Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 55
Matreiðslumaður,
matreiðslunemi
og framreiðslunemi
Veitingahús Perlunnar leitar að
hæfileikaríkum matreiðslumanni,
og framreiðslu- og matreiðslunemum.
VILT ÞÚ VERA Í LYKILHLUTVERKI?
Bílaleigur AVIS og Budget eru meðal stærstu bílaleiga í heimi og starfa í 180 löndum með yfir 5.000
leigustöðvar. Á Íslandi er AVIS og Budget ört vaxandi fyrirtæki með leigustöðvar um allt land og geta
viðskiptavinir AVIS og Budget leigt bíla við öll tækifæri. Hjá AVIS og Budget starfar öflugur og reyndur hópur
fólks sem vinnur ávallt með þjónustu og áreiðanleika að leiðarljósi. Leitast er við að skapa starfsfólki gott
starfsumhverfi og aðstöðu en ánægja starfsfólks og viðskiptavina er lykilatriði í velgengni AVIS og Budget.
Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitar Avis Budget að framúrskarandi og kraftmiklum einstaklingum í okkar
öfluga starfsmannahóp. Ef þú hefur áhuga á að vinna í skemmtilegu umhverfi, þá erum við að leita að þér.
LAUNAFULLTRÚI – STARFSHLUTFALL 50%
Avis Budget óskar eftir að ráða metnaðarfullan og sjálfstæðan einstakling í starf launafulltrúa.
Viðkomandi mun vinna náið með mannauðsstjóra fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
• Umsjón með launabókhaldi og útreikningi launa
• Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila
• Útreikningur á kjörum og réttindum starfsmanna skv. kjarasamningum
• Ýmis önnur verkefni tengd mannauðsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun er nýtist í starfi
• 2 - 5 ára reynsla í sambærilegu starfi skilyrði
• Mjög góð þekking og reynsla af launakerfi Navision og Tímon
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund
• Frumkvæði, skapandi og öguð vinnubrögð
STARFSMAÐUR Á VERKSTÆÐI FYRIRTÆKISINS Í KEFLAVÍK
Bílaleigur Avis og Budget leita að framtíðarstarfsmanni á verkstæði fyrirtækisins í Keflavík
Helstu verkefni:
• Öll almenn vinna á bifreiðaverkstæði
• Léttar viðgerðir bifreiða
Almennar hæfniskröfur:
• Reynsla af viðgerðum bifreiða er skilyrði
• Bílpróf er skilyrði, meirapróf kostur
• Lipurð í mannlegum samskiptum ásamt framúrskarandi þjónustulund
• Góð ensku- og tölvukunnátta
• Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður
Unnið er á 2-2-3 vöktum. 25 ára lágmarksaldur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
SÖLU- OG ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Í ÞJÓNUSTUVER FYRIRTÆKISINS
Bílaleigur Avis og Budget leita að sérlega glaðlegum og þjónustulunduðum sölu- og þjónustufulltrúa í
þjónustuver fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
• Að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina
• Sala og bókanir
• Símsvörun, svörun fyrirspurna og tilboðsgerð
• Önnur þjónustu- og söluverkefni
Almennar hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Tungumálakunnátta er skilyrði (að lágmarki 2 tungumál)
• Reynsla af sölu- og þjónustustörfum ásamt mjög góðri tölvuþekkingu
• Lipurð í mannlegum samskiptum ásamt framúrskarandi þjónustulund
• Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður
• Bílpróf og hreint sakavottorð
Unnið er á 2-2-3 vöktum. 25 ára lágmarksaldur. Þjónustuver félagsins er staðsett í Reykjavík.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um störfin á www.avis.is fyrir 21. febrúar nk.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ingibjörg Þorsteinsdóttir, ingibjorg@avis.is.
Share Kringlunni
Óskum eftir heiðarlegum og duglegum starfskrafti til
starfa í verslun okkar í kringlunni.
Hæfniskröfur.
• Reynsla af sölumennsku æskileg
• Jákvæðni og sjálfstæði í starfi
• Áhugi á tísku
• Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.
• Sveigjanleiki og færni í starfi.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á: gbtro@internet.is
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
2x20
365.is Sími 1817
Hæfileikaríkt fólk á öllum aldri stígur á svið í Ísland Got
Talent. Hvaða atriði ná að hrífa Ágústu Evu, Dr. Gunna,
Jakob Frímann og Mörtu Maríu næst? Vertu með í
veislunni á sunnudagskvöldum á Stöð 2.
Á SUNNUDAGSKVÖLDUM
STJÖRNURNAR
SKÍNA SKÆRT
SUNNUDAGA KL. 19:10