Morgunblaðið - 14.09.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 14.09.2019, Síða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019 4. herbergja sérhæðir með stórri verönd, með eða án bílskúrs. Vandaðar fullbúnar eignir, sem skilast með gólfefnum og tækjum. Eignirnar eru staðsettar í hjarta Dalshverfis. Íbúðir 109,5 m2 og bílskúr 30 m2 Leirdalur 15-21, 260 Reykjanesbær Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Hörðuvallaskóli í Kópavogivann yfirburðasigur íeldri aldursflokki áNorðurlandamóti grunn- skólaveita sem fram fór í Stokkhólmi um síðustu helgi. Sveitin hlaut 19 vinninga af 20 mögulegum og vann með miklum yfirburðum. Í 2. sæti kom sænski Engelbrektsskolan með 14 vinninga og í 3. sæti kom danskur skóli. Þetta er hæsta vinningshlutfall sem nokkur skáksveit hefur fengið í sögu NM grunnskóla. Vignir Vatnar og Sverrir unnu all- ar skákir sínar en Stephan og Arnar Milutin hlutu 4½ vinning af 5 mögu- legum. Hörðuvallaskóli var einnig með sveit í yngra flokki Norður- landamótsins og varð í þriðja sæti, sem gaf bronsverðlaun. Haustmót TR hafið Teflt er í þrem átta manna riðlum og opnum flokki á Haustmóti Tafl- félags Reykjavíkur sem hófst á sunnudaginn. Teflt er þrisvar í viku og lýkur keppni því fyrir Íslandsmót skákfélaga. þegar tefldar höfðu ver- ið tvær umferðir voru línur aðeins farnar að skýrast en í A-flokki höfðu Hjörvar Steinn Grétarsson og Guð- mundur Kjartansson unnið báðar skákir sínar, Símon Þórhallsson og Guðni Stefán Pétursson höfðu gert það sama í B-flokki og einnig Pétur Pálmi Harðarson og Frakkinn Aasef Alashtar í C-flokki. Meira um mótið í næsta pistli. Heimsbikarmótið í Khanty Mansiysk 128 skákmenn hófu keppni sl. þriðjudag í heimsbikarmóti FIDE sem fram fer í Khanty Mansiysk í Síberíu. Þeir tveir sem að lokum munu tefla um efsta sætið fá þátt- tökurétt í áskorendamótinu sem verður haldið á næsta ári en sigur- vegarinn þar öðlast réttinn til að skora á heimsmeistarann. Keppn- isfyrirkomulagið í Khanty er með hefðbundnu sniði, útsláttarkeppni sjö umferðir alls. Í hverri umferð nema þeirri síðustu er byrjað á tveim kappskákum og ef ekki fást úrslit er gripið til skáka með styttri umhugsunartíma. Í lokaumferðinni verða hins vegar tefldar fjórar kapp- skákir. Talsvert var um óvænt úrslit í 1. umferð en meðal þeirra sem féllu úr keppni voru öflugir stórmeistarar á borð við Pólverjann Radoslaw Wojtaszek sem tapaði 0:2 fyrir Norðmanninum Johan Sebastian- Christiansen. Tékkinn David Nav- ara tefldi við Rússann Daniil Yuffa og tapaði ½:1½. Einn þeirra sem hafa byrjað vel er margfaldur skákmeistari Rússlands, Peter Svidler. Honum hefur oft gengið vel á þessum vettvangi og átti ekki í miklum erfiðleikum með Kúbumanninn Albornoz í seinni skák þeirra: Peter Svidler – Cabrera Albor- noz Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6 4. O-O Bd7 5. He1 Rf6 6. c3 a6 7. Bf1 Bg4 8. d4 Bxf3 Þekkt er framhaldið 8. ... cxd4 9. cxd4 d5 10. e5 Rg8 og nú 11. e6!? Bxe6 12. Hxe6 fxe6 13. Rc3 eða 13. Db3 og hvítur hefur dágóðar bætur fyrir skiptamun. 9. gxf3 cxd4 10. cxd4 d5 11. e5 Rh5 12. e6 g6 13. Rc3 f5?! Vafasöm ákvörðun að skilja peðið eftir á e6. Skynsamlegra var að leika 13. ... Rg7. 14. Db3! Rxd4 15. Dxb7 Hb8? Hann varð að finna skjól fyrir kónginn og leika 15. ... Bg7. 16. Dxa6 Rxf3+ 17. Kh1 Dc7 18. Da4+ Kd8 Kóngurinn er ekki á sérlega öruggu svæði þarna en svartur hót- ar þó máti. En nú gerir Svidler út um taflið. 19. Bf4! Rxf4 20. Rb5 Db6 21. Rd4! - og svartur er varnarlaus og gafst upp. Framhaldið gæti orðið 21. ... Hb7 22. Rc6+ Kc7 23. Dxf4+ o.s.frv. Hörðuvallaskóli setti met á Norðurlanda- móti grunnskóla Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Kjartan Briem Sigursveit Hörðuvallaskóla F.v. Stephan Briem, Arnar Milutin, Vignir Vatnar Stefánsson, Sverrir Hákonarson og Gunnar Finnsson liðsstjóri. Samúel Jónsson fæddist 15. september 1884 á bænum Horni í Arnarfirði. Foreldrar hans voru hjónin Jón Þor- steinsson og Guðríður Guð- mundsdóttir. Samúel missti föður sinn þegar hann var fjög- urra ára gamall og flutti þá með móður sinni á Barða- strönd. Samúel og Salóme Samúels- dóttir hófu búskap saman á jörðinni Krossdal í Tálknafirði, bjuggu þar frá 1927-1947. Þau hjónin eignuðust saman þrjú börn, sem öll létust á unga aldri. Árið 1947 fluttu þau hjónin í Selárdal og fljótlega eftir það lést Salóme. Samúel bjó í Sel- árdal í um 22 ára skeið, lengst- um einn síns liðs. Þar byggði hann íbúðarhús, kirkju og lista- safn. Samúel málaði fjölmörg olíu- málverk og landslagsmyndir sem hann rammaði inn sjálfur. Hann gerði sér högglistagarð, skar út í tré og gerði einnig lík- ön, m.a. af Péturskirkjunni í Róm og af indversku musteri. Til annarra landa hafði hann aldrei komið en studdist við myndir úr bókum og póstkort við listsköpun sína. Í Selárdal er verið að vinna mikið endurreisnarstarf á verkum og híbýlum Samúels. Samúel lést 5. janúar 1969. Merkir Íslendingar Samúel Jónsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? Sjaldan eða aldrei hef- ur sést annar eins vandræðagangur og sá sem fylgdi varaforseta Bandaríkjanna í Ís- landsheimsókn hans. Þar átti bæði varafor- setinn í hlut og íslensk- ir ráðamenn, einkum utanríkisráðherrann. Sá varð margsaga um tilgang heimsókn- arinnar, efnahagsmál yrðu rædd svo og varnarmál eins og ævinlega. Sauð- svartur almúginn horfði á þetta og hlustaði og varð lítils vísari. Taldi að þarna væru að vanda á ferðinni sjón- hverfingar og blekkingaleikur Bandaríkjamanna og utanrík- isráðherra okkar tæki þátt í leikritinu og reyndi að koma með réttar rep- likkur á réttum stöðum. Vafðist þó tunga um tönn þegar Pence lýsti því yfir að Íslendingar hefðu slegið af til- boð Kínverja um þátttöku þeirra fyrrnefndu í fyrirbærinu Belti og brú. Svolítið ónákvæmt hjá Pence, sagði utanríkisráðherrann vandræðalegur, en gat samt ekki leynt aðdáun sinni á varaforsetanum. Tilboðið væri enn til umfjöllunar hjá Íslendingum, en hvort Guðlaugur Þór Þórðarson hafði sagt Pence að aldrei yrði af þessu skal ósagt látið og Pence viljað líta á það sem gerðan hlut. Ólafur Ragnar Grímsson sagði í eftirminnilegu Kastljósi Sjónvarpsins mánudaginn 9. september að ráða- menn í Bandaríkjunum hefðu fyrst gripið til þess að hringja í þjóðarör- yggisráðið og Pentagon þegar rann upp fyrir þeim að þeir væru orðnir eitthvað utanveltu á norðurslóðum. Sem sagt gripið fyrst til byssunnar. Í sömu svifum vildi Trump Banda- ríkjaforseti kaupa Grænland án þess þó að hafa lesið fræði Jóns Dúasonar sem hélt því fram að Íslendingar ættu tilkall til Grænlands og væru því á undan í röðinni. Með þessu gerði forsetinn sig að enn frekara viðundri en orðið var. Líklegt er að koma skæðustu sprengjuflugvélar sögunnar, B-1, til Keflavíkur hafi verið einhver liður og undirbúningur fyrir forsetaheim- sóknina. Vélin getur borið átta kjarn- orkusprengjur og er hvorki sýnileg ratsjám né gervitunglum. En ráðlegt að sýna með þessu mátt sinn og megin og hversu Bandaríkjamenn meta mikils vináttuna við Ís- lendinga að senda hing- að þessa rándýru flug- vél. Þeir gleymdu að vísu að skipa sendiherra á Íslandi í tvö ár. Augljóst er að miklar breytingar verða á sigl- ingum þegar svokölluð vesturleið opnast ef eftir fer með bráðnum hafíss. Bæði Kínverjar og Kóreumenn smíða nú skip sem henta nýrri sigl- ingaleið. Ameríkanar skaka skellum, þrífa í hólkinn og senda hertól til Ís- lands. Úthrópa hina miklu uppbygg- ingu Kínverja á norðurslóðum og háskalegan norðurflota Rússa. En það veit öll drótt að Kínverjar eru klókir og gera það með samningum sem Kanar gera með fagurgala eða nærgangandi pínd svo notað sé orða- lag Steinólfs bónda í Fagradal á Skarðsströnd. Því er það kvíðvænlegt með þetta undarlega kompaní í Washington að þeir sjái ekki annað fyrir sér en hern- aðaruppbyggingu, einkum á Íslandi, úr því að Grænland var ekki falt. Við erum á þessu miðsvæði norðurslóða eins og Ólafur Ragnar útlistaði í Kastljósinu og hér er rafmagn og heitt og kalt vatn. Einnig nógir snat- ar sem dansa kringum þann amer- íska gullkálf sem fyrr. Leiðarahöf- undur Morgunblaðsins bauð góðan gest velkominn að morgni heimsókn- ar Pence varaforseta sem er bæði óvinur samkynhneigðra og þess að konur hafi vald yfir líkama sínum svo ekki sé meira upp talið. Michael R. Pence er ekki sérlega góður gestur, hann er andvaragestur og fulltrúi lífsgilda sem við forögtum hér á Ís- landi, enda sagði regnbogafána- borgin sitt þar sem karlinn fór um með leyniskyttur sínar gráar fyrir járnum trónandi á þökum og hana- bjálkum. Andvaragestur Eftir Finnboga Hermannsson Finnbogi Hermannsson »Hugleiðingar eftir heimsókn varaforseta Banda- ríkjanna til Íslands. Höfundur er fréttamaður og rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.