Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
Frönsk stjórnvöld hafa lagt háarsektir og rukkað Google að
auki um skatta sem fyrirtækið van-
greiddi í landinu. Samtals greiðir
Google nú jafnvirði um 130 milljarða
króna til franska ríkisins af þessum
sökum.
Þetta er niðurstaða deilu sem stað-ið hefur frá árinu 2015 og er
einn angi þeirrar óánægju sem víða
ríkir um að samfélagsmiðlar, leit-
arvélar og álíka fyrirbæri lúti ekki
sömu lögum og lögmálum og önnur
fyrirtæki.
Fjölmiðlar hafa orðið illa úti ísamkeppninni við þessi fyr-
irbæri, þar sem þau nýta sér mjög
efni sem þeir framleiða og fénýta
það með því að birta auglýsingar í
kringum það, en greiða ekki skatta
til þeirra ríkja þar sem fjölmiðlarnir
starfa með sama hætti og þeir verða
að gera.
Franska sektin er ekki sú einasem Google hefur þurft að
greiða; fyrir fáeinum árum greiddi
fyrirtækið jafnvirði 20 milljarða
króna til Bretlands og jafnvirði 42
milljarða króna til Ítalíu vegna svip-
aðra brota.
Þessar svimandi fjárhæðir gefanokkra mynd af þeim áhrifum
sem samfélagsmiðlar og leitarvélar
hafa á starfsemi annarra í þeim lönd-
um þar sem vefsíður þeirra birtast.
Full ástæða er til að jafnræði ríkiá milli þessara alþjóðlegu risa
og keppinauta þeirra í einstökum
löndum og brýnt að stjórnvöld í
hverju landi geri allt sem unnt er til
að tryggja að svo sé.
Google aftur gripið
fyrir skattsvik
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kosið verður í embætti ritara Sjálf-
stæðisflokksins á flokksráðsfundi
sem fram fer í Reykjavík í dag. Ás-
laug Hulda Jónsdóttir, formaður
bæjarráðs í Garðabæ, og Jón Gunn-
arsson alþingismaður hafa lýsti því
yfir opinberlega að þau sækist eftir
kjöri í embættið.
Kosningin fer fram vegna þess að
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem
gegnt hefur embættinu, var skipuð
dómsmálaráðherra og skipulags-
reglur flokksins heimila ekki að ráð-
herra sé jafnframt ritari enda ber
ritari Sjálfstæðisflokksins sérstaka
ábyrgð gagnvart innra starfi flokks-
ins þegar formaður og varaformaður
eru ráðherrar.
Þótt Áslaug og Jón séu ein opin-
berlega í framboði er allt flokks-
bundið sjálfstæðisfólk í raun í kjöri.
Þeir sem bjóða sig fram fá tíma til að
kynna sig á fundinum klukkan 11.45.
Kjörið fer fram upp úr klukkan þrjú
og búist er við að úrslit verði tilkynnt
um eða upp úr klukkan fjögur.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, setur flokks-
ráðs- og formannafundinn með ræðu
klukkan 11 en fundurinn fer fram á
Hilton Reykjavík Nordica. Streymt
verður frá ræðu hans, Þórdísar Kol-
brúnar R. Gylfadóttur varaformanns
og Ásdísar Örnu fráfarandi ritara.
Áslaug Hulda og Jón í ritarakjöri
Formanna- og flokksstjórnarfundur
Sjálfstæðisflokksins haldinn í dag
Morgunblaðið/Ómar
Formaður Bjarni Benediktsson
ávarpar flokksráðsfund.
Fjólujússa, sem er af ætt ætisveppa,
fannst í garði á Akureyri í sumar.
Finnandinn var sveppafræðingurinn
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir og að
sögn Bjarna Diðriks Sigurðssonar,
prófessors við Landbúnaðarháskóla
Íslands, hefur tegundin ekki sést hér
á landi í yfir 50 ár.
„Þetta er vinsæl tegund sem við
vonum að fari að breiðast út á Íslandi.
Það að hún skuli finnast núna aftur
dregur fram hið hlýja veður sem við
höfum verið að upplifa núna í sumar,“
sagði Bjarni.
Hann sagði sveppatíðina hvergi
nærri búna þótt jarðvegurinn frjósi
örlítið, áfram verði hægt að tína
sveppi fram í miðjan október. Flestar
sveppategundir hætta að koma upp
þegar jarðvegurinn frýs.
Nú á síðustu dögum hafa vallhnúfa
og gulbroddi komið upp, sem eru að
sögn Bjarna með bestu tegundum
ætisveppa.
Gott fyrir norðan, lélegt syðra
Sveppatímabilið var lélegt fyrir
sunnan en gott fyrir norðan, segir
Bjarni.
„Þetta hefur verið mjög gott
sveppaár á Norður- og Austurlandi
en hér fyrir sunnan og vestan, þar
sem við höfum haft þurrt og bjart
sumar með lítilli úrkomu, hefur jarð-
vegurinn ekki náð að blotna mjög
mikið þar til nú í síðustu viku,“ sagði
hann. Þó rigndi í lok júlí sem gerði
það að verkum að sveppir komu
skyndilega upp í lok júlí. Þá varð
mjög góð sveppatíð fyrir sunnan fyrir
verslunarmannahelgi en eftir það tók
við þurrkur.
„Til að fá gott sveppaár þarf að
vera góð gróðurtíð, þá fá þeir nóg af
sykri og næringarefnum frá plöntum
en síðan þarf að vera raki í jarðveg-
inum. Það er oft þannig að árið á und-
an hefur áhrif á sveppatíðina,“ sagði
Bjarni og spáði því góðri sveppatíð
næsta sumar í ljósi hlýviðrisins sem
landsmenn fengu að njóta nú í sumar.
Fjólujússa hafði
ekki sést hér í 50 ár
Ætissveppurinn
fannst á Akureyri
Ljósmynd/Wikipedia
Fjólujússa Matsveppurinn vinsæli
er að ryðja sér til rúms hér á landi.
SKECHERS ENVY DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
STÆRÐIR 36-41.
DÖMUSKÓR
13.995