Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 94
á að skoðunin um fækkun ríkis- stofnana hafi fengið slæma útreið. Auðvitað ver kerfið sjálft sig, emb- ættismannakerfið á Íslandi er sterkt og það er bara mannlegt að sporna gegn breytingum. Aðalmálið er að við sem þjóðfélag séum sammála um hvaða hlutverki ríkið á að sinna, en svo þurfum við að hafa kjarkinn til þess að taka ákvarðanir um breytingar ef þær auðvelda ríkinu að sinna hlutverki sínu betur.“ Mikil samstaða í þjóðfélaginu Katrín Olga segist mundu vilja byrja á umræðu um hver við viljum að séu umsvif hins opinbera. „Þarna kem ég aftur að Samráðsvettvanginum. Ég tel að það sé miklu meiri sam- staða í íslensku þjóðfélagi en má virðast. Við viljum öll góða heil- brigðisþjónustu, menntakerfi og samgöngur. En svo þegar kemur að útfærslunni þá er blæbrigðamunur. Mér finnst það sorglegt þegar því sem við erum ósammála um er gert miklu hærra undir höfði en því sem við erum sammála um. Á Íslandi er gróska í tæknifyrir- tækjum og auðvitað viljum við sjá fleiri fyrirtæki eins og Össur og Marel. Ég er viss um að það eru í dag íslensk sprotafyrirtæki sem eiga eftir að feta í þau fótspor og það þarf auðvitað að styðja við þau. Ég vil sjá fjölbreytta flóru íslenskra tæknifyrirtækja. Í dag erum við með þrjá stólpa þegar kemur að útflutningi: sjávar- útveginn, stóriðjuna og ferðaþjón- ustuna. En við þurfum að huga að fleiri möguleikum. Okkur hefur til dæmis tekist vel að draga að erlend fyrirtæki sem taka upp kvik- myndir og þáttaraðir hér á landi, gegn ívilnun. Við þurfum að halda áfram á þeirri braut. Í dag erum við til dæmis í beinni samkeppni um slík verkefni við Noreg sem ákvað að feta sömu braut. Við þurfum að svara þeirri samkeppni. Við verðum að hafa í huga ruðningsáhrifin af því þegar vel gengur,“ segir Katrín Olga. Tækifæri í samrekstri Katrín Olga aðhyllist einnig fjöl- breytileika í rekstrarformi, sem hún segir að megi skoða sérstaklega hvað varðar opinbera geirann. „Við hrökkvum öll í baklás þegar rætt er um einkarekstur þjónustu sem ríkið sinnir eða samrekstur milli einkaaðila og ríkisins. En ég held að á mörgum sviðum felist tækifæri í að fara þá leið,“ segir hún. Fjölbreytileiki lykilatriði „Fjórði fjölbreytileikinn er mann- lífið. Við erum ekki nema rúmlega 300 þúsund manns. Það er jákvætt að auka fjölbreytileikann þegar kemur að þjóðernum. Við sjáum til dæmis hvað Íslensk erfðagreining hefur dregið til landsins marga erlendra sérfræðinga af ólíkum þjóðernum. Það er skortur á starfs- fólki í ákveðnum stéttum, meðal annars í ferðaþjónustu. Við eigum óhrædd að fagna fjölbreytileika í mannlífinu og taka vel á móti starfs- fólki af erlendum uppruna. Allur þessi fjölbreytileiki skilar sér í víð- sýni og hagsæld að mínu mati.“ Katrín Olga segir að sér finnist jafnframt skipta máli fyrir íslenskt atvinnulíf að leikreglurnar séu skýr- ar. „Við höfum verið að breyta mikið leikreglunum. Árin eftir hrun voru gerðar hundrað skattbreytingar á íslensku skattkerfi. Allar sveiflur og það að breyta reglum eftir á er mjög vont fyrir íslenskt viðskiptalíf. Ég veit að þeir erlendu aðilar sem hafa komið að stjórnun á Íslandi hafa bent á að það sé mjög erfitt að vera með viðskipti á Íslandi, þar sem er alltaf verið að breyta leikreglunum. Ég held að stöðugleiki í því umhverfi sem við búum í skipti miklu máli. Það er líka mikilvægt að þegar við innleiðum reglur frá ESB þá bætum við ekki í regluna og þyngjum hana eins og því miður hefur verið raunin hér á landi. Vaxandi erlend samkeppni Við erum örþjóð. Við þurfum að laga stofnana- og eftirlitsumhverfið okkar að því. Við getum ekki verið að hegða okkur eins og stórþjóð þannig að fyrirtæki í landinu kafni,“ segir Katrín Olga. Hún bendir á að íslensk fyrir- tæki verði fyrir mikilli erlendri samkeppni. „Já.is er að keppa við Google, Icelandair við easyJet og 365 við Netflix og Hulu. Skattspor fyrirtækja á Íslandi eins og Ice- landair Group eru 20 milljarðar. EasyJet skilar því ekki. Það þarf að varast að líta á fyrirtækin of þröngt. Viljum við hafa blómlegt atvinnulíf á Íslandi? Mér finnst málið snúast um þetta, en ekki hvort viðkomandi sé stór á Íslandi.“ Katrín Olga telur að blómlegt atvinnulíf komi líka til með að draga hæfileikaríkt íslenskt vinnuafl heim. „Ég man þegar Íslensk erfðagreining var sett á stofn, þá komu margir íslenskir sérfræðingar aftur heim. Það er alveg ljóst að fjölbreytt við- skiptalíf sem dafnar og hefur frelsi til að dafna mun draga Íslendingana heim.“ „Auðvitað eru það vonbrigði að eigendur fyrirtækja sjái sér ekki hag í því að vera með fjölbreytileika við stjórn. Þau fyrirtæki missa af tæki- færum. Rannsóknir McKinsey sýna að fjölbreytileiki eykur hagsæld fyrirtækja. Þrátt fyrir augljós jákvæð áhrif hefur kynjakvótinn því miður ekki skilað nægum áhrifum á stjórnun innan fyrirtækja. Maður veltir því fyrir sér hvað þarf til. Kannski vant- ar fleiri fyrirmyndir eða aukið víð- sýni þeirra sem ráða stjórnendur,“ segir hún. Jafnréttismál hafa verið Katrínu Olgu hugleikin í gegnum árin og hefur hún lagt sitt af mörkum til þess að auka hag kvenna. „Þar er verk að vinna, þó mikið hafi áunn- ist. Við erum ennþá að glíma við launamisrétti kynjanna þó árið sé 2016, einungis ein kona, Sigrún Ragna, forstjóri VÍS, stýrir skráðu fyrirtæki í Kauphöll og við höfum tekið bakslag með sjálfstæðan fæð- ingarorlofsrétt karla, sem orsakar það að þeir taka síður fæðingar- orlof. Vill vera fyrirmynd Ég vona að formennska mín í Við- skiptaráði verði hvatning og hafi jákvæð áhrif. Konur standa körlum jafnfætis þegar kemur að námi og eru meira að segja meirihluti þeirra sem útskrifast úr háskóla, en á sama tíma eru konur ekki jafnir þátttak- endur á við karla þegar kemur að því að stýra landinu, hvorki í pólitík né atvinnulífinu. Við eigum að koma að þessu borði eins og öðrum.“ Katrín Olga segir að sér finnist skipta afskaplega miklu máli við stjórnun að hafa sýn og stefnu. „Þú þarft að vinna með stefnu og hafa sýn, víðsýni og þekkja rekstur. Mér finnst skipta máli að vera hrein- skilin og opin. Rökræður og að geta skipt um skoðun skiptir mjög miklu máli.“ Hún hefur setið í Viðskiptaráði í sex ár og segist ætla að fylgja þeirri línu sem hún hefur tekið þátt í að móta á tíma sínum í stjórn ráðsins. „Eftir að McKinsey-skýrslan birtist ákváðum við stefnu til fjögurra ára út frá þeim geirum sem voru settir fram þar. Starfið einkennist af því. Við höfum tekið alþjóðageirann fyrir, opinbera geirann og nú erum við að taka innlenda þjónustugeir- ann. Svo er auðlindageirinn eftir. Aðhyllist samrekstur stofnana Við erum á góðri leið, höfum mynd- að okkur skoðanir á ýmsum hlutum, meðal annars hvernig hægt sé að einfalda regluverk og stofnanaum- hverfið og við munum vinna áfram á þeim nótum. Á Íslandi eru yfir 180 stofnanir, en við erum rétt rúmlega 300 þúsund manna þjóð. Ein af til- lögum verkefnastjórnar á vegum Samráðsvettvangs er aukinn sam- rekstur stofnana. Við erum með margar örstofnanir sem eyða meira af fjármagni sínu í stoðþjónustu en faglega þjónustu. Samrekstur um stoðþjónustu tryggir aukið fé til faglegra verkefna,“ segir Katrín Olga. Hún telur að það sé hljómgrunn- ur fyrir þessum hugmyndum. „Það er alveg ljóst að það eru einhverjir ósammála okkar hugmyndum. Við hjá Viðskiptaráði lítum ekki svo Við hrökkVum öll í baklás þegar rætt er um einkarekstur þjónustu sem ríkið sinnir eða samrekstur milli einkaaðila og ríkisins. en ég held að á mörgum sViðum felist tækifæri í að fara þá leið. Stærð fyrirtækis 2010 2011 2012 2013 2014 2-9 manns 25,5 26,0 25,8 25,6 25,4 10-19 manns 20,1 21,0 21,0 20,5 22,2 20-49 manns 16,8 17,7 19,3 20,6 20,4 50-99 manns 20,1 19,2 21,3 26,1* 29,6 100-249 manns 17,5 21,9 23,8 31,8* 35,0 250+ 21,0 25,7 26,0 36,0* 38,5 Meðaltal 24,0 24,5 24,9 25,1 25,5 ✿ Hlutfall kvenkyns stjórnarmanna *Í september 2013 tóku gildi lög um kynjakvóta sem segja að í stjórnum opinberra hlutafélaga og hlutafélaga sem hafa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skuli vera að minnsta kosti 40 prósent hlutfall af öðru kyninu. Katrín Olga telur að miklu meiri samstaða sé í íslensku þjóðfélagi en megi virðast. FreTTAblAðið/ernir ↣ Ármúla 21, 2. hæð • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com Snyrtistofan Ha lik PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 FLOTT TILBOÐ SEM GILDA ÚT FEBRÚAR ERTU LÖNGU HÆTTUR AÐ TAKA Í NEFIÐ EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR! 1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r34 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.