Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 102
Ertu alltaf kallaður báðum nöfn-
unum, Guðmundur Daníel?
Nei, yfirleitt bara Guðmundur og
stundum Gummi af vinum mínum
í skólanum. Þegar ég er í útlöndum
er ég kallaður Daníel því útlend-
ingum finnst erfitt að segja Guð-
mundur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
læra í skólanum?
Smíði, stærðfræði og íþróttir.
Hver eru helstu áhugamálin utan
skólans?
Golf, skíði og að spila á píanó. Ég
spila golf á sumrin hjá Golfklúbbn-
um Oddi með pabba og Helga
Hrafni, bróður mínum.
Hversu gamall byrjaðir þú að spila
á hljóðfæri?
Ég byrjaði fimm ára að spila á píanó
í Landakotsskóla. Núna læri ég hjá
Jónasi Sen í Tónmenntaskóla Reykja-
víkur.
Hvernig datt þér í hug að spila á
píanó og munnhörpu í einu?
Það var þegar ég sá Billy Joel spila
Pianoman á Youtube. Mig langaði
að prófa hvort ég gæti gert það sama,
spila á píanó, munnhörpu og syngja
lagið á sama tíma.
Byrjaðir þú ungur að æfa á skíðum?
Ég var sjö ára þegar ég fór að æfa
skíði hjá Ármanni en bara fjögurra
ára þegar ég byrjaði fyrst að fara á
skíði. Nú er ég nýkominn úr níu daga
skíðaferð til Keystone í Colorado
með fjölskyldu minni. Það var mjög
gaman. Við skíðuðum allar erfiðustu
brekkurnar og líka fyrir utan brekkur
og inn á milli trjánna. Það reyndi á.
Ég hef líka skíðað í Sochi í Rússlandi,
í Kanada, á Ítalíu og í Breckenridge.
Keppir þú stundum á skíðum?
Já, til dæmis keppti ég á Reykjavíkur-
mótinu í stórsvigi síðasta þriðjudag
og lenti í 4. sæti.
Hvað langar þig að verða þegar þú
verður stór?
Atvinnumaður í golfi því það er
íþróttin sem mér finnst skemmti-
legust.
Spilar á píanó og
munnhörpu samtímis
Hinn ellefu ára gamli Guðmundur Daníel Erlendsson leikur sér að
því að spila á píanó og munnhörpu samtímis og syngja inn á milli.
Hann iðkar líka skíðabrun á veturna og golf á sumrin.
Guðmundur hefur munnhörpuna á sérstakri grind sem heldur henni upp við munninn meðan hann spilar á píanóið.
Fréttablaðið/Vilhelm
Brandarar
Drengurinn: „Mamma, þú verður
að vekja hann afa.“
mamman: „Af hverju, góði minn?“
Drengurinn: „Hann gleymdi að
taka svefntöflurnar sínar.“
„Eru ekki allar tærnar á mér jafn-
gamlar, mamma?“ spurði Símon
litli.
„Jú, að sjálfsögðu, væni minn,“
svaraði mamma.
„Hvernig stendur þá á því að þær
eru ekki allar jafnstórar?“
Kennarinn: „Í hvaða orðflokki er
kjúklingur?“
Sigrún: „Kjúklingur er nafnorð.“
Kennarinn: „Í hvaða kyni?“
Sigrún: „Ja, ef hann fer að gala
þegar hann stækkar þá er hann
karlkyn.“
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
Sýningin Nála er nú í bókasafninu á
Akranesi. Hún er búin að fara hring-
inn um landið á einu ári. Nokkur
þúsund gestir hafa sótt hana og jafn-
framt tekið þátt í að móta hana. Nála
er nokkurs konar afkvæmi bókar-
innar Nálu – Riddarasögu eftir Evu
Þengilsdóttur. Kveikjan að sögunni
er Riddarateppi frá 1700 sem er til
sýnis á Þjóðminjasafninu og því var
sýningin opnuð þar.
Á Nálusýningunni hafa krakkar
kubbað, æft sig í krosssaum og
hlustað á upplestur á Nálu – Ridd-
arasögu.
Einn hluti sýningarinnar er 90
metra langur pappírsrefill. Á hann
hafa mörg þúsund börn teiknað
myndir í öllum regnbogans litum.
Refillinn er rúðustrikaður og mynd-
irnar með krosssaumsmynstri, líkar
þeim sem eru í bókinni.
Á Akranesi lýkur sýningunni 24.
febrúar. Eftir það fer refillinn langi
austur á Hvolsvöll og verður sýndur
á Njálusetrinu – þar er einmitt verið
að sauma Njálurefil. – gun
Nálurefill eftir mörg þúsund börn á Íslandi
Bragi Halldórsson
166
Getur
þú fundið
fimm arma
stjörnuna?
„Þetta er nú eitthvað skrítin þraut,“ sagði Kata. „Alger ruglingur af litum og
formum, það er bara ekkert hægt að sjá út úr þessu.“ Bætti hún við. „Hvað
segir þú Lísaloppa, hvað segja leiðbeiningarnar, hvað eigum við að gera við
þetta rugl, eigum við að geta séð eitthvað út úr þessu eða hvað?“ Lísaloppa
las leiðbeiningarnar. „Við eigum að finna fimm arma stjörnu og litirnir skipta
engu máli,“ sagði hún. „Fimm arma stjörnu segir þú, út úr þessu rugli?“ sagði
Kata hneyksluð. „Jæja, fyrst leiðbeiningarnar segja það þá hlýtur það að
vera hægt.
1 3 . f E B r ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r42 H E L G i n ∙ f r É T T a B L a ð i ð