Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 67
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 13. febrúar 2016 29
Ert þú lausnamiðaður
og skipulagður leiðtogi?
Við leitum að forstöðumanni rekstraráhættudeildar
á áhættustýringarsviði
Rekstraráhættudeild aðstoðar stjórnendur bankans við að ná markmiðum sínum, t.d.
varðandi gæði þjónustu, ánægju viðskiptavina, rekstur og fylgni við lög og reglur.
Helstu verkefni rekstraráhættudeildar
· Greining, þróun og skráning viðskiptaferla
· Greining rekstrarfrávika og eftirfylgni með úrbótum
· Samræming í gæða- og öryggismálum
· Þróun og umsjón lykilmælikvarða fyrir rekstraráhættu í bankanum
· Reglulegt RCSA sjálfsáhættumat viðskiptaeininga bankans
· Að þróa og efla varnarlínurnar þrjár í innra eftirliti
Starfssvið forstöðumanns
· Dagleg stjórnun rekstraráhættudeildar
· Vinna með framkvæmdastjóra að stefnumótun áhættustýringar
· Að fylgjast með löggjöf, stöðlum og bestu framkvæmd á sviði rekstraráhættustýringar
· Efling liðsheildar og stuðla að starfsþróun starfsfólks
· Samskipti við eftirlitsaðila
Hæfni og eiginleikar
· Leiðtogahæfni, áræðni, drifkraftur og færni í stefnumótun
· Skipulögð vinnubrögð, sköpunarkraftur og lausnamiðuð hugsun
· Samskipta- og samstarfshæfileikar og hæfni til að byggja upp tengslanet
· Reynsla af eftirlitsstörfum og stjórnun æskileg
· Háskólanám á meistarastigi sem nýtist í starfi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Íris Guðrún Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri, netfang
iris.ragnarsdottir@arionbanki.is, sími 444 6064.
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2016. Fullum trúnaði er heitið og öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Arion banki er líflegur og spennandi vinnustaður. Við vinnum með viðskiptavinum okkar að því að búa í
haginn fyrir framtíðina. Við ræktum jákvæðan starfsanda og leggjum áherslu á að starfsfólk okkar
þroskist og þróist í starfi með markvissri fræðslu og þjálfun. Straumlínustjórnun er hluti af daglegri
menningu með stöðugum umbótum og samvinnu allra starfsmanna. Jafn réttur kvenna og karla til starfa
er okkur hjartans mál og við hlutum nýverið Jafnlaunavottun VR. Saman látum við góða hluti gerast.
Við gætum verið
með næsta starfsmann
mánaðarins á skrá
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.
Sérfræðingur á sviði stefnumótunar
og fjármála
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða sérfræðing til
starfa á rekstrar- og þjónustuskrifstofu. Meðal verk-
efna skrifstofunnar eru fjármál og rekstur utanríkis-
þjónustunnar, þ.m.t. fjárlagagerð, framkvæmd fjár-
laga og áætlanagerð fyrir aðalskrifstofu ráðuneytisins
og sendiskrifstofur. Hún hefur auk þess umsjón með
bókhaldi, húsnæðismálum ráðuneytisins og send-
iskrifstofa, öryggismálum utanríkisþjónustunnar,
fjarskiptamálum og tölvukerfum. Borgaraþjónusta
ráðuneytisins og þýðingamiðstöð heyra einnig undir
skrifstofuna.
Framundan eru krefjandi verkefni í fjárhagsáætlana-
gerð og stefnumótun sem tengjast innleiðingu nýrra
laga um opinber fjármál.
Starfssvið
• Stefnumótun og áætlanagerð í málaflokkum
ráðuneytisins í samstarfi við skrifstofur þess.
• Fjárlagagerð og framkvæmd fjárlaga
• Ritun greinargerða um fjármál og rekstur
ráðuneytisins og upplýsingagjöf
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólagráða í viðskiptafræði, hagfræði og/eða
fjármálum og rekstri, meistaragráða er skilyrði
• Þekking á sviði áætlanagerðar, stefnumótunar og
markmiðasetningar
• Þekking í gerð fjármálaáætlana og greiningarvinnu
• Þekking á opinberri stjórnsýslu
• Kunnátta til að greina og miðla tölulegum upplýs-
ingum með greinargóðum og skýrum hætti.
• Góð almenn tölvufærni, einkum í Excel
• Gott vald á íslensku og ensku, önnur tungumála-
kunnátta er kostur
• Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt við-
mót
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnu-
brögðum, auk hæfileika til að taka virkan þátt í
teymisvinnu.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og
fjármála- og efnahagsráðherra. Starfið er háð flutn-
ingsskyldu í utanríkisþjónustunni skv. 10. gr. laga nr.
39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar 2016.
Umsóknir skulu berast á netfangið umsokn@mfa.is,
merkt „Sérfræðingur, stefnumótun og fjármál, 2016“.
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja
um starfið. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex
mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Helga Hauksdóttir (helga.
hauksdottir@utn.stjr.is) og Anna Ósk Kolbeinsdóttir
(anna.osk.kolbeinsdottir@utn.stjr.is).