Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 99
Innilegar þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns,
Guðmundar Magnúsar
Jasonarsonar
rafvirkjameistara.
Starfsfólki Hrafnistu eru færðar
alúðarþakkir fyrir góða umönnun.
Bjarney Guðrún Ólafsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir falleg orð,
kveðjur og auðsýnda samúð vegna
fráfalls okkar yndislegu ástkæru
eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Þuríðar Sölvadóttur
Erluhólum 9, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks blóðlækningadeildar
11G á Landspítalanum við Hringbraut fyrir einstaka
hlýju og umönnun.
Bergsveinn Alfonsson
Sölvi Þór Bergsveinsson Ingibjörg Grettisdóttir
Linda Björk Bergsveinsdóttir Guðfinnur Guðnason
Sigríður Gunnarsdóttir Rúnar V. Þórmundsson
og ömmubörnin.
Innilegar þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför föður okkar,
Árna Stefánssonar
hæstaréttarlögmanns,
Goðheimum 21, 104 Reykjavík,
sem andaðist 24. janúar sl. og var jarðsettur
í kyrrþey að eigin ósk. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólkinu á Hrafnistu í Reykjavík, deild 4 A.
Stefán Árnason Stefanía Eiríka Einarsdóttir
Guðný Árnadóttir
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Unnur Guðmundsdóttir
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík,
lést á Landakotsspítala þann 21. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Við þökkum auðsýnda samúð og vinsemd.
Rut Þorsteinsdóttir Olgeir Kristjónsson
Hörður Þorsteinsson Kristín Gunnarsdóttir
Hafdís Þorsteinsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Láru Guðnadóttur
(Syðstu-Görðum)
Brákarhlíð, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
dvalarheimilisins Brákarhlíðar
í Borgarnesi fyrir góða umönnun.
Börn, tengdabörn, barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar okkar
elskuðu dóttur, systur, mágkonu
og föðursystur,
Rósu Kristjánsdóttur
Stóradal.
Margrét Rósa Jónsdóttir Kristján Jónsson
Bjarki Kristjánsson Erla Gunnarsdóttir
Jón Ölver Kristjánsson Sunna Björk Björnsdóttir
Jakob Víðir Kristjánsson Ragnhildur Haraldsdóttir
og bræðrabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jóhann Long Ingibergsson
lést á Hrafnistu í Reykjavík 7. febrúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 16. febrúar kl. 13.00.
Sóley Jóhannsdóttir
Haraldur Jóhannsson Nína Dóra Pétursdóttir
Einar Jóhannsson Evelyn Hipertor Jóhannsson
Jóhann Long Jóhannsson
og afabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan
hlýhug og samúð vegna andláts og
útfarar eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Ólafs Ágústs Ólafssonar
Vatnsstíg 21, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Droplaugarstaða fyrir hlýju og alúðlega umönnun.
Sigurveig Kristjánsdóttir
Kristín Hagalín Ólafsdóttir Björn Vignir Sigurpálsson
Kristján Ólafsson Ragna Eyjólfsdóttir
Ólafur Ágúst Ólafsson Jacqueline Santos Silva
Sigrún Sandra Ólafsdóttir Albert Björn Lúðvígsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
Bents Bjarna Jörgensen
Háaleitisbraut 10,
og heiðruðu minningu hans.
Guðrún Jörgensen
Aðalheiður Jörgensen Friðgeir Sveinn Kristinsson
Árni Ómar Bentsson Bryndís Hilmarsdóttir
Bjarni, Hilmar, María, Sigrún,
Ester Inga og Agnar Bjarni
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir,
mágur og frændi,
Hilmar Örn Bragason
Brúnastöðum 54,
varð bráðkvaddur að heimili sínu
fimmtudaginn 4. febrúar. Útförin fer
fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn
15. febrúar kl. 13.00.
Hildur Hilmarsdóttir Birgir Hilmarsson
Jóhanna Steinunn Guðmundsdóttir
Bragi Hansson Rose Marie Christiansen
Petra Bragadóttir Eggert Árni Gíslason
Ólöf Björk Bragadóttir Sigurður Ingólfsson
og fjölskyldur.
Sýningin er á frekar léttum nótum og er pínulítið sumarleg þó langt sé enn til vors. Ef ég á að velja henni
yfirskrift mundi hún vera Náttúra,“ segir
Edda Guðmundsdóttir um sýningu sína
á veitingastaðnum Geysi Bistró í mið-
borg Reykjavíkur. Hún segir ekki um
stóra fleti að ræða inni á staðnum og
myndirnar taki mið af því. Skyldi hún
hafa málað þær með þennan sal í huga?
„Nei, myndirnar eru frá ýmsum tíma-
bilum, sumar nýjar og aðrar eldri, ég
valdi þær eftir því hvernig þær pössuðu
saman og í plássið.“
Edda kveðst hafa mjög frjálslegan stíl
í myndlistinni. „Ég er mest að skemmta
sjálfri mér með því að mála. Nota mest
olíuliti en ein mynd á sýningunni er
máluð með vatnslitum á striga, ég var
aðeins að prófa og ákvað að hengja hana
upp.“
Edda hélt sína fyrstu sýningu 2007
í tilefni sjötugsafmælis síns en kveðst
lengi hafa fengist við að mála. „Ég á til
myndir frá sjöunda áratugnum þann-
ig að ég hef lengi fiktað við litina. Hef
svo verið í skólum og reynt að bæta við
mig færni í 25 ár. Er núna í Myndlistar-
skólanum í Reykjavík í tímum sem kall-
ast Vinnustofa. Þar fáum við kennara í
heimsókn að leiðbeina okkur og gagn-
rýna.“
Spurð hvaðan hún fái sínar hugmynd-
ir að listaverkum svarar Edda: „Ég veit
það ekki, ég verð að segja að mig skortir
bara aldrei hugmyndir. Ef eitthvað er þá
eru þær of margar. Sumum hefur mér
ekki tekist að koma frá mér þannig að
ég sé sátt, þær eru niðri í geymslu og bíða
betri tíma. Ég er alltaf með hugmynd í
kollinum þegar ég byrja á mynd, svo
getur hún breyst og útkoman orðið allt
önnur í lokin en samt verið í lagi.“
Hvort hún hafi listfengi í genunum
veit Edda ekki en segir þó föður sinn,
Guðmund Gíslason, kennara og skóla-
stjóra, hafa haft gaman af að teikna og
mála. „Þegar pabbi byrjaði að kenna sem
ungur maður á Laugarvatni kenndi hann
meðal annars teikningu.“
Edda fór beint úr því að hengja upp
sýninguna í að pakka niður fyrir sólar-
landaferð og er í þann veginn að hoppa
upp í flugvél á leið til Tenerife þegar
viðtalið fer fram. Skyldi hún fara með
litina með sér út? „Nei, mér finnst sólar-
strönd ekki rétti staðurinn til að mála á.
En ég hef skroppið til Tenerife undan-
farin nokkur ár á þessum árstíma. Það er
freistandi að drífa sig burt úr hálkunni.“
gun@frettabladid.is
Pínulítið sumarleg sýning
Edda Guðmundsdóttir opnaði nýlega sýningu á eigin myndum í Geysi Bistro í Aðalstræti.
Þær eru frá ýmsum tímabilum, sumar nýjar og aðrar eldri og eru sérvaldar í plássið.
Edda í óðaönn að koma myndum sínum fyrir í Geysi Bistro. Mynd/Úr Einkasafni
Ég er alltaf með hugmynd í
kollinum þegar ég byrja á mynd,
svo getur hún breyst og útkoman
orðið allt önnur í lokin en samt
verið í lagi.
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 39L a U G a R D a G U R 1 3 . F e B R ú a R 2 0 1 6