Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 67

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 67
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 13. febrúar 2016 29 Ert þú lausnamiðaður og skipulagður leiðtogi? Við leitum að forstöðumanni rekstraráhættudeildar á áhættustýringarsviði Rekstraráhættudeild aðstoðar stjórnendur bankans við að ná markmiðum sínum, t.d. varðandi gæði þjónustu, ánægju viðskiptavina, rekstur og fylgni við lög og reglur. Helstu verkefni rekstraráhættudeildar · Greining, þróun og skráning viðskiptaferla · Greining rekstrarfrávika og eftirfylgni með úrbótum · Samræming í gæða- og öryggismálum · Þróun og umsjón lykilmælikvarða fyrir rekstraráhættu í bankanum · Reglulegt RCSA sjálfsáhættumat viðskiptaeininga bankans · Að þróa og efla varnarlínurnar þrjár í innra eftirliti Starfssvið forstöðumanns · Dagleg stjórnun rekstraráhættudeildar · Vinna með framkvæmdastjóra að stefnumótun áhættustýringar · Að fylgjast með löggjöf, stöðlum og bestu framkvæmd á sviði rekstraráhættustýringar · Efling liðsheildar og stuðla að starfsþróun starfsfólks · Samskipti við eftirlitsaðila Hæfni og eiginleikar · Leiðtogahæfni, áræðni, drifkraftur og færni í stefnumótun · Skipulögð vinnubrögð, sköpunarkraftur og lausnamiðuð hugsun · Samskipta- og samstarfshæfileikar og hæfni til að byggja upp tengslanet · Reynsla af eftirlitsstörfum og stjórnun æskileg · Háskólanám á meistarastigi sem nýtist í starfi Nánari upplýsingar um starfið veitir Íris Guðrún Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri, netfang iris.ragnarsdottir@arionbanki.is, sími 444 6064. Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2016. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Arion banki er líflegur og spennandi vinnustaður. Við vinnum með viðskiptavinum okkar að því að búa í haginn fyrir framtíðina. Við ræktum jákvæðan starfsanda og leggjum áherslu á að starfsfólk okkar þroskist og þróist í starfi með markvissri fræðslu og þjálfun. Straumlínustjórnun er hluti af daglegri menningu með stöðugum umbótum og samvinnu allra starfsmanna. Jafn réttur kvenna og karla til starfa er okkur hjartans mál og við hlutum nýverið Jafnlaunavottun VR. Saman látum við góða hluti gerast. Við gætum verið með næsta starfsmann mánaðarins á skrá www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. Sérfræðingur á sviði stefnumótunar og fjármála Utanríkisráðuneytið óskar að ráða sérfræðing til starfa á rekstrar- og þjónustuskrifstofu. Meðal verk- efna skrifstofunnar eru fjármál og rekstur utanríkis- þjónustunnar, þ.m.t. fjárlagagerð, framkvæmd fjár- laga og áætlanagerð fyrir aðalskrifstofu ráðuneytisins og sendiskrifstofur. Hún hefur auk þess umsjón með bókhaldi, húsnæðismálum ráðuneytisins og send- iskrifstofa, öryggismálum utanríkisþjónustunnar, fjarskiptamálum og tölvukerfum. Borgaraþjónusta ráðuneytisins og þýðingamiðstöð heyra einnig undir skrifstofuna. Framundan eru krefjandi verkefni í fjárhagsáætlana- gerð og stefnumótun sem tengjast innleiðingu nýrra laga um opinber fjármál. Starfssvið • Stefnumótun og áætlanagerð í málaflokkum ráðuneytisins í samstarfi við skrifstofur þess. • Fjárlagagerð og framkvæmd fjárlaga • Ritun greinargerða um fjármál og rekstur ráðuneytisins og upplýsingagjöf • Önnur tilfallandi verkefni á sviði skrifstofunnar. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólagráða í viðskiptafræði, hagfræði og/eða fjármálum og rekstri, meistaragráða er skilyrði • Þekking á sviði áætlanagerðar, stefnumótunar og markmiðasetningar • Þekking í gerð fjármálaáætlana og greiningarvinnu • Þekking á opinberri stjórnsýslu • Kunnátta til að greina og miðla tölulegum upplýs- ingum með greinargóðum og skýrum hætti. • Góð almenn tölvufærni, einkum í Excel • Gott vald á íslensku og ensku, önnur tungumála- kunnátta er kostur • Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt við- mót • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnu- brögðum, auk hæfileika til að taka virkan þátt í teymisvinnu. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra. Starfið er háð flutn- ingsskyldu í utanríkisþjónustunni skv. 10. gr. laga nr. 39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar 2016. Umsóknir skulu berast á netfangið umsokn@mfa.is, merkt „Sérfræðingur, stefnumótun og fjármál, 2016“. Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum um- sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veita Helga Hauksdóttir (helga. hauksdottir@utn.stjr.is) og Anna Ósk Kolbeinsdóttir (anna.osk.kolbeinsdottir@utn.stjr.is).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.