi en ýmsir Íslendingar hafa
gengið skrefinu lengra og skapað nafn og einkenni
sem hinn almenni útlendingur færi létt með að
rúlla af tungunni. Hér eru tíu dæmi um slík.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
CEASETONE
ATP Iceland 2015 Day 2
(Mynd: Victoria Holt)
Tónlistarmaðurinn Hafsteinn
Þráinsson, fæddur og uppalinn
Hafnfirðingur, gengur undir
listamannsnafninu CeaseTone.
Hafsteinn hefur gefið út eina
breiðskífu, Two Strangers,
sem hlaut tilnefningu til plötu
ársins
2017 á Íslensku
tónlistarverðlaununum ásamt
því að dúkka upp hér og þar á
ýmsum topplistum.
ÓBÓ
Ólafur Björn Ólafsson, sem gengur undir
listamannsnafninu Óbó, hefur starfað með
ýmsum hljómsveitum og listamönnum
síðustu ár, á borð við Sigur Rós, Jónsa,
Emílíönu Torrini, Múm, Jóhann Jóhannsson,
Benna Hemm Hemm, Slowblow, Úlf Hansson,
Valgeir Sigurðsson og Stórsveit Nix Noltes.
THOR
KRISTJANSSON
Leikarinn Þorvaldur
Davíð Kristjánsson
hefur aðeins verið
að drepa niður fæti
á erlendri grundu
í fagi sínu. Margir
hverjir muna eflaust
eftir áberandi
aukahlutverki hans
í ævintýramyndinni
Dracula Untold, en
í þeirri mynd gekk
hann undir því nafni
sem enskumælandi
einstaklingum þykir
þægilegra að bera
fram.
HANSEL EAGLE
Bolvíkingurinn
Ævar Örn Jó-
hannsson hefur
verið á mikilli
uppleið síðustu
misseri og hefur
hann ýmis járn í
eldinum. Hann
gengur undir
hinu bitastæða
listamannsnafni
Hansel Eagle.
Eins og sagt var í
Zoolander: „That
Hansel, he’s so
hot right now.“
THE CHARLIES
ATP Iceland 2015 Day 2 (Photo by
Victoria Holt)
Stúlknahljómsveitin Nylon var
stofnuð árið 2004 og vakti mikla
athygli á sínum tíma. Seinna meir
fluttu þær Alma Guðmundsdóttir,
Steinunn Þóra Sigurðardóttir
og Klara Ósk Elíasdóttir til Los
Angeles og hlaut bandið nafnið
The Charlies. Árið 2015 ákváðu
stúlkurnar að segja skilið við
hljómsveitina en staðið hefur til
hjá þeim að elta stjörnudrauma
skemmtanabransans og finna sig
á eigin sérsviði, hver í sínu lagi.
Vestanhafs ganga þó dömurnar
undir nöfnunum Alma Goodman,
Camilla Stones and Klara Elias.STONY BLYDEN
Þorsteinn Sindri
Baldvinsson hefur
farið víða þótt
ungur sé. Hann er
íslenskur leikari,
rappari, söngvari,
trommari og
tónlistarframleiðandi.
Nýlega landaði
hann hlutverki í
sjónvarpsþáttunum
Bluff City Law og
þar gengur hann
að sjálfsögðu undir
listamannsnafninu,
Stony Blyden – sem
er ekki í amalegri
kantinum. Vert er
að segja frá því að
Blyden er ættarnafn
móður hans.
JACK MAGNET
Jakob Frímann Magnússon
hóf feril sinn án millinafns
en hefur gefið út undir
fangamarkinu JFM frá árinu
2003. Á níunda áratugnum
reyndi hann að koma sér
áfram undir nafninu Jack
Magnet og stóð til að slá í
gegn á heimsvísu undir því
merka nafni. Jakob leiddi
einnig hinn svokallaða
Jack Magnet-kvintett um
árabil. Þess má geta að
Stuðmaðurinn hefur einnig
gengið undir nafninu Jobbi
Maggadon í gegnum árin.
Aldeilis stuð, maður.
AUDI FINN
Leikkonan Auður
Finnbogadóttir,
sem gengur undir
listamannsnafninu
Audi Finn erlendis,
hefur náð góðum
árangri í Hollywood
undanfarið ár og
var nýlega valin
besta leikkonan
á bandarísku
kvikmyndahátíðinni
Festigious Film Festival
í Los Angeles í fyrra.
SBEEN AROUND
Sara Magnúsdóttir,
sem gengur undir
listamannsnafninu Sbeen
Around, hefur verið virkur
plötusnúður í Reykjavík en
samhliða því semur hún
hústónlist (e. house music).
Söru er margt til lista lagt en
hún er þriggja barna móðir
og á táninginn Magnús og
tvíburana Halldóru Ósk og
Sigríði Lilju, einnig þekktar
sem Copy/Paste. Grínlaust.