Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 4
4 20. september 2019FRÉTTIR
Syndir feðranna
S
varthöfði varð var við þá
umræðu sem skapaðist
eftir viðtal Íslands í dag
við þrjú uppkomin börn
umdeildra þingmanna á hægri
vængnum. Svarthöfði beið raunar
spenntur eftir umfjölluninni
þar sem hún vakti vissulega
forvitni hans. Í stuttu máli það
olli þessi viðtalsþáttur alls ekki
vonbrigðum og finnst Svarthöfða
gaman að sjá að Ísland í dag
hefur fundið smá brodd á nýjan
leik. Vonandi þýðir þetta endalok
þáttarins eins og hann er búinn
að vera sem líktist frekar ódýrri
sjónvarpsmarkaðsauglýsingu
fremur en þætti um líðandi
stundar. Þegar Svarthöfði fór að
taka Landann fram yfir Ísland
í dag vissi hann að ástandið var
orðið slæmt.
Eins og gefur að skilja vakti
umfjöllun Íslands í dag misjöfn
viðbrögð meðal almennings.
Sumum fannst þetta hið besta
sjónvarpsefni, að heyra niðurlút
börn stjórnmálamanna tala
um slæmt umtal um feður sína.
Aðrir sökuðu sjónvarpsþáttinn
að um ganga erinda elítunnar
og veltu fyrir sér hvort viðtölin
ættu að bera út þann boðskap
að stjórnmálamenn væru yfir
gagnrýni hafnir því þeir ættu
börn, þó að þeir hefðu jafnvel
drukkið sig í óminni og drullað
yfir minnihlutahópa. Áhugaverð
skoðanaskipti finnst Svarthöfða.
Svarthöfði er hins vegar
á því að þetta útspil í Ísland
í dag hafi verið allt í senn;
klókt, rammpólitískt,
áhugavert og drepfyndið.
Börnin virðast líka vera efni í
afbragðsspunameistara. Því hvað
snertir fólk meira en sorgmædd
börn sem þurfa að gjalda fyrir
gjörðir feðra sinna? Þvílíkt
sjónvarpsefni! Á svipstundu
eru allar misgjörðir pabbanna
gleymdar. Þeir verða mannlegir,
eiga börn, gráta í kodda og barma
sér yfir ómaklegri gagnrýni.
Gagnrýni á gjörðir sem eru
samt tvímælalaust á tíðum mjög
gagnrýnisverðar.
Svarthöfði verður því að taka
hjálminn ofan fyrir þessum
börnum, feðrum þeirra og
dagskrárgerðarfólki Íslands í
dag. Það er afrek að ná með
nokkrum mínútum í sjónvarpi
að útmá hatur og reiði fólks út
í fordómafulla og oft á tíðum
brotlega hegðun nokkurra
frammámanna. Það mætti segja
að þarna hefðu pabbarnir sloppið
eins og smjör á smokknum hjá
Friðriki Ómari. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Að minnsta kosti fjórir karlmenn
sem gegndu hlutverki „Marlboro-
mannsins“ í tóbaksauglýsingum dóu úr
lungnakrabbameini.
Hákarlar hafa ekki bara eitt húðlag
heldur tvö.
Hunang er eini maturinn sem
skemmist ekki.
Samkvæmt könnun háskólans
Queens í Belfast, vinna örvhentir
hraðar.
Meðal manneskja eyðir um
sex þúsund krónum á fyrsta
stefnumótinu.
Hver er
hún
n Hún fæddist á
Akureyri þann 4.
september árið 1986.
n Hún útskrifaðist
af félagsfræðibraut
Menntaskólans við Hamrahlíð árið
2006.
n Hún hefur lokið meistaraprófi
í Evrópufræðum og Evrópurétti
frá Edinborgarháskóla, BA-prófi
í stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands og stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
n Hún hefur starfað sem sjálf-
boðaliði hjá Rauða krossinum og
verið aðalmaður í jafnréttis- og
mannréttindaráði Kópavogsbæjar.
n Hún er dyggur hundaeigandi.
SVAR: SEMA ERLA SERDAR
DULARFULLA GLASA-
MÁLIÐ LOKSINS LEYST
n Sumir héldu að glösin væri skilaboð úr undirheimunum
n DV birtir viðtal við listamanninn á bak við glösin
U
ndanfarna mánuði
og ár hafa fjölmiðlar
greint frá dularfullum
glösum á gatnamótum
Bústaðavegar og Grensásvegar.
Margar kenningar voru á
kreiki um glösin, en sumir hafa
haldið að þau væru skilaboð
úr undirheimum Reykjavíkur
varðandi fíkniefnasmygl. Þær
kenningar virðast þó einungis ver
getgátur og ekki byggja á neinum
sannleik.
Listamaður, sem neitar að
koma fram undir nafni, og
karakter hans, Léttfeti, lýsa á
hendur sér ábyrgð á þessum
dularfullu glösum, sem eru hluti
af gjörningi. Þetta kemur fram í
viðtali blaðamanns við listamann
þennan.
Listamaðurinn segir
gjörninginn heita Smelligaldur
og fullyrðir að hann hafi nú staðið
yfir í tuttugu ár, þótt hann sé bara
rétt að byrja.
Hefur ekkert að gera með
fíkniefnasmygl
Karakterinn Léttfeti er þó
frumkvöðullinn og innblásturinn
að verkinu. „Léttfeti er karakter
sem hefur gaman af því að lifa,
hefur gaman að litum, hefur
gaman að lífinu og er glaður í
hjarta sér.
Þetta tengist ekkert fíkniefnum
eða neinu svoleiðis,“ segir
listamaðurinn og bætir við að
gjörningurinn snúist um gleði
og öryggi og hann hafi enga illa
merkingu. „Hugmyndin kom
bara allt í einu. Ég var bara að
spreyja bolla úti og fór með hann
upp eftir, þá byrjaði þetta.“
Glösunum er komið fyrir á
tveimur stöðum, á Bústaðavegi
við Borgarspítalann og svo á
gatnamótum Grensásvegar
og Bústaðavegar. Glösin
eru í mörgum mismunandi
neonlitum, en þeim er raðað eftir
vikudögum, þó að stundum leyfi
hann glösunum að vera lengur.
Það eru þó ekki bara glös sem
listamaðurinn kemur fyrir heldur
er stundum um að ræða bolla, en
listamaðurinn er með nákvæmt
kerfi yfir það hvernig glas eða
bolli kemur á hvaða árstíma „Ég
er ekki með neina tölu á því hvað
þetta hafa verið mörg glös, dettur
engin tala í hug,“
Finnst öryggi sínu ógnað
Upp á síðkastið hefur það
reglulega komið fyrir að fólk
taki glösin í burtu, þetta sárnar
listamanninum sem segist ekki
skilja hví fólk taki glösin, En
þegar fólk fjarlægir glös þá finnst
honum öryggi sínu ógnað. „Þessi
gjörningur er ég og túlkun á mér,
því eins og ég segi þá snýst hann
um öryggi.“
Listamaðurinn segist alltaf
hafa haft ánægju af neonlitum.
Honum finnst þeir fanga athygli á
annan hátt en aðrir litir, listamað-
urinn fullyrðir nefnilega að hann
eigi stærsta neonlitasafn á Ís-
landi. „Neonlitir hafa alltaf kveikt
í mér, þeir fanga alltaf athyglina,
þá sérstaklega bleikur.“ n
Jón Þór Stefánsson
jonthor@dv.is
Þetta merkja litir glasanna:
Mánudagur – Gulur
Þriðjudagur – Appelsínugulur
Miðvikudagur – Grænn
Fimmtudagur – Bleikur
Föstudagur – Blár
Laugardagur – Gulllitaður
Sunnudagur – Hvítur
Elskar friðinn „Þetta tengist ekkert
fíkniefnum eða neinu svoleiðis.“
Litríkur
Listamaðurinn
elskar neonliti.
„Þessi
gjörningur
er ég og túlkun á
mér, því eins og
ég segi þá snýst
hann um öryggi.