Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 30
Sjávarútvegsblaðið 20. september 2019KYNNINGARBLAÐ
VATNSLAUSNIR:
Ný nálgun við þrif og sótthreinsun
fyrir matvælafyrirtæki
Vatnslausnir ehf. er fyrirtæki sem starfar á sviði þrifa og hreinlætis í matvælaiðnaði,
en það verður með bás C2 á
Sjávarútvegssýningunni 25.–27.
september nk. þar sem þeir kynna
meðal annars háþrýstiþvottakerfi
og sápu og sótthreinsi þokukerfi til
notkunar í matvælaiðnaði, ásamt
sjálfvirku færibandaþvottakerfi og
öðrum nauðsynlegum tækjum til
notkunar við þrif. Á básnum verða
auk þeirra Sani-Mist BV og Áveitan
ehf. Sani-Mist eru framleiðandi
háþrýstiþvottakerfanna, sápu
og sótthreinsi þokukerfanna og
sjálfvirka færibandaþvottakerfisins
sem við kynnum og Áveitan ehf. sér
svo um uppsetningu og þjónustu á
þessum kerfum.
Ýmsir möguleikar í boði
Vatnslausnir ehf. býður upp á
marga möguleika þegar kemur
að sótthreinsun og þrifum fyrir
matvælaiðnað, en þar má þá helst
geta háþrýstidæla frá 10 til 150
bar fyrir matvælaiðnað ásamt
sápukvoðu og sótthreinsikerfum,
slöngutromlum, slöngum, byssum og
öllum nauðsynlegum fylgibúnaði.
Vatnslausnir ehf. býður
líka upp á háþrýstidælur fyrir
verktakaiðnaðinn, skömmtunarkerfi
t.d. fyrir gufukatla, þvottahús,
fiskimjölsverksmiðjur, hitaveitur,
sundstaði (klór og pH) ásamt
UV geislatækjum, Ozon
skömmtunartækjum o.fl.
Að auki býður það upp á
viðgerðar- og varahlutaþjónustu
fyrir háþrýstibúnað,
skömmtunarkerfi og þvottakerfi.
Fjölþokuþrif í
fiskvinnslu
Í gegnum árin hafa
margar aðferðir
verið notaðar í
fiskvinnslu á Íslandi
við að koma sápunni
á vélar og tæki við
þrif, þar á meðal er
fata með sápuvatni
og bursti, þrýstikútar
og kvoðukútar,
lágþrýstiþrif með jektor-
kvoðun, háþrýstiþrif með jektor-
kvoðun, sápukerfi þar sem sápan er
blásin með þrýstilofti sem og fleiri
aðferðir
Vatnslausnir eru
með nýja nálgun
á þessu og byggir
hugmyndin á að úða
sápu með þokuúða
og síðan að tengja
saman samfelld þrif
í fiskvinnslu með
fjölþokuþrifaaðferðinni.
Sótthreinsun í
fiskvinnslu með
þokuúðun hefur verið
vel þekkt í um 25 til 30 ár. Með
þeirra kerfi er sú aðferð tekin enn
lengra og sápu einnig úðað á vélar
og tæki með sömu aðferð og með
sama tækinu, CALIGO SAPO.
Með hefðbundnum
þrifaaðferðum er sífellt verið
að berjast við uppbyggingu á
óhreinindum og bakteríum en með
fjölþokuþrifaaðferðinni og réttum
efnum er hægt að fyrirbyggja hana.
Þokan er hagstæð því hún er
alltaf jöfn á alla fleti í hvert skipti. Ef
skuggablettir finnast þá er
auðvelt að bæta spíssum
til að ná þeim. Mannlegi
þátturinn er tekinn út
og er því engin hætta
á að einhverjir fletir
gleymist. Kerfið
samanstendur af
tveimur aðalhlutum
annars vegar
sótthreinsihlutanum
þar sem
sótthreinsiblöndun
fer fram og hins vegar
sápuhlutanum þar sem
sápublöndun fer fram.
Bæði kerfin eru drifin af
einni vatnsdælu sem heldur uppi
stöðugum þrýstingi á þær lagnir
sem eru í notkun hverju sinni.
Aðaldrifkraftur þokuúðunarinnar er
hins vegar þrýstiloft.
Frá tækinu liggja fjórar
stofnlagnir: sápulögn,
sótthreinsilögn, vatnslögn og
loftþrýstilögn. Allar lagnirnar enda
á Cluster Head úðaspíssum sem
dreifa viðkomandi efni með þokuúða
yfir vélar og tæki.
Í tækinu er sáputankur,
sótthreinsitankur og tankur með
matarsalti til að mýkja vatnið og
minnka hættu á stíflum í úðaspíssum
af völdum útfellinga.
Þess má einnig geta að á
sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu í
fyrra fékk þessi hugmynd verðlaun
sem framúrstefnuhugmynd
á sviði sjávarútvegs og
matvælaframleiðslu.
Glæsilegt háþrýstiþvottakerfi
Háþrýstiþvottakerfi með 6 dælum
verður í nýju skipi Brims hf. (áður HB
Granda hf.) sem er verið að smíða
í Vigo á Spáni og kemur til landsins
seinna á árinu.
Þá er búið að setja upp dælustöð
í rækjuverksmiðjunni Dögun hf.
á Sauðárkróki ásamt sjálfvirku
færibandakerfi fyrir 20 færibönd
og hugmyndin er að stækka það
um önnur 20 bönd því reynslan af
þessari aðferð er mjög góð. Einnig
er búið að leggja allt lagnakerfi fyrir
sápu- og sótthreinsiþokukerfið og
stöðin sem verður til sýnis á básnum
fer í Dögun hf. að lokinni sýningu.
Hægt er að hafa samband við
Vatnslausnir í síma 864-2471
www.h2o.is