Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 39

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 39
smáauglýsingar smaar@frettabladid.is / visir.is 512 5000 Afgreiðsla smáauglýsinga og sími er opinn alla virka daga frá 8-17 Allar smáauglýsingar vikunnar á visir.isv nna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 Akraneskaupstaður auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra Grundaskóla á Akranesi. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Veita Grundaskóla faglega forystu. Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs á Akranesi. Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri Grundaskóla. Samstarf við bæjaryfirvöld og aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfnikröfur: Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum er skilyrði. Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði. Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði. Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og kennslufræða er æskileg. Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum. Í samræmi við mannréttindastefnu Akraneskaupstaðar eru bæði karlar og konur hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi SNS og KÍ. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2016. Umsóknarfrestur er til 29. febrúar 2016. Nánari upplýsingar um starfið veita Jóna Björk Sigurjónsdóttir jona.sigurjonsdottir@capacent.is og Gunnar Gíslason gunnar.gislason@akranes.is Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu Capacent. Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins. Grundaskóli Grundaskóli hefur á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki og er með um 600 nemendur í 1 til 10 bekk. Leiðarljós Grundaskóla er metnaðarfullt skólastarf sem byggir á góðu starfsumhverfi og góðri samvinnu starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans. Grundaskóli hefur unnið til fjölda viðurkenninga fyrir öflugt skólastarf. Hann hlaut meðal annars Íslensku menntaverðlaunin fyrstur allra skóla. Akranes Akraneskaupstaður er eitt af stærstu sveitarfélögum landsins með tæplega 7 þúsund íbúa. Bærinn er sérstaklega barnvænn með gott framboð af íþrótta-, tómstunda- og menningarstarfi. Í viðhorfskönnunum Capacent fær Akranes jafnan hæstu einkunnir í viðhorfi íbúa til grunn- og leikskóla. Sérfræðiþjónusta skólaskrifstofu er öflug og góð samvinna er á milli fagaðila sem vinna með börn og unglinga á Akranesi. Við leitum að umbótasinnuðum og farsælum leiðtoga til að stýra einum öflugasta skóla landsins. J Á K V Æ Ð N I – M E T N A Ð U R – V Í Ð S Ý N I Skólastjóri Grundaskóla U JÓ N SD Ó T T IR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.