Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 19
FÓKUS 1920. september 2019 HAUSTTILBOÐ 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM INNRÉTTINGUM Í SEPTEMBER Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Fim. 9–18 Föstudaga. 9–17 Laugardaga. 11–15 S igmundur Árnason er fertugur, fjögurra barna faðir. Hann starfar sem bílasali og hefur um langa hríð unnið við akstur hinna ýmsu ökutækja. En hann er líka óvirkur fíkill og tekur því hlutverki alvarlega. Simmi, eins og hann er alltaf kallaður, á sér langa sögu og segist stoltur af fortíðinni því sögu sína nýti hann til að hjálpa öðrum. Neyslusaga Simma hófst þegar hann var rétt rúmlega þrettán ára. Forsöguna rekur hann til uppvaxtaráranna þar sem áfengi og vímuefnaneysla léku stórt hlutverk. „Ég upplifði mikið tilfinningalegt óöryggi sem barn, sem óhjákvæmilega fylgir uppvexti í þeim viðbjóði sem ég bjó við. Ég ætlaði aldrei að snerta áfengi eða önnur vímuefni enda var ég mjög hræddur við alla vímugjafa eftir að hafa séð skuggahliðar alkóhólismans í mínum uppvexti. Að alast upp við alkóhólisma gerir mig samt ekki að þeim fíkli sem ég varð seinna, en það hjálpaði til í ljósi þess hve brotinn og skemmdur ég var sem barn,“ segir Simmi og heldur áfram. „Allar þessar tilfinningar, kvíði, ótti við álit annarra, hræðslan við að mistakast, sífelld höfnunartilfinning og að finnast maður aldrei passa inn í hópinn, einfaldlega hvarf þegar ég drakk í fyrsta skipti og sömuleiðis þegar ég notaði hin og þessi efni í fyrsta skipti. Vímuefnin jörðuðu erfiðar tilfinningar og létu mér líða nákvæmlega eins og mig hafði alltaf langað að líða. Ég gat í fyrsta sinn sagt hvað sem var, talað við hvern sem er, ég upplifði mig ósigrandi. Það hafði mikið gengið á á heimilinu, ítrekaðar tilraunir til að hætta, meðferðir og endalaus föll, sem endaði á því að móðir mín einfaldlega fór úr landi og skildi mig eftir ásamt bræðrum mínum. Yngri bróðir minn slapp og er í góðum málum í dag en eldri bróðir minn náði aldrei tökum á sínum málum. Hann dvaldi í gistiskýlinu í nokkur ár en endaði svo neyslusögu sína með því að myrða mann. Í dag situr hann á réttargæsludeild Klepps. Hann byrjaði í neyslu töluvert á undan mér og því var alltaf auðvelt að nálgast efni í gegnum hann. Kannski fullauðvelt, því sautján ára var ég kominn í algjört þrot. Neyslan löngu hætt að snúast um þetta frelsi og vellíðan, kynnast stelpum og djamma. Lífið snerist bara um að nota og ekkert annað.“ Stjórnlaus þegar vímuefni voru annars vegar Árið var 1995, Simmi var heimilis- og atvinnulaus og búinn að brjóta öll þau lögmál sem hann hafði áður einsett sér að fylgja. „Ég var farinn að neyta efna sem ég ætlaði aldrei að prófa og nota á hátt sem ég ætlaði aldrei að gera. Ég hélt þessu líferni þó til streitu næstu þrjú árin. Ég ætlaði aldrei í meðferð, enda hafði ég þá reynslu úr uppeldinu að meðferðir bæru sjaldnast árangur. Fólk sneri til baka enn verra en það fór inn, í það minnsta mitt fólk. Það var svo í september 1998 sem ég játaði mig í fyrsta sinn sigraðan og skráði mig inn á Vog. Ég hafði þá reynt að svipta mig lífi í miklum niðurtúr en mundi ekkert eftir að hafa skráð mig inn þegar þeir hringdu og tilkynntu mér að innlögnin hefði verið samþykkt. Ég ákvað engu að síður að mæta og vissi að ég hefði átt að gera þetta miklu fyrr. Ég var ákveðinn í að verða edrú og fann í fyrsta skipti örlitla von. Ég sótti svo eftirmeðferð á Vík, sem ég kláraði og gerði virkilega mitt besta. Þaðan fór ég á áfangaheimilið Takmarkið, henti dótinu mínu, sem var bara einn poki, inn á herbergi og rölti svo niður Laugaveginn þar sem ég átti fund. Á leiðinni rakst ég á gamlan neyslufélaga sem kættist mjög að sjá mig, bauð mér efni og ég datt í það. Þetta einkennir svolítið mína neyslusögu þangað til það rann loksins af mér þann 5. september árið 2009. Fram að þeim tíma var ég algjörlega stjórnlaus þegar vímuefni voru annars vegar, þrátt fyrir endalausar tilraunir til að verða edrú. Ég fór í meðferð á sirka þriggja mánaða millibili í mörg ár sem ég held að hafi haldið mér á lífi, annars væri ég ekki hér.“ Ætlaði ekki að bregðast þessu barni Að lokum gáfust stofnanirnar upp á Simma, ein á fætur annarri og þá voru góð ráð dýr. Simmi segist þó skilja afstöðu þeirra, enda hafi hann átt það til að falla í meðferð eða inni á áfangaheimilum. „Ég var rekinn úr meðferð fyrir þetta og hitt sem er illa séð þarna, enda var ég stjórnlaus á flestan hátt. Ég eignaðist mitt fyrsta barn í janúar árið 2004 og hafði þá verið edrú alla meðgönguna. Þá trúði ég því að þetta væri komið. Í kjölfarið upplifði ég svo allar þessar tilfinningar sem fylgja því að eignast barn, svakalega gleði og yfirþyrmandi verndunartilfinningu. Ég ætlaði sko ekki að bregðast þessu barni. Fjórum mánuðum síðar féll barnsmóðir mín og ég reyndi í örvæntingu að sannfæra sjálfan mig um að eitt fix myndi ekki skaða svo ungt barn. Ég átta mig á að heilbrigðir einstaklingar geta ekki sett sig í þessi spor eða skilið hvernig heili fíkils virkar, en svona skemmist hann og verður algjörlega háður efnum. Jafnvel þegar maður er ekki einu sinni að nota þau. Það er einmitt þegar maður er edrú og er ekki að vinna í sjálfum sér sem heilinn reynir að finna upp leiðir til að segja að einn skammtur sé skaðlaus. Svo fer auðvitað allt til fjandans um leið og maður fær sér þetta eina, því þá vill maður alls ekki hætta. Til að gera langa sögu stutta var dóttir okkar að endingu tekin af okkur þrátt fyrir að okkur hefðu verið gefin mörg tækifæri til að gera betur. Við gátum bara ekki verið edrú saman.“ Ófrísk í fangelsi, eitt barn í fóstri og annað á leiðinni Þrátt fyrir að neyslusaga Simma sé lengri segir hann að hér hafi orðið ákveðin þáttaskil. „Árið 2008 fór barnsmóðir mín í fangelsi. Þar kom í ljós að hún var aftur orðin ófrísk og ástandið á mér var vægast sagt mjög slæmt. Ég var að nota meira en ég hafði nokkurn tímann gert af mjög sterkum ópíumlyfjum Íris Hauksdóttir iris@dv.is Simmi upplifði skuggahliðar alkóhólismans í uppvextinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.