Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 16
16 FÓKUS - VIÐTAL 20. september 2019 Í sumar voru haldnir tveir stofnfundir fyrir sameiningaraflið Að rótunum sem stefnir á þátttöku í næstu alþingiskosningum. Stofnandinn, Ragnar Erling Hermannsson, hefur marga fjöruna sopið, og þekkir frá fyrstu hendi þær brotalamir sem finna má í íslenska kerfinu, þá einkum í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Hann segir tíma kominn á gagngerar breytingar, umbyltingu á kerfinu, sem miði að því að ala af sér hamingjusama þjóðfélagsþegna. Núverandi kerfi stuðli bara að meiri óhamingju. Uppljómun í Brasilíu Ragnar ánetjaðist ungur fíkniefn- um. Hann var lagður í ein- elti í skóla fyrir að vera öðruvísi og þráði fátt heitar en að falla í hópinn og líða betur. Vímu- efnaneyslan ágerðist í gegn- um árum og náði hámarki þegar Ragnar var handtekinn í Brasilíu árið 2009 fyrir fíkniefnasmygl, sem hann hafði tekið að sér til að losna úr fíkniefnaskuldum. Í Brasilíu var hann áfram í mik- illi neyslu, en á hann leituðu þó áleitnar spurningar um hvern- ig hann hefði endað í þessum ógæfusporum. „Á mínum versta tíma þarna úti í Brasilíu fékk ég senda bókina Gæfuspor eftir Gunnar Hersvein. Við lesturinn opnaðist eitthvað í huganum á mér. Síðar fékk ég senda bókina Orðspor eftir sama höfund. Fyrri bókin fjallar um gildi í lífinu, en seinni bókin er um gildin í samfélaginu. Gunnar talar í bókinni um tannhjólið í samfélaginu. Tannhjól sem er bara hannað á einn hátt og virkar bara á nákvæmlega þann hátt. Hver sem reynir að breyta gangi tannhjólsins er dæmdur til að mistakast. Þetta talaði mikið til mín. Kerfið verður ekki bætt eins og það er, það þarf að endurhugsa það eins og það leggur sig og byggja það aftur upp frá grunni. Ég var í rosalega mikilli neyslu á meðan ég var í Brasilíu og valdi ítrekað að setja sjálfan mig í aðstæður þar sem ég var niðurlægður líkamlega og andlega. Til dæmis bauðst mér í eitt skiptið að fara með vini mínum í ferð í einhvern geggjaðan strandbæ, sem hljómaði mjög vel, hins vegar valdi ég frekar að fara í krakkbæli. Hvers vegna valdi ég það? Hvers vegna gerði ég þetta? Þarna var ég farinn að velta þessum hlutum mikið fyrir mér.“ Hann var ekki bara farinn að velta hlutunum meira fyrir sér, heldur tók hann einnig betur eftir. „Á 12 spora fundum í Brasilíu þá tók ég eftir því að allir höfðu sambærilega sögu að segja í grunninn. Fólki leið illa, þorði ekki að vera það sjálft og leitaði í vímuefni til að líða betur.“ Ragnar fór þá að velta því fyrir sér hvort hann og fleiri hefðu tekið sömu hliðarsporin í lífinu ef heildarkerfið í samfélaginu væri betra. Einveldi á Íslandi Ragnar veiktist alvarlega úti í Brasilíu og fékk í kjölfarið að fara aftur til Íslands. Eftir að heim var komið hélt Ragnar áfram að taka betur eftir og sá brotalamir í íslenska kerfinu nánast hvert sem litið var. „Klaustursmálið sýndi okkur að það er einveldi á Íslandi. Ég hitti Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þingmann Miðflokksins, fyrir rælni fyrir utan jarðböðin við Mývatn. Ég nýtti tækifærið og þakkaði honum fyrir: „Takk fyrir að leyfa okkur að skyggnast inn í hugarheim ykkar þingmanna og sýna okkur hvernig þið virkilega hugsið. Þegar yfir níutíu prósent þjóðarinnar vilja ykkur út af þingi en þið sitjið samt sem fastast, þá er það ekkert annað en bara einveldi.“ Ragnar segir ljóst að í kerfi sem er hannað af þeim sem mest græða á því, þá sé erfitt að koma í gegn breytingum til að bæta hag almennings. Þar vill hann að Að rótunum komi inn. Beint lýðræði með beinni þátttöku kjósenda í öllum ákvörðunum og stefnumótun. „Ég ætla ekki að sitja og semja stefnuskrá og þess háttar. Ég vil upphefja hugtakið lýðræði og að stefnuskrá verði sameiginlega samin af almenningi,“ segir „Fólk er að vakna og sjá hvar kúkurinn er farinn að fljóta í þessu kerfi“ Íslenska kerfið framleiðir óhamingjusamt fólk - Þarf að endurbyggja kerfið frá grunni - Fékk uppljómun í fangavist í Brasilíu Erla Dóra erladora@dv.is MYNDIR: EYÞÓR ÁRNASONNafn samein- ingaraflsins, Að rótunum, vísar til þess sem Ragnar telur lausn á óham- ingju Íslendinga, að ráðast að rót vandans, rífa kerfið niður og byggja það upp aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.