Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 35
Allt fyrir börnin 20. september 2019 KYNNINGARBLAÐ
Litli íþróttaskólinn er stór-skemmtileg afþreying fyrir for-eldra með ung börn en skólinn
er starfræktur að Háaleitisbraut 13
af Mínervu Alfreðsdóttur og Ingu
Láru Þórisdóttur. Þær eru mennt-
aðir íþróttakennarar og bjóða upp
á stórskemmtileg hreyfinámskeið
fyrir lítil kríli. „Ásamt íþróttanám-
skeiðunum býð ég upp á ungbarna-
sundnámskeið fyrir börn á aldrinum
þriggja mánaða til eins og hálfs árs,“
segir Mínerva.
Aðsóknin jókst
Mínerva lærði ungbarnasund árið
1996 í Noregi hjá Norges Idretts-
forbund og starfaði þar sem ung-
barnasundkennari í tvö ár. „Haustið
1999 byrjaði ég með ungbarna-
sundnámskeið á Háaleitisbraut og
í ár hef ég verið að kenna meira og
minna í 20 ár á Íslandi auk tveggja
ára í Noregi.“ Fyrst um sinn var
Mínerva með fá námskeið. „Smám
saman jókst aðsóknin samfara því
að ungir foreldrar urðu meðvitaðri
um ágæti þess að fara með ungbörn
í sund og hversu góð áhrif það hefur
á þroska þeirra.“
„Í sundtímum tengjast foreldrar
barni sínu á nýjan og sérstakan hátt.
Við byrjum á því að syngja saman og
förum svo í gegnum fjölbreyttar og
skemmtilegar æfingar. Foreldrarnir
sjá fljótt mun á styrk og hreyfiþroska
barnsins þar sem við erum sífellt
að gera æfingar sem örva og auka
skynjun og þroska.
Þau börn sem fara í ungbarna-
sund búa að því þegar þau verða
eldri. Þau eru betur í stakk búin til að
fara í almenningslaugar með for-
eldrum sínum og einnig hef ég tekið
eftir því að þegar þau byrja í skóla-
sundi í sundkennslu eiga þau oft
auðveldara með að gera grunnæf-
ingar eins og að fljóta og fara í kaf.“
• Að veita markvissa örvun og að-
lögun barna á aldrinum 3 mán.
– 1 og 1/2 árs í vatni.
• Að auka sjálfstraust barns í vatni.
• Að barnið finni fyrir öryggi og líði
vel í sundi.
• Að venja barn við vatn sem
hreyfiumhverfi.
• Að barnið fái útrás fyrir hreyfi-
þörf sína og örvi þar með hreyfi-
þroska og styrk.
• Að venja barn við ögrandi um-
hverfi sem hefur örvandi áhrif á
sem flest skynfæri barnsins.
• Að skapa umhverfi þar sem for-
eldrar og barn geti aukið og styrkt
tengslamyndun hvert við annað.
• Að foreldrar hittist og kynnist
öðrum foreldrum sem eru með
ungbörn og því oft með áþekk
áhugamál.
Næstu námskeið í ungbarna-
sundi byrja mánudaginn 7. október.
Námskeiðin eru haldin að
Háaleitisbraut 13, á mánudögum
og miðvikudögum og standa yfir í
fjórar vikur.
Byrjendanámskeið er kl. 17.00 og
framhaldsnámskeið kl. 17.30.
Litli íþróttaskólinn
Haustið 2001 byrjuðu Mínerva og
Inga Lára með hreyfinámskeið fyrir
lítil kríli. „Fyrst um sinn vorum við
tvær með tímana á laugardögum
en þegar elsta dóttir okkar fæddist,
fengum við Fanneyju Rúnars-
dóttur til liðs við okkur en hún er
einnig íþróttakennari að mennt. Við
störfum allar í grunnskólum eða
framhaldsskóla og höfum áralanga
reynslu af því starfi.“
Hefðbundinn rammi með mátu-
legum skammti af tilbreytingu
Litli íþróttaskólinn er fyrir börn á
aldrinum 17 mánaða til 3 ára en
börn og aðstandendur eru saman í
hreyfistund á forsendum barnsins.
Tímarnir eru 40 mínútna langir og
yfirleitt byggðir upp á svipaðan hátt.
Þeir eru tvískiptir þar sem fyrst eru
gerðar æfingar og leikir með eða án
áhalda. Síðan er farið í mismunandi
þrautabrautir. Allir tímar byrja og
enda með samverustund og söng.
„Okkar reynsla er sú að börnin þríf-
ast best innan nokkuð hefðbundinna
ramma með mátulegum skammti af
tilbreytingu.“
„Ómetanlega gefandi að vinna
með börnum“
Foreldrarnir eru virkir með börnun-
um á námskeiðinu og fá þeir m.a. að
upplifa börnin sín í hreyfingu innan
um jafnaldra. „Þeir sem hafa komið
til okkar hafa flestir komið á fleiri en
eitt og tvö námskeið. Svo mæta þeir
jafnvel aftur með barn númer tvö
og þrjú. Að vinna með börnum og
foreldrum ungra barna er ómetan-
lega gefandi og skemmtilegt. Ungir
foreldrar eru ótrúlega duglegir og
virkir með börnin sín.“
Tímarnir eru aldursskiptir og
eru æfingarnar einfaldar og við-
ráðanlegar. „Af tíu tímum í Litla
íþróttaskólanum eru svo tveir tímar
haldnir í sundlauginni. Þar gerum við
skemmtilegar sundæfingar sem er
blandað saman við söng og vísur.“
Næsta námskeið hjá Litla
íþróttaskólanum byrjar
laugardaginn 21. september.
Námskeiðið er á laugardögum
fyrir hádegi á Háaleitisbraut 13
Námskeiðið er 10 skipti (8 skipti
hreyfing í sal og 2 sundtímar).
Allar nánari upplýsingar má
nálgast á vefsíðunni
litliithrottaskolinn.is
Sími: 699-1900 (Mínerva )eða
868-7116 (Inga Lára)
Tekið er á móti skráningum á
netfanginu minerva@simnet.is.
Myndir: Eyþór ÁrnasonLITLI ÍÞRÓTTASKÓLINN - UNGBARNASUND:
„Þau búa að því alla ævi“
Helstu markmið ungbarna-
sundsins eru: