Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Blaðsíða 37
FÓKUS 3720. september 2019
Blóð í bíó
n Hryllingsmyndir njóta síaukinna
vinsælda hjá kvikmyndahúsagestum
n Á kvikmyndahátíðinni RIFF er að
finna úrval fyrir aðdáendur blóðs,
uppvakninga og hryllings
Leikstjórann Jim Jarmusch þarf vart að
kynna en hann hefur leikstýrt myndum á
borð við Night on Earth, Broken Flowers,
Coffee and Cigarettes, Stranger Than
Paradise og Only Lovers Left Alive. The
Dead Don’t Die er hins vegar hans fyrsta
uppvakningamynd, og myndin var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes
í maí síðastliðnum og sló rækilega í
gegn. Myndin virðist höfða meira til
Evrópubúa en samlanda Jarmusch,
Bandaríkjamanna, og hefur hún hlotið
ansi misjafna dóma gagnrýnenda.
Það þarf hins vegar lítið að kvarta
yfir leikaravalinu og skartar myndin
stórstjörnunum Adam Driver, Bill
Murray, Tilda Swinton, Steve Buscemi og
Chloë Sevigny.
Í stuttu máli fjallar myndin um
lögreglulið í smábænum Centerville
sem þarf skyndilega að verjast innrás
uppvakninga. Þótt um hryllingsmynd sé
að ræða er húmorinn alltaf til staðar og
leikur Jarmusch sér til að mynda með
frægar persónur í uppvakningalíki. Eins
og gagnrýnandi BBC bendir á þá virðist
Jarmusch vera að vísa í nútímaheiminn
þar sem leikararnir í The Dead Don’t Die
virðast vera meðvitaðir um að þeir séu
fastir í uppvakningamynd og að þeir geti
lítið í því gert.
Frá túniska leikstjóranum Abdelhamid
Bouchnak kemur hryllingsmyndin
Dachra, sem er fyrsta mynd
leikstjórans í fullri lengd og í raun
fyrsta hryllingsmyndin frá Túnis.
„Karakterarnir eru pirrandi, útlitið
ódýrt og söguþráður endurunninn úr
öðrum kvikmyndum sem samt þarf
að viðurkenna að Dachra er ógeðfelld
spennumynd,“ stendur til að mynda
í gagnrýni Hollywood Reporter. Þótt
myndin sé ekki gallalaus þá er hún
allt öðruvísi en aðrar myndir frá
Túnis og svalar þörf áhugafólks um
hryllingsmyndir.
Myndin fjallar um Yasmin, nema í
blaðamennsku, sem ákveður að gera
skólaverkefni um dularfulla konu sem
fannst limlest fyrir 25 árum. Yasmin
gerir verkefnið ásamt tveimur vinum,
en dularfulla konan er læst inni á hæli
og grunuð um galdur. Skólaverkefnið
dregur þau í óvæntar og ógnvænlegar
áttir í einangruðu þorpi, fullu af geitum,
þöglum konum, dularfullu þurru kjöti
og sjóðandi pottum.
Frá leikstjóranum Robert Eggers
kemur svarthvíta hrollvekjan
The Lighthouse. Eggers er ekki
ókunnugur hryllingsmyndum því
hann kom sér rækilega á kortið með
hryllingsmyndinni The Witch árið 2015.
The Lighthouse var heimsfrumsýnd
á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí
og hlaut lof gagnrýnenda. Þá er það
mál manna að aðalleikararnir Robert
Pattinson og Willem Dafoe sýni stórleik
í myndinni, sérstaklega sá síðarnefndi,
gamalreyndi jálkur.
„Það er sjaldgæf ánægja að finna
mynd sem er svo innilega furðuleg að
maður veit ekki hvernig á að skilgreina
það sem maður var að horfa á,“ segir
til að mynda í gagnrýni New York Post
um myndina, sem fjallar um ævintýri
tveggja vitavarða. Vitaverðirnir hafa eytt
alltof löngum tíma í vitanum og verða
hægt og bítandi sturlaðir á afskekktri
eyju við Nýja-England. Hrollvekjan er
sálræn og tekin upp á 35 millimetra,
svarthvíta filmu, sem gerir hana enn
meira hrollvekjandi.
Svo er það ein gömul og góð, sænska
hryllingskómedían Evil Ed frá árinu 1995
í leikstjórn Anders Jacobsson. Myndin
er háðsádeila á þá miklu ritskoðun sem
gekk á í Sænsku kvikmyndastofnuninni
á árunum 1911 til 1996. Aðalpersóna
myndarinnar, Ed, er látin ritskoða
hrollvekjur allan liðlangan daginn og
byrjar smátt og smátt að missa vitið.
Um er að ræða svokallaða költmynd
sem er einnig óður til subbumynda
níunda áratugarins. Hins vegar var
það ádeilan sem kom henni í kortið
og var Anders Jacobsson sjálfur
til að mynda hafður að háði og
spotti í sænsku sjónvarpi af Sænsku
kvikmyndastofnuninni þegar að myndin
kom út.
Árið 2018 var einstaklega gott ár fyrir
hryllingsmyndir og virðist sú tegund
kvikmyndagerðar vera á mikilli uppleið.
Hryllingsmyndir skiluðu rétt rúmlega
níu hundruð milljónum dollara í
miðasölutekjur árið 2018, um 111
milljörðum króna. Alls voru seldar
tæplega hundrað milljónir miða á
hrollvekjur það árið. Þær þrjár myndir
sem höluðu mestu inn voru:
1. A Quiet Place
Tekjur: 188 milljónir dollara
Miðar seldir: 20 milljónir
2. Halloween
Tekjur: 159 milljónir dollara
Miðar seldir: 17,5 milljónir
3. The Nun
Tekjur: 117 milljónir dollara
Miðar seldir: 13 milljónir
The Dead Don’t Die
Stjörnuleikarar Það vantar ekki hæfileikana í leikaraliðið í The Dead Don’t Die.
Evil Ed
Költmynd Evil Ed er háðsádeila mikil. Galdrar og gæsahúð
Dachra er fyrsta
hryllingsmyndin frá Túnis.
Dachra
Hr
yl
lin
gu
r í
m
in
na
m
æ
li Á RIFF er
einnig að
finna ýmsar
stuttmyndir
með
hryllingsívafi,
svo sem
Hand in
Hand frá
Sviss, Milk
frá Kanada
og Helsinki
Mansplaining
Massacre frá
Finnlandi.
The Lighthouse
Tveir góðir Willem Dafoe og
Robert Pattinson fara á kostum í
The Lighthouse.
Einkunnir
?
5,6/10
?
Einkunnir
54/100
5,6/10
54/100
Einkunnir
?
7,1/10
100/100
Einkunnir
89/100
7,9/10
94/100
Milljarðaiðnaður
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Áhugaverð
Helsinki
Mansplaining
Massacre er meðal
stuttmynda í
hryllingsgeiranum
á RIFF.