Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 90

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 90
Vinnuvélar geta verið til margra hluta nytsamlegar. Tyrkneskur fót­ boltaþjálfari komst að því þegar hann leigði sér körfubíl til að horfa á leik hjá liði sínu eftir að honum hafði verið bannaður aðgangur að vell­ inum. Hamit Isik, þjálfari þriðjudeildar­ liðsins Corum Belediyespor, fékk níu og hálfs mánaðar langt bann eftir að hafa ráðist að dómara í leik liðsins stuttu áður. Eftir leikinn brutust út óeirðir hjá áhorfendum og var liðið því í þokkabót dæmt til þess að leika næstu leiki fyrir luktum dyrum. Hamit fékk því ekki að stjórna liði sínu í mikilvægum umspilsleik um að komast upp um deild. Hann tók því til sinna ráða og stóð í nokkurra metra hæð í körfu og gat því séð yfir veggi leikvangsins. Með þessu upp­ átæki hefur hann eflaust gert yfir­ völdum knattspyrnumála gramt í geði sem voru ekki hin hressustu fyrir þar sem áhangendur liðsins söfnuðust saman fyrir utan leik­ vanginn til að horfa á leikinn á risa­ skjá. Eftir alla þessa tilburði náði liðið hins vegar bara markalausu jafntefli við Darica Genclerbirligi. Þjálfarinn tekur körfubílinn að öllum líkindum á langtímaleigu. Sá leikinn úr körfubíl Á árunum 1974 til 1993 framleiddu Volvo­verksmiðjurnar í Svíþjóð 2,8 milljónir af Volvo 240. Flest­ ir fóru þessir bílar til útlanda en Svíar virtust sjálfir ekkert sérstak­ lega hrifnir af þessu módeli. Þess­ ir gömlu Volvo­bílar eru hins vegar eftirsóttir í dag í heimalandinu, enda þykja þeir sérlega sterkir og endingargóðir. Nú þykja þeir vera klassískir og margir sækjast eftir þeim sem fornbílum. Vélin í Volvo 240 þótti einstak­ lega vel heppnuð. Þá þykir bíllinn lipur í akstri, jafnvel þótt oft hafi áður fyrr verið talað um að hann væri þungur og líktist helst dráttar­ vél. Hin seinni ár virðist ekkert vandamál að fá varahluti í bílana. Framboðið þykir óvenjugott miðað við hvað bílarnir eru gamlir en inn­ réttingar og aukabúnaður kosta mikið. Bílarnir eru misdýrir eftir ástandi. Turbo­bílarnir eru dýrast­ ir. Þá er árgerð 1980 mjög eftir­ sótt, enda var þá komið vökvastýri í bílana og fleiri fylgihlutir en áður þekktust. Volvo er klassík Byggingafyrirtækið Rider Levett Bucknall gefur út RLB kranavísitöl­ una annað hvert ár en hún bygg­ ir á fjölda byggingakrana í stærstu borgum Norður­Ameríku og gefur góða mynd af stöðu byggingar­ iðnaðarins hverju sinni. Borgirnar sem um ræðir eru Boston, Chicago, Denver, Honolulu, Los Angeles, New York, Phoenix, San Francisco og Seattle. Nýjasta vísitalan gefur til kynna mikinn vöxt byggingariðnaðar­ ins sem á sinn þátt í viðreisn efna­ hagslífsins í Bandaríkjunum. Mest­ ur vöxtur er í byggingu blokka og íbúðarhúsnæðis. Þá er mikil upp­ bygging í fjölmiðla­, heilbrigðis­ og skólageiranum. Ólikt hefðbundnum fjármálavísi­ tölum er efniviðurinn í kranavísi­ töluna mjög sýnilegur enda gnæfa kranarnir yfir borg og bý. Vísitalan byggir á talningu byggingarkrana í hverri borg og er talið tvisvar á ári. Vísitalan var fyrst birt árið 2012 og nýtur vaxandi vinsælda. Vísitala byggð á fjölda krana Hvaleyrarbraut 2 220 Hafnafjörður Sími 511 4400 Körfulyftur með vinnusviði frá 1 – 100 m. LIFETIME EXCELLENCE P 220 B MANY AREAS OF USE. Palfinger hleðslukranar frá 0,9 – 200 tonn metrar. Körfulyftur og hleðslukranar LIFETIME EXCELLENCE P 220 B MANY AREAS OF USE. Vinnulyftur, kranar og pallar kynningarblað 13. febrúar 20164
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.