Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 8
Ég er farinn að
byggja útvarpsnema
sem nema útvarpsbylgjur
utan úr geimnum. Það hafa
orðið miklar framfarir í
þessari tækni. Vísindamenn
hafa verið að byggja svona
útvarpsnema frá sirka 1930
en það hafa orðið mjög
miklar tölvuframfarir.
Tölvurnar geta nú tekið inn
bylgjur hratt, þær geta gert
miklu meira með gögnin.
Andri M. Gretarsson, prófessor við
Embry-Riddle vísindaháskólann í
Arizona
MARKAÐSSTARF ÍSLANDSSTOFU
Inga Hlín Pálsdóttir
Forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu.
MARKAÐSGREINING
Daði Guðjónsson og Margrét Helga Jóhannsdóttir
Verkefnisstjórar ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu.
MARKHÓPAGREINING – HVAR ERUM VIÐ STÖDD?
Kristín Sóley Björnsdóttir
Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.
MIKILVÆGI SAMSTARFS
Helga Árnadóttir
Framkvæmdastjóri SAF.
NÝ MARKAÐSHERFERÐ ÍSLAND – ALLT ÁRIÐ
Inga Hlín Pálsdóttir
Forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu.
ÁVARP RÁÐHERRA
Ragnheiður Elín Árnadóttir
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Skráning á islandsstofa@islandsstofa.is
Íslandsstofa boðar til fundar um samstarf
og markaðssetningu erlendis á árinu 2016.
Á fundinum verður fjallað um áherslur og
aðgerðir ársins og ný markaðsherferð fyrir
Ísland – allt árið kynnt.
AÐALFUNDUR
SFR STÉTTARFÉLAGS Í ALMANNAÞJÓNUSTU
miðvikudaginn 30. mars 2016 kl. 17 að Grettisgötu 89, 1. hæð
DAGSKRÁ
• Skýrsla stjórnar.
• Reikningar félagsins.
• Lagabreytingar.
• Kosinn löggiltur endurskoðandi, 2 skoðunarmenn og 2 til vara.
• Ákvörðun um iðgjald félagsmanna og skipting milli sjóða.
• Fjárhagsáætlun.
• Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
• Önnur mál.
Allir félagsmenn eru velkomnir, boðið verður upp á léttan kvöldverð.
4 km
LIGO – Laser Interferometer Gravitational Wave Observatory
1 Leysigeisli er sendur inn í vélina
2 Ljós leysigeislans er klofið í tvennt og fer
inn í tvenn göng, sem hvor eru 4 km löng
3 Geislarnir endurkastast
af speglum
4 Geislarnir
sameinast á ný og fara yfir
í nemann. Neminn greinir
hvort örsmáar breytingar
hafa orðið á ljósgeislunum,
sem væru merki um áhrif
af þyngdarbylgjum.
Spegill Spegill
Ljósgeymsluarmur Ljósgeymsluarmur
Ljósgjafi
Geislakljúfur
Ljósnemi
3 3
2
4
1
Heimild: LIGO | Ljósmyndir: Associated Press | @ Graphic News
VísIndI Dr. Andri M. Gretarsson
er prófessor við Embry-Riddle vís-
indaháskólann í Prescott í Arizona.
Hann vann árum saman við LIGO-
rannsóknarstöð í Bandaríkjunum
sem nýverið nam þyngdarbylgjur
frá samruna tveggja svarthola.
Þessi merku tímamót sem urðu
í stjarnvísindum eru uppskera ára-
tuga vinnu teymis vísindamanna
hjá LIGO. Andri sérhæfir sig í smíði
spegla sem hafa ákveðið hlutverk í
nema sem nemur þyngdarbylgjur
– greinir hvort örsmáar breytingar
hafa orðið á ljósgeislum sem væru
merki um áhrif frá þyngdarbylgjum.
LIGO-rannsóknarstöðvar sem
sérhæfa sig í að greina þyngdar-
bylgjur eru á tveimur stöðum í
Bandaríkjunum, í ríkjunum Wash-
ington og Louisiana. Þrjú þúsund
kílómetrar eru á milli stöðvanna
sem er nauðsynleg fjarlægð til að
greina þyngdarbylgjur. Andri vann
í stöðinni í Louisiana. Rannsóknir
á þyngdarbylgjum hafa staðið yfir í
rannsóknarstöðvunum frá sjöunda
áratugnum og sífelld framþróun á
tækjabúnaði hefur leitt til uppgötv-
unar sem varð á dögunum.
„Ég var fyrst að vinna við að þróa
þessa spegla sem eru aðalatriðið í
þessum nemum. Í kjölfarið fór ég
að vinna í rannsóknarstöðinni í
Louisiana við að gera nemann nógu
næman. Það var fyrsta útgáfan af
þessum nema sem ég vann að, hann
hefur síðan þá verið settur saman
aftur og verið í stöðugum endur-
bótum. Maður er búinn að bíða
eftir þessu svo lengi, maður trúir
þessu varla. Það eru mjög margir
vísindamenn búnir að vera að
vinna að þessu og lengur en ég, tveir
vísindamenn hafa til dæmis starfað
að verkefninu frá árinu 1967.“
Andri er hættur hjá LIGO og
sinnir nú helsta hugðarefni sínu
sem eru rannsóknir á útvarps-
og hljóðbylgjum úr geimnum og
eðlisfræðitilraunir og -rannsóknir.
„Ég er búinn að vera að vinna við
LIGO-verkefnið í tuttugu ár og hef
líka verið að gera það hér í Embry-
Riddle, en maður verður aðeins
að prufa eitthvað nýtt svo manni
leiðist ekki. Ég er farinn að byggja
útvarpsnema sem nema útvarps-
bylgjur utan úr geimnum. Það hafa
orðið miklar framfarir í þessari
tækni. Vísindamenn hafa verið
að byggja svona útvarpsnema frá
sirka 1930 en það hafa orðið mjög
miklar tölvuframfarir. Tölvurnar
geta nú tekið inn bylgjur hratt, þær
geta gert miklu meira með gögnin.
Í staðinn fyrir að nota stóra mót-
tökudiska þá er núna hægt að fara
aftur í retró tækni og nota mörg lítil
loftnet,“ segir Andri og segir loftnet
á litlum útvörpum næstum duga.
„Það er hægt að vera með mörg
hundruð lítil loftnet á víðavangi
og taka gögnin frá þessum stöku
loftnetum og setja þau inn í tölv-
una. Tölvan getur sett þau saman á
réttan hátt. Maður getur eiginlega
stjórnað því hvert á himninum loft-
netunum er beint, það er að segja,
maður getur hlustað á einn tiltek-
inn stað, það finnst mér verulega
heillandi.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Á þátt í merkilegum
uppgötvunum LIGO
Íslenskur vísindamaður í Arizona sérhæfir sig í smíði nema sem greina þyngdar-
bylgjur. Hann starfaði við LIGO-verkefnið í Louisiana í fjölda ára og á því þátt í
þeim tímamótum sem urðu þegar tókst að nema þyngdarbylgjur í fyrsta sinn.
Andri M Gretarsson, prófessor í Ari-
zona, á heimili sínu, hann vann í fjölda
ára við þróun á nemum sem voru
notaðir til að nema þyngdarbylgjur við
LIGO-rannsóknarstöð.
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 L a U G a r d a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð